- What: Company news about AI-driven healthcare solutions
- Impact: No direct security impact
Öll höfum við orðið vör við hversu hraðar breytingar eru að eiga sér stað í heimi alþjóðaviðskipta um þessar mundir. Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Nox Medical, segir að hjá félaginu hafi þessar breytingar helst birst í breyttum þörfum viðskiptavina, nýjum áskorunum vegna hækkandi tolla og bresta í aðfangakeðjum. „Fullkomin óvissa virðist oft eina vissan en í þannig umhverfi skipta öguð og skipulögð vinnubrögð miklu máli og einnig lausnamiðað hugarfar við nálgun verkefna.“ Fyrir komandi vaxtarskeið félagsins muni áfram reyna á að það virki nýsköpunarkraftinn í gegnum rannsóknir og þróun. Nýjar lausnir og vörur félagsins, sem knúnar verða með gervigreind að miklu leyti, feli í sér byltingarkenndar nýjungar til að hjálpa fólki að ná betri svefnheilsu. „Lykillinn að því að ná árangri í heilbrigðistækni með gervigreind er að tryggja ábyrga notkun tækninnar sem byggir á rauntímagögnum. Nú þegar hefur FDA tilnefnt Nox sem dæmi um vel heppnaða gervigreindarlausn fyrir lækningatæki, sem er mikilvægur gæðastimpill. Þá hefur Evrópusambandið einnig staðfest gervigreindarlausnir Nox sem tilbúnar fyrir markaðinn (e. market ready),“ segir Hulda. Dýrmætustu einkaleyfi Nox sé verið að byggja upp á Íslandi. Hjartað í rannsóknum og þróun hjá fyrirtækinu verði áfram á Íslandi og lykilþáttur í vaxtastefnunni sem er framundan. Byggt á traustum grunni Áframhaldandi fjárfestingar í rannsóknum og þróun er að sögn Hulda leiðin til að viðhalda samkeppnisforskoti og ná frekari markaðshlutdeild í takti við markmið. „Eins og hefur verið reyndin frá upphafi fyrirtækisins þá skiptir samstarf við íslenskt vísindasamfélag miklu máli. Nýjungar félagsins verða þróaðar í náinni samvinnu við það, rétt eins og gert hefur verið til þessa með góðum árangri. Í gegnum samstarfið styrkist íslenska þekkingarhagkerfið og nýir kraftar leysast úr læðingi.“ Eins og tuttugu ára afmælisár Nox sé til marks um þá sé nýsköpunarstarf langtíma verkefni sem ljúki aldrei. „Á traustum grunni sem byggður hefur verið á æviskeiði fyrirtækisins er hægt mæta áskorunum framtíðarinnar þegar kemur að bættri svefnheilsu og að leysa ný og flókin vandamál með hugvitið að vopni. Það eru bjartir tímar framundan og Nox mun kappkosta að halda áfram metnaðarfullu rannsóknar- og þróunarstarfi sínu til að hjálpa fólki að sofa vel.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .