Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 38 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Vespan reyndist ljóslaus, óskráð og enn fremur stolin Þorgils Jónsson Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í dag afskipti af manni á vespu. Sá reyndist undir áhrifum fíkniefna og með fíkniefni á sér. Þá var vespan ljóslaus, óskráð og stolin í ofanálag. Í dagbók lögreglu segir að auk þess hafi fimm ökumenn verið stöðvaðir undir áhrifum fíkniefna. Tveir þeirra voru réttindalausir. RÚV / Alexander Kristjánsson Fyrir 15 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Varnarmál Stóraukning í flugferðum Rússa Rússneskum hervélum sem birtast óvænt í lofthelgi NATO-ríkja hefur fjölgað mjög á undanförnum árum. Hervélar NATO voru sendar á móti óþekktum vélum yfir 500 sinnum árið 2025. Fyrir 15 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Popptónlist Clive Davis er látinn Tónlistarstjórinn goðsagnakenndi Clive Davis er látinn, 94 ára að aldri. Hann gerði tónlistarfólk eins og Arethu Franklin og Bruce Springsteen að stórstjörnum. Fyrir 35 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Kjaraviðræður flugvirkja og Icelandair strand Slitnað hefur upp úr kjaraviðræðum flugvirkja og Icelandair. Fundað var í húsakynnum ríkissáttasemjara í dag. Ekki liggur fyrir hvort gripið verður til verkfallsaðgerða. Fyrir 45 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Vinsældir Kvennó, FG og MR aukast Flestir verðandi framhaldsskólanemar völdu Verzló, Tækniskólann og Kvennó sem sitt fyrsta val. Vinsældir Verzló og MK dvína milli ára en fleiri sóttu um í FG og MR. Í heildina hlutu 5.152 skólavist í framhaldsskóla. Fyrir 52 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Skortir samræmingu í myglugreiningum Réttindi starfsfólks sem veikist vegna óheilnæms húsnæðis á vinnustað eru óljós. Helsti vandinn er að sanna orsakatengsl milli veikinda og rakaskemmda og myglu segir líffræðingur. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Deilur og stríð 92% Ísraelsmanna telja að Íran hafi sigrað 92 prósent aðspurðra í nýrri könnun í Ísrael segja að Íran hafi borið sigur úr býtum í stríðinu þar. Meirihluti Bandaríkjamanna telur að stríðið hafi haft neikvæð áhrif. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögregla lýsir eftir Ernu Athichu Jónsdóttur Alexander Kristjánsson Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ernu Athichu Jónsdóttur, 17 ára. Í tilkynningu frá lögreglu segir að Erna, sem er með brún augu og sítt hár með ljósum strípum, sé grannvaxin og 170 cm á hæð. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ernu, eða vita hvar hana er að finna, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112. Aðsend Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Drop P frá Gróu er plata vikunnar Það eru að verða tíu ár síðan hljómsveitin Gróa pönkaði sig í gang og í fyrra sendi hún frá sér sína þriðju breiðskífu sem heitir Drop P. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Oddviti sjálfkjörins lista ráðin sveitarstjóri Oddviti framboðs sem var sjálfkjörið til sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps hefur verið ráðin sveitarstjóri. Hún segist frekar líta á starfið sem faglegt en pólitískt. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Spánn Fyrrverandi ráðherra í 24 ára fangelsi fyrir spillingu Fyrrverandi samgönguráðherra Spánar hefur verið dæmdur í 24 ára fangelsi fyrir spillingu. Aðstoðarmaður hans fékk 19 ár. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Ríkisstarfsmenn sviptir réttindum með lagabreytingu Lífeyrir opinberra starfsmanna var skertur verulega þegar lífeyriskerfi þeirra var gert sambærilegt því sem þekkist á almennum markaði. Fyrrverandi ráðherra segir ríkið fá hundrað milljarða króna vanda í fangið þegar niðurstaða fáist í málinu. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Messi klúðraði vítaspyrnu Argentína og Austurríki mætast klukkan 17:00 í fyrsta leik dagsins í beinni á RÚV 2. Lionel Messi getur orðið markahæstur í sögu HM skori hann í dag. Hann hefði geta slegið metið á 9. mínútu en skaut fram hjá markinu úr vítaspyrnu á 9. mínútu. Framundan eru svo leikir Frakklands og Írak, Noregs og Senegal og Jórdaníu og Alsír. Stofan er á dagskrá RÚV 2 klukkan 20:30 og svo aftur eftir leik Frakka og Íraka. FRÉTTAVAKT Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Veður Börn fundust látin í bifreið í næstum fjörutíu stiga hita Björn Malmquist Tvö börn, tveggja og fjögurra ára gömul, fundust látin í bifreið foreldra sinna í bænum Carpentras í suðurhluta Frakklands í dag. AFP fréttastofan hefur eftir rannsóknardómara í bænum að börnin hafi að líkindum dáið vegna of mikils hita, en hitastigið í Carpentras hefur verið nálægt fjörutíu gráðum í dag, rétt eins og víða annars staðar í Frakklandi. Ekki er ljóst hvers vegna börnin voru í bifreiðinni. Rauðar viðvaranir eru í gildi víða um Frakkland og í nágrannaríkjunum vegna hitabylgjunnar sem nú gengur yfir Evrópu. Víða er búist við um og yfir fjörutíu stiga hita í dag og næstu daga. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Schlotterbeck úr leik hjá Þjóðverjum Einar Örn Jónsson Þýski varnarmaðurinn Nico Schlotterbeck er með rifið liðband í ökkla og er úr leik á HM. Hann fór meiddur af velli í sigri liðsins á Fílabeinsströndinni og er á heimleið. Meiðsli Schlotterbeck eru slæm fyrir þýska liðið því hann er eini örvfætti miðvörður liðsins. Antonio Rüdiger kemur væntanlega í byrjunarlið Þýskalands í stað Schlotterbeck, en hann er réttfættur. „Ég þarf smá tíma til að vinna úr þessum tíðindum og ræði þau síðar,“ sagði Schlotterbeck á Instagram í dag. „Það mikilvægasta er liðið, það á skilið stuðning allra Þjóðverja. Stöndum saman og sýnum að við stöndum að baki liðinu á góðum og erfiðum augnablikum,“ bætti hann við. Schlotterbeck fær aðhlynningu í leiknum gegn Fílabeinsströndinni. EPA / EDUARDO LIMA Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Ferðalangar ekki lengur sjúkratryggðir utan EES Frá áramótum verða ferðalangar ekki lengur tryggðir gagnvart kostnaði vegna veikinda og slysa sem þeir verða fyrir utan EES. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Með þrastarhreiður í beinu streymi frá pallinum Þrastafjölskylda hefur gert sig heimakæra á pallinum hjá fjölskyldu í Garðabæ. Komið hefur verið upp myndavél ofan við hreiðrið þar sem hægt er að fylgjast með fuglunum í beinu vefstreymi. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tveimur kærum vegna kosninga vísað frá Brynjólfur Þór Guðmundsson Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Eyja- og Miklaholtshreppi í maí standa. Þetta varð ljóst þegar úrskurðarnefnd kosningamála vísaði frá tveimur kærum sem bárust vegna framkvæmdar kosninganna. Efni annarrar kærunnar var að ekki hefði verið rétt staðið að talningu varamanna í sveitarstjórn. Úrskurðarnefndin vísaði því á bug. Í hinni kærunni voru gerðar athugasemdir við auglýsingu á niðurstöðum kosninganna og að atkvæði væru ekki endurtalin, og þess krafist að úrskurðað yrði um hæfi eins kjörstjórnarfulltrúa hvers maki sóttist eftir endurkjöri í sveitarstjórn. Þeirri kæru var vísað frá þar sem kærufrestur var runninn út þegar kæran barst. Umferðarskilti í Eyja- og Miklaholtshreppi. RÚV / Halla Ólafsdóttir Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Á þriðja hundrað umferðarlagabrota á Akureyri um helgina Átta líkamárásir og á þriðja hundrað umferðarlagabrota komu á borð lögreglu á Akureyri um helgina. Sá sem hraðast ók var gripinn á 137 kílómetra hraða. Viðburðir á Bíladögum gengu vonum framar að mati stjórnarmanns í Bílaklúbbi Akureyrar Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Messi getur eignast HM-metið einn í dag Argentína mætir Austurríki í fyrsta leik dagsins á HM í fótbolta. Liðin mætast klukkan fimm í dag og getur Lionel Messi slegið enn eitt metið. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps undir Höfðatorgi Þrír eru ákærðir fyrir tilraun til manndráps með því að aka bifreið á mann á mikilli ferð, berja hann ítrekað með óþekktu áhaldi og stinga. Brotaþoli fer fram á 10 milljónir króna í miskabætur. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópa Rauð viðvörun þegar hitabylgjan fer yfir Bretlandseyjar Breska veðurstofan hefur gefið út rauða viðvörun vegna hita. Viðbúið er að hiti nái allt að 39 stigum síðar í vikunni. Hiti hefur farið yfir 40 stig víða í Evrópu. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Fyrstu hvalirnir á leið í land Hvalur 9 hefur veitt tvo hvali og er á leið með þá í land. Þetta eru fyrstu hvalirnir sem hafa verið veiddir við Ísland frá árinu 2023. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Náttúrufræðibraut ekki fjölmennust í fyrsta sinn í áratug Flestir sem brautskráðust úr menntaskóla í fyrra útskrifuðust af almennum eða opnum brautum. Þeim hefur farið verulega fjölgandi síðasta áratug. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Valur fékk ekki sæti í Meistaradeildinni Einar Örn Jónsson EHF hefur gefið út hvaða lið taka þátt í Meistaradeild karla í handbolta á næstu leiktíð. Valsmenn höfðu falast eftir sæti sem Íslandsmeistarar, en fjölgað verður í 24 lið í deildinni fyrir næsta vetur. 27 lið, frá þjóðum með nægileg stig á styrkleikalista EHF, vildu fá sæti í stækkaðri deild en Valur, Tatabanya frá Ungverjalandi og Elverum frá Noregi fengu ekki sæti og leika í Evrópudeildinni þess í stað. Nóg verður þó af Íslendingaliðum í deildinni á næsta vetri. Barcelona, núverandi Evrópumeistari, Magdeburg, Sporting Lissabon, Melsungen, Porto og Kristianstad eru öll með landsliðsmenn innanborðs og keppa í deild þeirra bestu næsta vetur. Valur er Íslandsmeistari en fékk ekki sæti í Meistaradeildinni Mummi Lú Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Halda Messi, Mbappe og Haaland áfram að skora? Fjórir leikir eru á dagskrá á HM karla í fótbolta í dag. Stórstjörnurnar Lionel Messi, Kylian Mbappe og Erling Braut Haaland skoruðu allir í fyrsta leik. Hvað gerist í dag? Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Filippseyjar Þrír drepnir í skotárás í menntaskóla Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Skjáskot úr myndskeiði sem tekið var utan við skólann eftir skotárásina. AP/James Daantos / James Daantos Þrír unglingar féllu og fi