Landsvirkjun og Borealis Data Center hafa gert með sér samkomulag um aukin raforkukaup vegna uppbyggingar gagnavers Borealis á Blönduósi. Um er að ræða langtímasamning um 12 MW forgangsorku við gildandi samning. Borealis hefur verið viðskiptavinur Landsvirkjunar síðan 2018 og rekur gagnaver á Blönduósi, í Reykjavík, Reykjanesbæ og Finnlandi. Samhliða stækkun gagnaversins á Blönduósi er Borealis að bæta við aðstöðu fyrir starfsfólk og viðskiptavini sem munu reka þar eigin starfsstöðvar. „Umbreytingin í rekstri gagnavera undanfarin misseri er í takt við stefnu Landsvirkjunar um að styðja við stafræna vegferð samfélagsins. Öflugur gagnaversiðnaður er mikilvægur fyrir samkeppnishæfni Íslands og það mikilvægi verður æ ljósara eftir því sem gervigreind sækir í sig veðrið,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. Sjá einnig Fátt ef eitthvað gæti haft jafnmikil áhrif Í tilkynningu segir jafnframt að uppbygging gagnavera um allt land hafi leitt til aukinnar raforkunotkunar en þau nota nú rúmlega 70 MW eða um 3,5% af heildarorkunotkun hér á landi. „Eftirspurn eftir innviðum fyrir gervigreind og afkastamikla reiknigetu vex hratt og við erum farin að sjá hvernig þessi tækni er að breyta heiminum. Ísland hefur tækifæri til að verða öflugur þátttakandi í aðfangakeðju gervigreindar með uppbyggingu innviða og þjónustuframboðs sem styður við þessar tækniframfarir,“ segir Björn Brynjúlfsson, forstjóri Borealis.