200 mílur | Morgunblaðið | 26.6.2026 | 6:30 Voru viðbúnir því að þurfa að yfirgefa skipið Uppsjávarskip Líklegt má teljast að Barði missi af makrílvertíðinni í ágúst. Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Litlu mátti muna að illa færi þegar eldsprenging varð í vélarrúmi uppsjávarskipsins Barða NK föstudaginn 12. júní. Skipstjóri Barða segir að hitinn hafi líklega náð 400 gráðum og þá sprungu rúður sem skildu á milli vélarrúms og vaktklefa. Þrautþjálfuð og hröð viðbrögð áhafnarinnar voru það eina sem kom í veg fyrir að eldur slyppi út og dreifðist um skipið. „Vélstjóri á vakt í vélarrúmi varð var við eldinn fyrst,“ segir Theódór Elvar Haraldsson skipstjóri Barða þegar hann er beðinn um að lýsa aðstæðum um borð. „Hann var í vaktklefanum þar sem þú sérð yfir allt vélarrúmið, eða megnið af því, í gegnum tvær stórar glerrúður.“ Einhverju áður hafði eldsneytislögn inni í vélarrúminu gefið sig og dísilolía hafði sprautast um rýmið. Í hitanum í vélarrúminu kviknaði í olíunni sem leiddi til mikillar eldsprengingar. Halldór Smári Elíasson vélstjóri brást samstundis við, hljóp inn í skipið og aðvaraði alla skipverja. Frétt af mbl.is Rofin olíuleiðsla leiddi til eldsprengingar „Þá ruku allir til. Það hafa allir sín verkefni eða verkferla í svona neyðartilviki þar sem það er búið að vera að margæfa það núna í nokkur ár,“ segir Theódór. „Það vissu allir um leið og það var kallað „eldur í vélarrúmi“ hvað þeir ættu að fara að gera.“ Fyrstu viðbrögð Theódórs sem skipstjóra voru að senda út neyðarboð og láta vita að áhöfnin gæti þurft að yfirgefa skipið. „Restin af áhöfninni fór bara strax í það að loka öllum skilrúmum, loka öllum hurðum og öllum öndunargötum niður í vél til þess að hleypa engu súrefni niður í vélarrýmið,“ útskýrir Theódór. Að því loknu gat vélstjórinn kveikt á sérstöku slökkvikerfi sem kæfir eldinn með því að þurrka upp allt súrefni í rýminu. Frá efri palli vélarrúmsins. Tvöfalt gler á milli vélarrúms og vaktklefa sprakk að hluta vegna hitans. Ljósmyndir/Grétar Örn Sigfinnsson Glerið sprungið Frá því að Halldór Smári varð var við eldinn og þar til öruggt þótti að ekkert líf væri lengur í honum áætlar Theódór að liðið hafi um tíu mínútur. Á þeim stutta tíma olli eldurinn þó gríðarlegu tjóni og að sögn Theódórs hefði lítið mátt út af bera til að áhöfnin missti stjórn á aðstæðum. Það hafi glöggt mátt sjá á ástandinu á gluggunum tveimur sem skilja vélarrúmið frá vaktklefanum en í þeim er tvöfalt gler og var innra glerið sem var nær vélarrúminu sprungið af hitanum sem Theódór segir að hafi líklega náð 400 gráðum. Aðeins ytra glerið var eftir til að varna því að eldurinn léki lausum hala. „Ef það hefðu liðið kannski einhverjar sekúndur í viðbót, þá hefðu þær rúður líka gefið sig og eldurinn komist beint inn í skipið. Við hefðum aldrei ráðið við það.“ Ekki hefði verið hægt að kveikja á sjódælu til að virkja brunaslöngur því rafmagnslaust var orðið á skipinu. Theódór Elvar Haraldsson „Þetta hefði mjög fljótt farið úr böndunum ef menn hefðu ekki verið búnir að æfa þetta svona margoft,“ áréttar Theódór. „Menn þurftu ekkert að hittast og fara að ræða saman, menn ruku bara í þetta verkefni. Annars hefði það verið of seint.“ Hefði eldurinn sloppið út hefðu skipverjarnir þurft að yfirgefa skipið. Theódór hafði látið vita og í Færeyjum var þyrla á viðbúnaðarstigi. Skipið var um 16 sjómílur norður af Færeyjum, eða um það bil 20 kílómetra. Eftir að búið var að ráða niðurlögum eldsins steðjaði ekki lengur bráð hætta að skipverjunum og var skipið sótt af færeysku varðskipi. Barði var þó vélarvana og rak stjórnlaust í um þrjá og hálfan tíma áður en hjálpin barst. Theódór segir það vissulega óþægilegt að vera á reki í sjónum og ráða ekki við neitt en veðrið hafi verið gott og engin hætta á strandi. Engar makrílveiðar Á mánudag hófust þrif á vélarrúmi Barða en tjónið verður ekki metið að fullu fyrr en að því loknu. „Það verður ekkert ljóst fyrr en í næstu viku, sennilega,“ segir Grétar Örn Sigfinnsson útgerðarstjóri Síldarvinnslunnar, en hann telur allar líkur á því að verkið muni teygjast fram á haust. Ljóst er að minnsta kosti að Barði verður ekki tækur til veiða á næstunni. Næstu uppsjávarveiðar voru fyrirhugaðar um miðjan júlí en þá stóð til að skipið myndi halda á kolmunna. Þá er ólíklegt að lagfæringar verði komnar nógu langt á veg þegar makrílvertíðin hefst seinni partinn í ágúst. Kolsvart var um að litast í vélarrúminu. Hér má sjá uppgang af efri palli og upp í netalest. Ljósmyndir/Grétar Örn Sigfinnsson Aðspurður hvort það hafi ekki töluverð rekstrarleg áhrif að missa heilt skip svo skyndilega, þótt tímabundið sé, segir Grétar að verið sé að skoða málið. „Við erum með tvö önnur skip og svo eigum við í raun og veru þriðja skipið, Bjarna Óla, sem hefur ekki verið í drift,“ útskýrir hann. „En við verðum bara að meta það hvernig við leysum framhaldið.“ Hann bendir þó á að makrílvertíðin hafi dregist saman undanfarið og að atvikið hefði vísast getað komið upp á verri tíma ársins. „Það fór í raun og veru vel miðað við hvað fór í gang,“ bætir Grétar við að lokum. „Það voru engin slys á mönnum og fumlaus viðbrögð. Það auðvitað heldur tjóninu líka í lágmarki þegar menn eru snöggir, þótt tjónið hafi verið gríðarlegt.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Rúður sprungu í 400 gráðu hita Vel á aðra milljón á mánuði í hvalnum Reimt í kringum sjórekin lík útlendinga Rauðáta með öllu vannýtt auðlind Kína virkjar stærstu fiskeldisstöð á hafi Moby hnýtir í Kristján Loftsson Myndir: Veiddu 7 metra beinhákarl Ómannað loftfar á Hornafirði Kristján óskaði eftir aðkomu lögreglunnar Björgunarskip til aðstoðar tveimur aflvana fiskibátum Rúður sprungu í 400 gráðu hita Moby hnýtir í Kristján Loftsson Vel á aðra milljón á mánuði í hvalnum Myndir: Veiddu 7 metra beinhákarl Rauðáta með öllu vannýtt auðlind Reimt í kringum sjórekin lík útlendinga Kína virkjar stærstu fiskeldisstöð á hafi Björgunarskip til aðstoðar tveimur aflvana fiskibátum Hagnaðurinn jókst um 1,8 milljarða á milli ára Kristján óskaði eftir aðkomu lögreglunnar Rúður sprungu í 400 gráðu hita Kristján óskaði eftir aðkomu lögreglunnar Hólmsteinn fluttur á brott í lögreglubíl Hagnaðurinn jókst um 1,8 milljarða á milli ára Einfalt að skrá Hólmstein sem farþega Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Myndir: Veiddu 7 metra beinhákarl Moby hnýtir í Kristján Loftsson NATO prófar nýja tækni á Íslandi Segir 2.700 tonn tekin að láni Fleira áhugavert Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Lífshætta getur skapast á augnabliki Ríkið sagt svíkja samkomulag Borgin viðurkennir veruleg mistök Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 25.6.26 629,24 kr/kg Þorskur, slægður 25.6.26 596,50 kr/kg Ýsa, óslægð 25.6.26 716,63 kr/kg Ýsa, slægð 25.6.26 698,84 kr/kg Ufsi, óslægður 25.6.26 215,56 kr/kg Ufsi, slægður 25.6.26 378,66 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 25.6.26 126,92 kr/kg Litli karfi 1.6.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 25.6.26 Kristbjörg ST 39 Handfæri Þorskur 794 kg Ufsi 13 kg Karfi 13 kg Samtals 820 kg 25.6.26 Fengur EA 207 Handfæri Þorskur 748 kg Samtals 748 kg 25.6.26 Anna EA 121 Handfæri Þorskur 615 kg Samtals 615 kg 25.6.26 Grýla EA 33 Handfæri Þorskur 805 kg Ufsi 21 kg Karfi 4 kg Samtals 830 kg 25.6.26 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet Ufsi 871 kg Þorskur 732 kg Karfi 70 kg Samtals 1.673 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Rúður sprungu í 400 gráðu hita Vel á aðra milljón á mánuði í hvalnum Reimt í kringum sjórekin lík útlendinga Rauðáta með öllu vannýtt auðlind Kína virkjar stærstu fiskeldisstöð á hafi Moby hnýtir í Kristján Loftsson Myndir: Veiddu 7 metra beinhákarl Ómannað loftfar á Hornafirði Kristján óskaði eftir aðkomu lögreglunnar Björgunarskip til aðstoðar tveimur aflvana fiskibátum Rúður sprungu í 400 gráðu hita Moby hnýtir í Kristján Loftsson Vel á aðra milljón á mánuði í hvalnum Myndir: Veiddu 7 metra beinhákarl Rauðáta með öllu vannýtt auðlind Reimt í kringum sjórekin lík útlendinga Kína virkjar stærstu fiskeldisstöð á hafi Björgunarskip til aðstoðar tveimur aflvana fiskibátum Hagnaðurinn jókst um 1,8 milljarða á milli ára Kristján óskaði eftir aðkomu lögreglunnar Rúður sprungu í 400 gráðu hita Kristján óskaði eftir aðkomu lögreglunnar Hólmsteinn fluttur á brott í lögreglubíl Hagnaðurinn jókst um 1,8 milljarða á milli ára Einfalt að skrá Hólmstein sem farþega Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Myndir: Veiddu 7 metra beinhákarl Moby hnýtir í Kristján Loftsson NATO prófar nýja tækni á Íslandi Segir 2.700 tonn tekin að láni Fleira áhugavert Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lífshætta getur skapast á augnabliki Svara kalli kjósenda á Suðurlandsbraut „Áhyggjuefni“ hvað verður fyrir niðurskurðarhnífnum Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 25.6.26 629,24 kr/kg Þorskur, slægður 25.6.26 596,50 kr/kg Ýsa, óslægð 25.6.26 716,63 kr/kg Ýsa, slægð 25.6.26 698,84 kr/kg Ufsi, óslægður 25.6.26 215,56 kr/kg Ufsi, slægður 25.6.26 378,66 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 25.6.26 126,92 kr/kg Litli karfi 1.6.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegu