Íslandsmótinu í holukeppni lauk í dag. Birgir Björn Magnússon varð Íslandsmeistari í karlaflokki eftir bráðabana við Guðmund Árna Kristjánsson á Hólmsvelli. Í kvennaflokki var leikið á Urriðavelli. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK hafði betur gegn Perlu Sól Sigurbrandsdóttur úr GR í undanúrslitum og Heiða Rakel Rafnsdóttir úr Golfkúbbi Mosfellsbæjar sigraði Fjólu Margréti Viðarsdóttur. Það voru því Guðrún og Heiða sem léku til úrslita. Þær unnu hvor sína holuna í upphafi en þaðan reyndist Guðrún Brá seigari og vann næstu tvær holur. Þar á eftir voru þær jafnar á tveimur en Guðrún Brá tók næstu tvær. Guðrún sigldi sigrinum svo í höfn á 13. holu þegar hún hafði unnið sex holur. Hér má sjá myndefni af mótinu og viðtal við Guðrúnu Brá.