Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Króatía vann mikilvægan sigur á liði Panama

  • What: Croatia defeated Panama in a World Cup match
  • Impact: No security impact
Read Full Article →

Króatar náðu sér í sín fyrstu stig í L-riðli á heimsmeistaramótinu í fótbolta í nótt þegar þeir sigruðu lið Panama með einu marki gegn engu. Liðin mættust á Toronto-leikvanginum í kvöld. Leikurinn fór rólega af stað. Enn var markalaust þegar liðin héldu til búningsklefa í hálfleik. Varamaðurinn Ante Budimir skoraði eftir frábæra fyrirgjöf frá Josip Stanisic á 54. mínútu leiksins. Króatar fengu annað dauðafæri um þremur mínútum síðar en Orlando Mosquera, markvörður Panama, varði skot frá Marco Pasalic sem var kominn einn í gegn eftir flotta sendingu frá fyrirliðanum Luka Modric sem lék sinn 200. landsleik í kvöld. Þetta var mikilvægur sigur fyrir Króata. Jafntefli gegn Gana í lokaumferð riðilsins ætti að duga liðinu til að komast áfram í útsláttarkeppnina. Ljóst er að lið Panama kemst ekki upp úr riðlinum. Næsti leikur á HM er viðureign Kólumbíu og Kongó klukkan 2 í nótt. Bein útsending á RÚV hefst korteri áður en flautað verður til leiks.

Share this article