Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bretar setja 50 milljónir punda í jarðmálma

  • What: UK invests £50 million in rare earth mineral production
  • Impact: Aims to reduce reliance on global supply chains and boost domestic production
Read Full Article →

Bresk stjórnvöld ætla að verja 50 milljónum punda í átak til að efla innlenda framleiðslu sjaldgæfra jarðmálma. Með fjárfestingunni horfir breska ríkisstjórnin til þess að Breta minna háða alþjóðlegum aðfangakeðjum og styrkja efnahagslega sjálfbærni landsins. Markmiðið er að efla vinnslu og endurvinnslu jarðmálma sem notaðir eru í framleiðslu fjölbreyttra tækja, allt frá snjallsímum og ísskápum til rafhlaðna í rafbílum. Fjármagnið er viðbót við rúmlega 200 milljónir punda sem þegar hafa verið settar í greinina. Sagt er í frétt Reuters að verkefnið verði formlega kynnt á rannsóknar- og þróunarmiðstöð í norðausturhluta Englands í dag, þar sem unnið er að tækni til endurvinnslu og úrvinnslu málma. Bresk stjórnvöld hyggjast með þessu tryggja aðgengi að mikilvægum jarðmálmum, enda fer eftirspurn vaxandi. Kína hefur enn sem er yfirburðastöðu á markaðnum og stendur að 70% af námuvinnslu sjaldgæfra jarðmálma og um 90% af úrvinnslu þeirra. Nýja fjárfestingin skiptist í þrjá hluta: 20 milljónir punda fara í framleiðslu segla sem meðal annars eru notaðir í rafbílaframleiðslu, 25 milljónir fara í hraðalsverkefni til að styðja við uppbyggingu verkefna í greininni og allt að 5 milljónir í að laða að einkafjárfestingu. Bretar hafa auk þess aukið samstarf við ríki á borð við Bandaríkin og Suður-Kóreu til að styrkja aðfangakeðjur og framleiðslugetu.

Share this article