Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vélmenni muni leysa af hólmi 700 þúsund stöðugildi

  • What: China's gig economy is growing rapidly
  • Impact: Automation is changing the labor market
Read Full Article →

Áhyggjur fara vaxandi af áhrifum sjálfvirknivæðingar á kínverskan vinnumarkað, þar sem sífellt stærri hluti launafólks starfar í svokölluðu „gigg-hagkerfi“ (e. gig economy). Financial Times greinir frá . Samkvæmt innlendum rannsóknum mun fjöldi gigg-starfsmanna í Kína ná um 320 milljónum á þessu ári, samanborið við 200 milljónir fyrir fimm árum. Umræddur hópur stendur nú undir um 40% af allri borgarvinnu í landinu, og samanstendur meðal annars af sendlum, bílstjórum og öðrum sem starfa á tímabundnum grundvelli. Þróunin kemur samhliða aukinni áherslu kínverskra yfirvalda á vélmenna- og sjálfvirknivæðingu, sem lykilþátt í framtíðarvexti hagkerfisins. Netverslunarrisinn JD.com er meðal þeirra fyrirtækja sem þegar eru farin að undirbúa slíkar breytingar. Richard Liu, stofnandi og stjórnarformaður félagsins, sagði um helgina að vélmenni muni fyrr eða síðar taka við stórum hluta pakkasendinga fyrirtækisins. Þá hefur fyrirtækið sömuleiðis samið við um við 120 menntastofnanir um endurmenntun fyrir starfsfólk sitt. Er þar hugmyndin að starfsfólk sem áður gegndi sendilstörfum, muni nú fá þjálfun í viðhaldi á vélmennum, og öðrum tæknistörfum tengdum sjálfvirknivæðingu vinnustaðarins. „Vélmenni munu sannarlega koma til með að afhenda sendingar, en ég vil ekki sjá 700 þúsund bræður mína fara án máltíðar eða án starfs.“ er haft eftir Liu. Þrátt fyrir að félagið hafi ekki gefið upp tímaramma fyrir innleiðinguna gefa fyrirmæli stjórnenda og umfang endurmenntunaráforma til kynna, að fyrirtækið lítið á breytinguna sem raunhæfan hluta af framtíðarrekstri sínum. Málið hefur vakið athygli þar sem atvinnuleysi meðal ungs fólks í Kína mælist enn hátt, og hefur á það verið bent að sjálfvirknivæðing geti aukið þrýsting á þann hluta vinnumarkaðarins, sem þegar búi við mest óöryggi.

Share this article