Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Auka reglubundið rafmagnsleysi vegna árása Úkraínuhers

  • What: Ukraine's military attacks on Russian infrastructure have led to power outages in Crimea.
  • Impact: Affects residents of Crimea and highlights the impact of cyber-physical attacks.
Read Full Article →

Yfirvöld á Krímskaga ætla að auka við reglubundið rafmagnsleysi hjá íbúum þar vegna fleiri árása úkraínska hersins á orkuinnviði. Tilgangurinn er að vernda raforkukerfið. Sergey Aksyonov héraðsstjóri tilkynnti þetta á samskiptamiðlinum Telegram. Hann tók ekki fram hvar yrði lokað á rafmagn og þakkaði íbúum fyrir skilninginn. Úkraínski herinn gerði umfangsmiklar loftárásir á Sevastopol, stærstu borg á Krímskaga, í gær sem ollu rafmagnsleysi. Herinn segist meðal annars hafa gert árásir á brú fyrir lestarsamgöngur, orkuver og aðra mikilvæga innviði. Rússar innlimuðu Krímskaga 2014 og þar eru stjórnvöld hliðholl rússneskum stjórnvöldum. Árásir Úkraínuhers undanfarnar vikur og mánuði hafa leitt til þess að rússnesk yfirvöld hafa stöðvað eldsneytissölu til almennings. Háannatími ferðaþjónustu er yfir sumarið. Úkraínski herinn hefur sett aukinn þunga í árásir á orkuinnviði Rússa. Mykhailo Fedorov, varnarmálaráðherra Úkraínu, sagði í síðustu viku að herinn væri að einangra Krímskaga með drónum. „Það lítur út fyrir að Krímskagi verði eyja í nálægri framtíð. Þetta gæti leitt til mjög svo óvæntra afleiðinga fyrir Rússana,“ sagði hann í viðtali hjá bloggara sem heldur úti síðu á YouTube.

Share this article