Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Borgin viðurkennir veruleg mistök

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 25.6.2026 | 20:34 Borgin viðurkennir veruleg mistök Skýrsla IER staðfestir djúpstæðan vanda í stjórnsýslu borgarinnar. Morgunblaðið/Anton Brink Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vöruhús við Álfabakka 2 Borgin leggur til úrbætur vegna græna gímaldsins Breyttu skipulagi tólf sinnum á níu árum Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Ýmsir ágallar á verklagi „Mér hefur víða verið kennt um þetta mál“ » Fleiri tengdar fréttir „Ég tel að niðurstöðurnar séu afar þýðingarmiklar fyrir íbúa í Árskógum og Búseta og staðfesta í raun þá gagnrýni og ábendingar sem við höfum lagt fram á byggingartíma hússins,“ segir Erlendur Gíslason lögmaður Búseta um úttekt Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar (IER) vegna vöruhússins við Álfabakka 2a. „Úttektin sýnir að alvarlegir annmarkar hafa verið á fleiri en einu stigi málsins. Við höfum haldið því fram að viðeigandi lögum og reglum hafi ekki verið fylgt við ákvarðanatöku, málsmeðferð hafi verið ábótavant og að ekki hafi verið nægilega gætt að réttindum þeirra sem urðu fyrir áhrifum af framkvæmdinni. Nú liggur sú staðfesting fyrir frá aðila sem borgin sjálf fól verkefnið.“ Er hægt að túlka þetta sem viðurkenningu borgarinnar á mistökum? „Ég tel erfitt að lesa niðurstöðurnar og viðbrögð við þeim öðruvísi en svo að borgin viðurkenni verulega ágalla í ferlinu. Í bókun endurskoðunarnefndar, sem starfar á vegum borgarstjórnar, kemur fram að um verulegan ágalla hafi verið að ræða í stjórnsýslunni. Í umfjöllun borgarráðs um skýrsluna kom auk þess beinlínis fram að mistök hefðu átt sér stað á mörgum stigum málsins. Það sést meðal annars á því að samhliða úttektinni eru lagðar fram fjölmargar tillögur að úrbótum og ákveðið að hefja formlegar viðræður við þá sem urðu fyrir áhrifum af málinu. Slík skref eru almennt ekki tekin nema ástæða sé til.“ Alvarlegt dæmi um vanrækslu Spurður hvað honum finnist helst standa upp úr í niðurstöðunum segir Erlendur að um sé að ræða kerfislægt vandamál fremur en einstök mistök og hinn mikli fjöldi úrbótatillagna staðfesti djúpstæðan og umfangsmikinn vanda. „Úttektin lýsir veikleikum í upplýsingagjöf, skráningu, samskiptum og meðferð málsins á mismunandi stigum stjórnsýslunnar. Það undirstrikar hversu mikilvægt er að þær umbætur sem nú eru boðaðar verði innleiddar í reynd. Mikilvægt er að hafa í huga að þótt úttektin dragi fram kerfislæga veikleika, þá er sú birtingarmynd sem birtist í máli græna gímaldsins án hliðstæðu. Umfang og eðli þeirra mistaka og vanrækslu sem þar komu fram er líklega alvarlegasta dæmi um slíka kerfisbresti sem sést hefur hér á landi um langt árabil og er orðið að táknmynd fyrir veikleika í stjórnsýslunni.“ Skýr viðbrögð borgarstjórans Erlendur bætir við að fyrir utan vel rökstuddar úrbótatillögur Innri endurskoðunar í úttektinni, þá standi jafnframt upp úr hin skýru viðbrögð nýs borgarstjóra, Hildar Björnsdóttur. „Hún ætlar sýnilega ekki einungis að láta úttektina þjóna þeim tilgangi að leiða til almennra umbóta til framtíðar, heldur fela í sér raunverulegar úrbætur fyrir íbúa í Árskógum, sem þurfa að þola gímaldið í bakgarði sínum alla daga með tilheyrandi lífsgæðaskerðingu. Það er lofsvert að borgin hyggst ræða við eigendur og leigutaka Álfabakka um úrbætur á húsinu og svæðinu.“ Erlendur telur mikilvægt að borgin hafi viðurkennt að tilefni hafi verið til gagnrýninnar og bætir við að nú hefjist næsti kafli, sem sé að tryggja að niðurstöðurnar leiði til raunverulegra úrbóta, ekki aðeins til framtíðar heldur einnig eins og kostur er fyrir þá íbúa sem hafa orðið fyrir skerðingu á réttindum sínum vegna málsins. Búseturéttur er eignarréttindi Bjarni Þór Þórólfsson framkvæmdastjóri Búseta segir að nú verði að ná fram raunverulegum úrbótum fyrir íbúa við Árskóga. „Við lítum á þessa niðurstöðu sem mikilvæga staðfestingu á því að mótmæli íbúanna og Búseta áttu við rök að styðjast. Niðurstöður úttektarinnar sýna skýrt að ábendingarnar sem þeir komu á framfæri áttu fullan rétt á sér og voru byggðar á málefnalegum sjónarmiðum.“ Kemur til greina að selja húsið og finna nýtt húsnæði fyrir íbúana? „Árskógar eru heimili fólks og sérstakt samfélag þar sem sterk tengsl hafa myndast meðal íbúanna. Það er mikilvægt að hafa í huga að vandamálið er ekki skapað af íbúunum sjálfum og ekki verður brugðist við því með aðgerðum sem ganga gegn vilja þeirra. Íbúarnir eru handhafar búseturéttar sem er sjálfstæður eignarréttur þeirra. Það er því á valdi hvers og eins að ákveða hvort hann selji búseturétt sinn eða ekki. Ekki er unnt að knýja fram slíkar ákvarðanir með þvingun, enda ber að virða eignarrétt og sjálfsákvörðunarrétt íbúanna.“ Nú hefst nýr kafli Borgarráð hefur samþykkt að hefja formlegar viðræður við ykkur um úrbætur. Hvað viljið þið fá út úr þeim? „Við lítum svo á að niðurstöður úttektarinnar kalli á ábyrgð og aðgerðir eins og Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur talað um. Hún leggur áherslu á þetta í nýlegu erindi sínu til borgarráðs, þar sem hún leggur til formlegar viðræður við eigendur og leigjendur Álfabakka 2a um mótvægisaðgerðir. Það er ekki hægt að breyta fortíðinni en nú hefst nýr kafli í þessu máli þar sem hugað er að hagsmunum íbúanna. Næsta skref hlýtur að vera að ná fram niðurstöðu sem skilar íbúunum raunverulegum úrbótum og auknum lífsgæðum. „Við höfum alltaf lagt áherslu á málefnalega nálgun og hagsmuni íbúanna,“ segir Bjarni. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Vöruhús við Álfabakka 2 Borgin leggur til úrbætur vegna græna gímaldsins Breyttu skipulagi tólf sinnum á níu árum Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Ýmsir ágallar á verklagi „Mér hefur víða verið kennt um þetta mál“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Breiðablik - Víkingur R., staðan er 1:4 Kliðurinn af fuglakvakinu þagnaði Borgin viðurkennir veruleg mistök Ekvador - Þýskaland, staðan er 1:1 Hannes svarar Hannesi Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Hámörkum verðmæti hafsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Setja á fót sérstakt teymi til að góma vasaþjófa Haglél í hitabylgju: „EKKI FYRIR VEÐURHRÆDDA“ Einfalda og nútímavæða byggingarreglugerð „Áhyggjuefni“ hvað verður fyrir niðurskurðarhnífnum Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Lúmskt algengir sjúkdómar Lífshætta getur skapast á augnabliki Myndin sem setti Noreg á hliðina Fimm sóttu um embættið Innkalla 4 tegundir Land Rover bíla Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Breiðablik - Víkingur R., staðan er 1:4 Kliðurinn af fuglakvakinu þagnaði Borgin viðurkennir veruleg mistök Ekvador - Þýskaland, staðan er 1:1 Hannes svarar Hannesi Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Hámörkum verðmæti hafsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Borgin viðurkennir veruleg mistök Ríkið sagt svíkja samkomulag Svara kalli kjósenda á Suðurlandsbraut Botnfrosnar væntingar um efnahag Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Lúmskt algengir sjúkdómar Lífshætta getur skapast á augnabliki Myndin sem setti Noreg á hliðina Fimm sóttu um embættið Innkalla 4 tegundir Land Rover bíla Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku

Share this article