Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sakar Póstinn um misbeitingu

  • What: Icelandic Post faces accusations of anti-competitive behavior
  • Impact: Concerns over market practices in the postal sector
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 25.6.2026 | 13:29 Sakar Póstinn um misbeitingu Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. mbl.isMaría Matthíasdóttir Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda (FA), segir augljóst að Íslandspóstur misbeiti markaðsráðandi stöðu sinni á pakkamarkaði til að hindra nýja keppinauta í því að ná fótfestu. Í gær var sagt frá því að blaðinu hefðu borist ábendingar um ýmis bolabrögð Íslandspósts sem Þórhildur Ólöf Helgadóttir vísaði alfarið á bug. „Pósturinn hefur að undanförnu hækkað gjaldskrár á ýmissi þjónustu annarri en pakkasendingum, þar sem samkeppnin er hörðust, til að mæta viðvarandi taprekstri og fær hundruð milljóna króna úr sjóðum skattgreiðenda en finnur nú skyndilega svigrúm til ríflegra afslátta til að undirbjóða verð einkarekinna keppinauta,“ segir Ólafur. Hann segir það hafa vakið athygli FA að Pósturinn hafi við hækkun á annarri þjónustu vísað m.a. til launahækkana og kílómetragjalds sem kostnaðarhækkana sem hefðu áhrif á verðskrár. „Þessir þættir virðast hins vegar ekki hafa nein áhrif á pakkaþjónustuna. Listaverðið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið óbreytt í tvö ár, á tíma launahækkana og verðbólgu, og á landsbyggðinni lækkaði það í febrúar 2025. Afslættir hafa hækkað duglega. Hámarksafsláttur, sem var 10%, er kominn í 20%, þannig að í raun hefur verð lækkað,“ segir hann. Ólafur segir fullyrðingar forstjóra Póstsins ekki ríma við þann veruleika sem FA sjái úti á markaðnum. „Þar er augljóslega í gangi hörð sókn Póstsins til að ná til sín viðskiptum, með skilyrtum afsláttum og tæknibrellum til að raðast ofar í vali á afhendingarmáta þegar neytendur kaupa vörur í netverslunum. Við höfum séð tölvupósta frá sölumönnum Póstsins, þar sem netverslunum eru boðin afsláttarkjör gegn því að Pósturinn birtist sem fyrsti kostur við val viðskiptavina á afhendingarmáta. Það gengur þvert á það sem Þórhildur segir í Morgunblaðinu.“ Þá segist Ólafur sömuleiðis hafa séð gögn sem sýni að á undanförnum vikum hafi þeim netverslunum snarfjölgað sem bjóða upp á Póstinn sem fyrsta kost, á kostnað einkarekinna keppinauta. „Sömu gögn segja okkur að verðið hjá Póstinum hefur snarlækkað á undanförnum vikum. Að okkar mati er full ástæða til að samkeppnisyfirvöld grípi inn í þessa hegðun ríkisfyrirtækisins með bráðabirgðaákvörðun. Við teljum sömuleiðis ástæðu til að fjármálaráðherrann, sem heldur á hlutabréfi ríkisins í Póstinum, hnykki á þeirri eigendastefnu sem hefur verið mótuð.“ Ólafur kveðst áhyggjufullur yfir lélegu eftirliti með samkeppnisháttum Póstsins og fjáraustri ríkisins í rekstur fyrirtækisins. Byggðastofnun hafi „engan áhuga á að sinna hlutverki sínu“ og Samkeppniseftirlitið hreyfi sig á hraða snigilsins. Eina stofnunin sem gefi sig að ástandinu sé Eftirlitsstofnun EFTA (ESA). Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mannréttindaskrifstofa einnig lögð niður Arsenal festir kaup á varnarmanninum Myndir: Jarðskjálftinn í Venesúela Sakar Póstinn um misbeitingu Tónleikaferð Lionel Richie fór óvænt af stað Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Hámörkum verðmæti hafsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndir: Jarðskjálftinn í Venesúela Segir eðlilegar skýringar á töfum Segja þyrlu á Akureyri skipta sköpum Ekki ástæða til að aðhafast í máli Páls Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Lúmskt algengir sjúkdómar Myndin sem setti Noreg á hliðina Lífshætta getur skapast á augnabliki Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Innkalla 4 tegundir Land Rover bíla Sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Mannréttindaskrifstofa einnig lögð niður Arsenal festir kaup á varnarmanninum Myndir: Jarðskjálftinn í Venesúela Sakar Póstinn um misbeitingu Tónleikaferð Lionel Richie fór óvænt af stað Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Hámörkum verðmæti hafsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Maðurinn sem bauð Noregi birginn Dæmdur fyrir fjárdrátt: Hélt eftir lífeyrisgreiðslum Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Utanvegaakstur vítt og breitt um Suðurland Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Lúmskt algengir sjúkdómar Myndin sem setti Noreg á hliðina Lífshætta getur skapast á augnabliki Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Innkalla 4 tegundir Land Rover bíla Sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku

Share this article