Innlent | Morgunblaðið | 26.6.2026 | 8:11 Hildur heitir að standa við stóru orðin Hildur Björnsdóttir segir margar erfiðar ákvarðanir vera fram undan, hún þurfi sem borgarstjóri að setja gott fordæmi um það. mbl.is/Eggert Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Borgarráð ákvað í gær, að tillögu Hildar Björnsdóttur borgarstjóra, að gera umfangsmiklar skipulagsbreytingar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, en í þeim felst m.a. að lagðar verði niður skrifstofa samskipta og viðburða og mannréttindaskrifstofa. Morgunblaðið spurði Hildi hvort henni lægi á við breytingar í ráðhúsi Reykjavíkur en ekki er liðinn mánuður síðan hún tók við embætti. „Já. Við vissum frá upphafi að erfið verkefni væru fram undan og það er engin ástæða til að bíða. Við höfum beðið sviðsstjóra borgarinnar um hagræðingartillögur og mér finnst eðlilegt að borgarstjóri gefi fordæmi og ég taki til á minni skrifstofu. Það er ekki auðvelt en það er nauðsynlegt.“ Þið talið um ný störf og að útvista eigi einhverju, er engin hætta á að þetta verði bara tilfærsla á verkefnum og kostnaði? „Nei. Í dag var 18 einstaklingum sagt upp störfum og við sjáum á eftir góðu fólki. Þar á meðal var samskiptateymi, sem var lagt niður, en við ætlum að ráða fólk í mun minni hóp til að sjá um miðlun fyrir borgina. Við höfum jafnframt lagt niður sex stöðugildi stefnumótunar- og þróunarteymis á skrifstofu borgarstjóra og ráðum 1-2 í þess stað. Þegar upp er staðið mun störfum á skrifstofunni fækka um 40%.“ Milljarða niðurskurður Þú vísar til fjárhagsvanda borgarinnar, en hve djúpur er hann? Þú nefnir 18 uppsagnir en það eru 11.000 starfsmenn hjá borginni. „Skrifstofa borgarstjóra og borgarritara er auðvitað lítil en mér finnst rétt að byrja á starfsstöðinni sem stendur mér næst. En það er gríðarlegt verk eftir. Ég vil ekki nefna tilteknar tölur en það eru blikur á lofti í rekstri borgarinnar. Ekki aðeins vegna þess hve illa hefur verið haldið á rekstrinum undanfarin ár, heldur eru tekjustofnarnir að veikjast. Fasteignaverð er tekið að lækka og raunlækkun á tekjum af fasteignasköttum blasir við á næsta ári. Staðan er hreinlega sú að það þarf að skera niður um fleiri milljarða króna. Það er snúið og krefjandi verkefni og til þess þarf kjark. En við lofuðum kjósendum okkar að fara í breytingar og taka til í rekstri borgarinnar og ætlum okkur að standa við það.“ Er þetta ekki allt eins pólitísk stefnubreyting eins og stjórnsýsluhagræðing? „Hvort tveggja, held ég. Í stefnumótunar- og þróunarteymi á skrifstofu borgarstjóra voru hýst sérstök hugðarefni forvera minna. Það er eðlilegt að nýjum borgarstjóra fylgi nýjar áherslur og ekki verra ef þannig má spara.“ Borgarstarfsmenn eru margir en veikindahlutfallið mun hærra en gengur og gerist. Sömuleiðis er reynslan af styttingu vinnuvikunnar upp og ofan. Eru færi þar? „Ég hef þegar átt fund með innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar og lagði áherslu á að fá úttekt á veikindahlutföllum. Eins erum við að skerpa á ráðningarbanni hjá Reykjavíkurborg. En við ætlum líka að setja viðverureglur í ráðhúsinu og takmarka utanlandsferðir borgarstarfsmanna, þannig að þeir þurfi að fá ferðaheimild á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara til að ferðast á vegum borgarinnar úr landi.“ Hefur það ekki verið þannig?! „Nei.“ Stöndum við dagana 100 Þú nefndir gott fordæmi borgarstjóra. Ertu að leggja línurnar fyrir allt borgarkerfið og verður það viðmiðið, að borgin sinni ekki verkefnum nema þau séu lögbundin eða með skýran og mælanlegan árangur fyrir borgarbúa? „Við leggjum alla áherslu á grunnþjónustuna, lögbundna þjónustu og þá þjónustu sem við erum öll sammála um að veita borgarbúum. Við biðjum sviðsstjóra um að líta gagnrýnum augum á önnur verkefni sem ekki falla undir framlínuþjónustu við fólk og fyrirtæki í Reykjavík eða eru ekki forgangsmál þessa meirihluta. Það eru margar erfiðar ákvarðanir fram undan, ég hef tekið erfiðar ákvarðanir inni á minni skrifstofu og vænti þess að erfiðar ákvarðanir verði teknar inni á öðrum sviðum borgarinnar.“ Verðið þið á harðahlaupum í allt sumar? „Já. Nýr meirihluti setti fram 100 daga verkefnalista og við ætlum okkur að standa við hann. Við erum þegar byrjuð að vinna vel á honum; erum að koma málum til framkvæmda eða í farveg sem við lofuðum að gera innan 100 daga. Við lofuðum því og lofuðum engu sem við getum ekki staðið við. Við leggjum allt kapp á að standa við stóru orðin og það munum við gera.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Arsenal vildi greiða níu milljarða Hildur heitir að standa við stóru orðin „Við treystum á Guð að þau finni hana á lífi“ Hvernig geturðu klætt þig í hitabylgju? Hundfúll en vissi ekki að Svíþjóð væri komin áfram Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Hver yrðu örlög sjávarútvegs á Íslandi innan Evrópusambandsins? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Umfangsmiklar breytingar: 18 störf lögð niður Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Einfalda og nútímavæða byggingarreglugerð Lífshætta getur skapast á augnabliki Mest lesið Í gær Í vikunni Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Borgin viðurkennir veruleg mistök Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Kaffistofa Samhjálpar í uppnámi Lambeyramáli vísað heim í hérað Hótel Skáld opnar um helgina á Akureyri Segir þyrlu á Akureyri löngu tímabæra Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Arsenal vildi greiða níu milljarða Hildur heitir að standa við stóru orðin „Við treystum á Guð að þau finni hana á lífi“ Hvernig geturðu klætt þig í hitabylgju? Hundfúll en vissi ekki að Svíþjóð væri komin áfram Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Hver yrðu örlög sjávarútvegs á Íslandi innan Evrópusambandsins? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Borgin viðurkennir veruleg mistök „Til hvers að vera með áætlun?“ Einfalda og nútímavæða byggingarreglugerð Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Mest lesið Í gær Í vikunni Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Borgin viðurkennir veruleg mistök Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Kaffistofa Samhjálpar í uppnámi Lambeyramáli vísað heim í hérað Hótel Skáld opnar um helgina á Akureyri Segir þyrlu á Akureyri löngu tímabæra Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku