Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ríkið sagt svíkja samkomulag

  • What: Government policy change affecting child services
  • Impact: Not related to cybersecurity
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 25.6.2026 | 7:55 Ríkið sagt svíkja samkomulag Blönduhlíð er meðferðar- og stuðningsheimili fyrir börn. Morgunblaðið/Birta Margrét Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Við skrifuðum undir samkomulagið við ríkið fyrir 15 mánuðum þar sem samið var um að ríkið sæi um framkvæmd og fjármögnun þjónustu við börn með fjölþættan vanda,“ segir Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, í samtali við Morgunblaðið. Hann gagnrýnir harðlega framgöngu mennta- og barnamálaráðuneytisins sem í nýsettri reglugerð skilgreinir börn með fjölþættan vanda þrengra en áður sem hefur þær afleiðingar að færri börn falla undir þann flokk en áður var. Með því tekst ríkinu að spara útlagðan kostnað vegna málaflokksins. „Þetta var yfirfærsla á þessum málaflokki frá sveitarfélögunum til ríkisins. Sveitarfélögin höfðu með þessa þjónustu að gera og það var niðurstaða fagfólks að þessari þjónustu væri best fyrir komið hjá ríkinu,“ segir hann, en með nýrri skilgreiningu ráðuneytisins er forsendum samkomulagsins breytt. Að jafnaði hafa 35 börn talist til þess hóps, en í yfirlýsingu sambandsins vegna málsins segir að með ákvörðun ráðuneytisins séu settar kerfislegar skorður sem útiloki börnin frá aðgengi að viðeigandi úrræði. Arnar Þór segir að málið megi rekja aftur til ársins 2011 þegar málefni fatlaðra fluttust frá ríkinu til sveitarfélaganna, en sá þáttur málsins sem varðar börn með fjölþættan vanda hafi verið ófrágenginn og málsaðilar karpað um hvar þeim málum væri best fyrir komið. „En þegar ný ríkisstjórn kom til valda varð það niðurstaðan að leysa málið í eitt skipti fyrir öll og að ríkið tæki málaflokkinn yfir. Við erum nú að horfa upp á það að samkomulagið sem við undirrituðum og átti að skerpa á þessari verkaskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga stendur ekki. Mennta- og barnamálaráðuneytið fór í það einhliða að gefa út reglugerð þar sem verið er að þrengja skilgreiningu á því hvaða börn teljast vera með fjölþættan vanda sem þýðir að það verða miklu færri börn sem þarna heyra undir og ríkið ætlar nú að bera ábyrgð á,“ segir Arnar Þór. Spurður hvað biði þeirra barna sem sýnt er að ekki muni fá þá þjónustu sem ríkið hafði samið um að veita, segir Arnar Þór að nú verði farið í samtal við ráðuneytið um hvað yrði um þau börn. „Það er verkefni næstu vikna og mánaða að finna út úr því hvernig við leysum það mál,“ segir hann. „Það er verið að brjóta samkomulagið að okkar mati og það læðist að manni sá grunur að þessi þjónusta kosti meira en áætlanir ríkisins gerðu ráð fyrir. En það breytir því ekki að þetta er þjónusta við börn með fjölþættan vanda. Þegar börnin ná 18 ára aldri detta þau úr þessum úrræðum, þannig að segja má að þessir einstaklingar komi og fari í þeim skilningi, þannig að tölurnar um hve margir eiga hlut að máli geta verið breytilegar frá ári til árs,“ segir Arnar Þór. Spurður um samskiptin við ráðuneytið í aðdraganda þessa segir hann að sveitarfélögin hafi bent á að setning reglugerðarinnar væri brot á umræddu samkomulagi og þess óskað að hún yrði ekki sett. „Það var ekki á það hlustað,“ segir hann og bendir á að ríki og sveitarfélög veiti saman opinbera þjónustu og það sé mjög hart að ekki skuli vera hægt að treysta ríkinu til að standa við áður gert samkomulag, hvað þá þegar það væri ekki eldra en 15 mánaða gamalt. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ríkið sagt svíkja samkomulag Synjaði umdeildu deiluskipulagi á Suðurlandsbraut Heimurinn bregst við mannskæðum jarðskjálftum í Venesúela Ætla að eignast barn saman þrátt fyrir skilnaðinn Setja upp verk eftir nóbelsverðlaunahafa Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Hámörkum verðmæti hafsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir eðlilegar skýringar á töfum Dæmdur fyrir fjárdrátt: Hélt eftir lífeyrisgreiðslum Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Ekki hlutverk ráðherra að endurskoða mat Arion Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Þegar maður er ungur, þá gleymir maður sér“ Utanvegaakstur vítt og breitt um Suðurland Botnfrosnar væntingar um efnahag Ákærður fyrir ofbeldi í garð eiginkonu sinnar Þáði hærri laun en Vilhjálmur Hitinn gæti náð 18 stigum Gaukur á grein á Seyðisfirði lifði af langt flug Segja þyrlu á Akureyri skipta sköpum Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Ríkið sagt svíkja samkomulag Synjaði umdeildu deiluskipulagi á Suðurlandsbraut Heimurinn bregst við mannskæðum jarðskjálftum í Venesúela Ætla að eignast barn saman þrátt fyrir skilnaðinn Setja upp verk eftir nóbelsverðlaunahafa Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Hámörkum verðmæti hafsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ríkið sagt svíkja samkomulag Ekki hlutverk ráðherra að endurskoða mat Arion Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hlaut 4 mánaða fangelsi fyrir banaslys á Sæbraut Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Þegar maður er ungur, þá gleymir maður sér“ Utanvegaakstur vítt og breitt um Suðurland Botnfrosnar væntingar um efnahag Ákærður fyrir ofbeldi í garð eiginkonu sinnar Þáði hærri laun en Vilhjálmur Hitinn gæti náð 18 stigum Gaukur á grein á Seyðisfirði lifði af langt flug Segja þyrlu á Akureyri skipta sköpum Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku

Share this article