Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kríaði út sigur

Read Full Article →

KR sigraði ÍA 4-3 í markaleik í vesturbæ Reykjavíkur í kvöld. Ísak Máni Guðjónsson kom ÍA í 1-0 á 12. mínútu en Arnór Ingvi Traustason jafnaði fyrir KR á 15. mínútu í 1-1. Ómar Björn Stefánsson kom Skagamönnum yfir á ný í 2-1 á 16. mínútu en Luke Rae jafnaði í 2-2 fyrir KR 16 mínútum síðar. Aron Sigurðarson kom svo KR yfir í fyrsta sinn í leiknum þegar hann skoraði á 61. mínútu og breytti stöðunni í 3-2. ÍA jafnaði þó leikinn á ný þegar Rúnar Már Sigurjónsson skoraði þriðja marka Skagamanna á 64. mínútu. Það var svo sjö mínútum fyrir leikslok að Aron Sigurðarson skoraði annað mark sitt og kom KR í 4-3. Þetta var ellefta mark Arons í deildinni í ár, en hann er næstmarkahæstur, einu marki á eftir Elíasi Má Ómarssyni í Víkingi sem hefur skorað 12 mörk. Eiður Gauti Sæbjörnsson gerði þó endanlega út um leikinn með marki í blálok uppbótartímans og 5-3 urðu úrslitin. KR hefur nú 28 stig í 2. sæti Bestu deildarinnar, sex stigum á eftir toppliði Víkings. Fram er svo í 3. sæti með 23 stig en hefur leikið einum leik færra en Víkingur og KR. ÍA er í 6. sæti með 15 stig og hefur líka leikið einum leik færra en efstu liðin tvö.

Share this article