Lögreglumaður á höfuðborgarsvæðinu greindist með sofandi berkla í febrúar eftir að hafa verið útsettur fyrir sjúkdómnum þó nokkrum sinnum. Margir mánuðir liðu, að hans sögn, frá því hann smitaðist og þangað til hann greindist. Það var lögreglumaðurinn sjálfur sem óskaði eftir því að fara í berklapróf. Það gerði hann eftir að nokkrir samstarfsmenn höfðu verið útsettir fyrir berklum frá manneskju sem lögreglumaðurinn hafði sjálfur oft haft afskipti af. Lögreglumaðurinn kýs að tjá sig ekki undir nafni. „Það var hálfgerð smitrakning sem ég frétti af. Þá fór ég að rifja upp mín afskipti af aðilanum og fattaði að það væru líkur á að ég gæti verið smitaður. Ég var með viðkomandi í langan tíma og hann var með mikil einkenni,“ segir hann. Smitvörnum ábótavant Í febrúar var greint frá því að starfsfólk á bráðamóttöku Landspítala hefði verið útsett fyrir berklum og að átta hefðu greinst með sofandi berkla. Í maí greindist bráðalæknir einnig með berkla eftir að hafa verið útsettur í vinnunni og einn starfsmaður til viðbótar. „Það kom upp faraldur af berklum innan ákveðins hóps okkar skjólstæðinga,“ segir lögreglumaðurinn. Hann var settur í meðferð við berklum sem á að ljúka í næsta mánuði. „Það er ekki nægileg meðvitund um þetta hjá lögreglumönnum um að þetta sé möguleiki,“ segir maðurinn um möguleika þess að smitast af berklum í starfi. „Við viðhöfum ekki smitvarnir því við búumst ekki við þessu.“ Sjálfur vill hann aukna meðvitund, smitvarnir og skimanir meðal lögreglumanna.