Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skuldir Venesúela meiri en áætlað var

Read Full Article →

Talið er að skuldir Venesúela nemi um 240 milljörðum dala en á næstu vikum munu yfirvöld þar í landi birta yfirlit sem sýnir að skuldir ríkisins eru mun meiri en áður var talið. Þar með stefnir í stærstu endurskipulagningu ríkisskulda sem sögur fara af. Þetta kemur fram í frétt Financial Times. Heimildarmenn segja skuldirnar langt umfram fyrra mat markaðarins, sem hljóðaði upp á 150–200 milljarða dala. Delcy Rodríguez, bráðabirgðaleiðtogi landsins, vill ná samkomulagi við kröfuhafa fyrir árslok svo Venesúela geti snúið aftur á alþjóðlega fjármálamarkaði eftir nær áratugar einangrun undir stjórn Maduro. Centerview Partners, ráðgjafi stjórnvalda í Venesúela, hefur unnið drög að áætlun um sjálfbærari skuldastöðu sem birt verður í byrjun júlí. Talið er landsframleiðsla nemi um 100 milljörðum dala, en þjóðhagsreikningur því til staðfestingar verður birtur síðar í þessum mánuði. Það myndi þýða að skuldir nemi meira en 200% af landsframleiðslu. Óvenjulegt þykir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi ekki séð um sjálfbærnigreininguna. Sumir kröfuhafar telja það benda til þess að Venesúela muni krefjast verulegrar niðurfærslu skulda. Hluti stjórnarandstöðunnar óttast þó að hraðari endurskipulagning utan ramma sjóðsins veiki samningsstöðu landsins. Skuldir ríkisins og ríkisolíufélagsins nema um 60 milljörðum dala, auk um 40 milljarða í ógreiddum vöxtum. Aðrar kröfur tengjast olíufélögum, birgjum, eignaupptökum, Kína, Rússlandi og þróunarbönkum. Kröfuhafar horfa einkum til þess hversu hratt Venesúela getur aukið olíuframleiðslu. Olíuútflutningur nam 5,5 milljörðum dala á fyrsta ársfjórðungi sem er aukning úr 4,4 milljörðum dala undir lok stjórnartíðar Maduro. Sérfræðingar telja óvíst að samningar náist fyrir lok þessa árs og segja ferlið líklega dragast fram til næsta árs.

Share this article