Innlent | mbl | 24.6.2026 | 11:01 | Uppfært 11:19 Vilja vara fólk við hitanum nógu snemma Vegfarendur með viftur, blævængi og sólhífar til að kæla sig á meðan þeir bíða eftir sporvagni í Bordeaux í suðvesturhluta Frakklands. AFP Magnea Marín Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Loftslagsvá Búist við yfir 35 stiga hita hjá 94 milljónum Hitabylgjan heldur áfram með methita Eiffelturninum lokað snemma vegna hitabylgju „Að sjá þetta hitastig í júní er umhugsunarefni“ Rauð viðvörun vegna hitabylgju í 15 borgum » Fleiri tengdar fréttir Rauðar viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir helgina víða um Evrópu , sem telst töluvert langt fram í tímann. Á laugardaginn er rauð viðvörun í Austurríki, á Vínarborgarsvæðinu og víða í Sviss og Norður-Ítalíu. Athygli vekur að danska veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir laugardaginn og varað fólk við því að hitinn verði um 28 til 32 gráður en að hann gæti farið upp í 35 gráður og þar með nálgast júníhitametið sem er 35,6 í Danmörku. „Danska veðurstofan vill hafa vaðið fyrir neðan sig og vara fólk við nógu snemma. Það er miðvikudagur í dag,“ segir veðurfræðingurinn Einar Sveinbjörnsson, sem staddur er á kaffihúsi í Róm á Ítalíu en gaf sér þó tíma til að ræða hitabylgjuna í Evrópu við mbl.is. Frétt af mbl.is Hitametið gæti fallið í Danmörku Skiptir máli að vera við sjóinn „Ég sit hérna á kaffihúsi í Róm og er að kafna,“ segir Einar. „Hitabylgjan teygir sig líka til Þýskalands og Mið-Evrópu og eins hérna við Miðjarðarhafið austar, það er eins og þar sem ég er hérna í Róm, hitinn er núna 34,5 gráður og það er spáð alveg upp í 38 um helgina. Það er auðvitað mjög heitt inni í borgunum. Það er skárra til sveita og niðri við sjóinn eins og gefur að skilja,“ segir Einar. Hitinn sé óvenjulegur fyrir júnímánuð í Róm. „Hér verður auðvitað heitara en í Evrópu alla jafna en þetta er kannski meira það sem menn eiga von á um hásumar, seint í júlí og í ágúst,“ bætir hann við. Hann hafi þó ekki orðið var við annað en að mannlífið gangi sinn vanagang, þó að fólk keppist við að leita í skuggann. „Ég held að Íslendingarnir þekki þetta sem hafa verið á þessum slóðum, til dæmis á Spáni. Það skiptir máli að vera við sjóinn.“ Frétt af mbl.is Hitabylgjan heldur áfram með methita Svalara loft á leiðinni Hitabylgjan teygir sig yfir til Bretlandseyja á næstu dögum. Appelsínugular og rauðar viðvaranir hafa verið gefnar út í kringum London í Englandi um helgina. Aftur á móti nær svalara loft frá Atlantshafinu inn yfir Frakkland um helgina og þá snardregur úr mesta hitanum á þeim stöðum sem hitamet hafa verið slegin. „Þessi hitahvelfing sem er hérna yfir, svona eins og heitur hjálmur yfir öllu, hún er að færast bæði til austurs og aðeins til norðurs,“ segir Einar. Frétt af mbl.is „Að sjá þetta hitastig í júní er umhugsunarefni“ Frétt af mbl.is Hitabylgjan: 20 hafa drukknað í Frakklandi Tengdar fréttir Loftslagsvá Búist við yfir 35 stiga hita hjá 94 milljónum Hitabylgjan heldur áfram með methita Eiffelturninum lokað snemma vegna hitabylgju „Að sjá þetta hitastig í júní er umhugsunarefni“ Rauð viðvörun vegna hitabylgju í 15 borgum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra Búist við yfir 35 stiga hita hjá 94 milljónum Myndskeið: Ronaldo skráði sig í sögubækurnar Setja nýjar reglur um hagsmuni barna á flótta Opin fyrir ástinni á samfélagsmiðlun Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Börnin þurfa nú að bíða lengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kaupmáttur aukist Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Myndi kosta rúman milljarð á ári Sektarfjárhæðir við utanvegaakstri of lágar Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Hjörtur Guðnason „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Hola í höggi í fjórða skipti Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Kannast ekki við að beita bolabrögðum Segir Íslendinga ekki þurfa að óttast Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Jarðskjálfti 3,3 að stærð: Enginn gosórói Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Nýjast á mbl.is » Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra Búist við yfir 35 stiga hita hjá 94 milljónum Myndskeið: Ronaldo skráði sig í sögubækurnar Setja nýjar reglur um hagsmuni barna á flótta Opin fyrir ástinni á samfélagsmiðlun Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Börnin þurfa nú að bíða lengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sektarfjárhæðir við utanvegaakstri of lágar Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Ófyrirsjáanleiki Trumps vandamál Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Hjörtur Guðnason „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Hola í höggi í fjórða skipti Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Kannast ekki við að beita bolabrögðum Segir Íslendinga ekki þurfa að óttast Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Jarðskjálfti 3,3 að stærð: Enginn gosórói Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn