Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þrír drepnir í skotárás í menntaskóla

  • What: School shooting in the Philippines
  • Impact: No security relevance
Read Full Article →

Skjáskot úr myndskeiði sem tekið var utan við skólann eftir skotárásina.AP/James Daantos / James Daantos Þrír unglingar féllu og fimm særðust í skotárás í menntaskóla í borginni Tacloban í Filippseyjum í morgun. Hinir grunuðu eru 14 og 15 ára gamlir nemendur skólans sem sagðir eru hafa hafið skothríð „af handahófi“ innan veggja skólans. Yfirmaður hjá filippseysku lögreglunni tjáði fréttastofu AFP að samkvæmt fyrstu upplýsingum hafi einelti verið kveikjan að árásinni. Til rannsóknar sé hvar árásarmennirnir komust yfir skotvopn og hvernig þeir komu þeim inn í skólann. Samkvæmt frétt AFP eru skotárásir í skólum afar sjaldgæfar í Filippseyjum.

Share this article