Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kaffistofa Samhjálpar í uppnámi

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 26.6.2026 | 6:00 Kaffistofa Samhjálpar í uppnámi Byggingarleyfi Samhjálpar á Grensásvegi var fellt úr gildi. Framtíðin er í óvissu hvað varðar húsnæði fyrir kaffistofu gesta samtakanna. mbl.is/Eggert Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Okkur er að sjálfsögðu brugðið. Þetta er ekki áfellisdómur yfir okkur heldur yfir ferlinu, en í úrskurðinum segir að framkvæmdin hefði átt að fara í deiliskipulag,“ segir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Samhjálpar í samtali við Morgunblaðið. Viðbragða hennar var leitað við úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem komst að þeirri niðurstöðu sl. miðvikudag að gera hefði átt deiliskipulag fyrir það svæði við Grensásveg þar sem fyrirhugaðri kaffistofu Samhjálpar var ætlaður staður. Það var ekki gert og því felldi úrskurðarnefndin úr gildi byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni. Verkefnið er því komið í uppnám. „Við erum félagasamtök sem sóttu um byggingarleyfi fyrir afmörkuðum hluta til þess að laga húsnæðið og okkur var vísað ákveðna leið í kerfinu og sú leið var úrskurðarnefndinni ekki þóknanleg,“ segir Guðrún Ágústa, sem telur úrskurðinn áfellisdóm yfir málsmeðferð Reykjavíkurborgar í málinu. Ferlið hefði átt að vera með öðrum hætti. Spurð hve miklu hafi verið kostað til við framkvæmdirnar segir Guðrún Ágústa að fjárhæðin nemi ásamt húsaleigu í níu mánuði a.m.k. 55 milljónum króna, sem mögulega sé tapað fé. Hún segir þó mögulegt að taka með ákveðna hluti úr innréttingu kaffistofunnar, þannig að væntanlega væri hægt að endurnýta hluta hennar annars staðar sem væri a.m.k. 10 milljóna virði. Eigi að síður sé þetta fjárhagslegt högg fyrir samtökin. Guðrún Ágústa segir aðspurð að Samhjálp sé fjármögnuð með sjálfsaflafé, einstaklingar, fyrirtæki og félagasamtök leggi starfseminni fjárhagslegt lið með styrkjum. „Við höfum líka fengið styrki frá ríkisstjórninni og frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Í lok síðasta árs styrkti ríkisstjórnin rekstur kaffistofunnar um eina milljón. Við sóttum um styrk vegna breytinganna sem við erum að fara í gegnum og fengum fimm milljónir frá ráðuneytinu. Við höfum hins vegar ekki fengið neina styrki frá Reykjavíkurborg, hvorki á þessu ári né síðasta. Við sóttum um styrk til borgarinnar en var hafnað,“ segir hún. Í ljósi þess hvernig málið hefur þróast hefði ekki verið viturlegt af ykkur að bíða með framkvæmdir á meðan málið var í kæruferli hjá úrskurðarnefndinni? „Við vorum með gilt byggingarleyfi og störfuðum samkvæmt því. Við erum líka búin að borga leigu í níu mánuði af húsnæði sem við höfum ekki getað notað,“ segir hún og bendir á að samkvæmt bráðabirgðaúrskurði fyrir fáeinum vikum hafi ekki verið mælt fyrir um stöðvun framkvæmdanna. „Við unnum að framkvæmdum í góðri trú og skiljum ekki við húsnæðið hálfkarað. Við berum ábyrgð á því að skilja það ekki eftir í uppnámi, en það er auðvelt að vera vitur eftir á. En við erum í raun húsnæðislaus og gátum ekki leyft okkur að bíða,“ segir Guðrún Ágústa. Samhjálp fékk inni tímabundið í Fíladelfíukirkjunni og segir Guðrún Ágústa að kirkjan hafi ætlað sér að fara í framkvæmdir í júlí nk. og mun þá Samhjálp þurfa að víkja úr húsnæðinu. Upphaflega hafi Samhjálp fengið inni í Fíladelfíu til síðustu áramóta og framtíðin sé nú í óvissu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Víða skúrir og hiti allt að 16 stigum Kaffistofa Samhjálpar í uppnámi Sýndu óvart nöfn Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Lína Birgitta staðgreiddi draumabílinn Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Neyðarástand Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar vegna loftslagsmála er slæmt meðal Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stærsti skjálftinn í meira en öld Utanvegaakstur vítt og breitt um Suðurland Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Maðurinn sem bauð Noregi birginn Mest lesið Í gær Í vikunni Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Borgin viðurkennir veruleg mistök Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Segir þyrlu á Akureyri löngu tímabæra Lambeyramáli vísað heim í hérað Stúlkan er komin í leitinar Hótel Skáld opnar um helgina á Akureyri Enn fækkar í hópi hamingjusamra á Íslandi Myndband: Háhyrningar syntu við Seltjarnarnes Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Víða skúrir og hiti allt að 16 stigum Kaffistofa Samhjálpar í uppnámi Sýndu óvart nöfn Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Lína Birgitta staðgreiddi draumabílinn Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Neyðarástand Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar vegna loftslagsmála er slæmt meðal Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stærsti skjálftinn í meira en öld Ríkið sagt svíkja samkomulag Nýtt námsefni óaðgengilegra en gömlu bækurnar Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Mest lesið Í gær Í vikunni Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Borgin viðurkennir veruleg mistök Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Segir þyrlu á Akureyri löngu tímabæra Lambeyramáli vísað heim í hérað Stúlkan er komin í leitinar Hótel Skáld opnar um helgina á Akureyri Enn fækkar í hópi hamingjusamra á Íslandi Myndband: Háhyrningar syntu við Seltjarnarnes Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku

Share this article