Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sameining nýsköpunarsjóðs sparar 60 milljónir á ári

Read Full Article →

Beinn árlegur sparnaður af sameiningu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Kríu, sprota- og nýsköpunarsjóðs, nemur 60 milljónum króna á ári samkvæmt ársskýrslu Nýsköpunarsjóðsins Kríu fyrir árið 2025. Árið 2025 var fyrsta starfsár hins sameinaða sjóðs. Nýsköpunarsjóðurinn Kría segir að auk beins rekstrarsparnaðar hafi sameiningin einnig skapað hagræði og styrkt stöðu sjóðsins með því að koma fram sem ein heild. Fjárfesti fyrir meira en 300 milljónir Á árinu fjárfesti sjóðurinn fyrir 311 milljónir króna en hagnaður af sölu eigna nam 55 milljónum króna. Eignasafnið samanstendur annars vegar af hlutdeild í sjóðum að verðmæti 2,8 milljarðar króna, og hins vegar eignarhlutum í fyrirtækjum að verðmæti 2,1 milljarður króna. Að meðtöldum lánveitingum, handbæru fé og óinnkölluðum hlutafjárloforðum nema heildareignir sjóðsins rúmum 9 milljörðum króna. „Við erum afar sátt við fyrsta rekstrarár sjóðsins. Í byrjun árs var lögð áhersla á að skilgreina stefnur og setja langtímamarkmið. Í maí komu til starfa tveir fjárfestingastjórar og þá má segja að starfsemin hafi farið á fullt skrið,” segir Hrönn Greipsdóttur , forstjóri NSK. „Fjárfestingaátakið Frumsjóður 25 tókst afar vel, Heilsu Kría var sett á laggirnar og fjárfest var í fyrsta vísisjóðnum í lok árs svo fátt eitt sé talið. Við erum spennt fyrir framtíðinni og tilbúin til að takast á við þau verkefni sem lenda í skauti Kríu.” Sjá einnig „Við þurfum að byggja brú milli hug­mynda og fjár­magns“ Meðal viðstaddra á viðburðinum var Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, sem fór með erindi. Hann lagði áherslu á mikilvægt hlutverk Nýsköpunarsjóðsins Kríu við að efla aðgengi sprotafyrirtækja að fjármagni og styrkja íslenskt nýsköpunarumhverfi. „Til að hugmyndir geti orðið að verðmætum þurfa þær skilyrði til að dafna. Þar gegnir Nýsköpunarsjóðurinn Kría mikilvægu hlutverki með því að styðja við þau sem þora að feta nýjar leiðir. Takist okkur vel til mun íslenskt hugvit, útsjónarsemi og hin alkunna íslenska þrjóska halda áfram að skapa ný tækifæri og verðmæti fyrir samfélagið allt,” er haft eftir Loga Má. Í kynningu á ársfundi sjóðsins kom jafnframt fram að nýfjárfestingum í íslenskum sprotafyrirtækjum hafi fækkað og fjárhæðir þeirra dregist saman undanfarin ár, samkvæmt gögnum frá Framvís, samtökum engla og vísisjóða. Á sama tíma hafi framboð fjárfestingakosta aukist verulega, sem stjórnendur sjóðsins telja benda til markaðsbrests. Ein af helstu breytingunum eftir sameiningu er að sjóðurinn hefur nú heimild til að fjárfesta í erlendum sjóðum. Að sögn forsvarsmanna eykur það möguleika á að tengja íslenskt nýsköpunarumhverfi við alþjóðlegt fjármagn, sérþekkingu og tengslanet.

Share this article