Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Karl og kona á fertugsaldri handtekin vegna innbrots í Skipholti

Read Full Article →

Lögregla var með aðgerðir í Skipholti 9 í dag. Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir karl og konu á fertugsaldri hafa verið handtekin í aðgerðunum. Þau hafa verið vistuð í fangageymslu. Samkvæmt frétt Vísis voru maður og kona leidd út í handjárnum. Rauðir blettir voru á peysu konunnar og ýmsum munum sem lágu á víð og dreif við innganginn. Skúli segir fólkið hafa brotið rúðu í hurð hússins til að komast inn. Það kunni að skýra blóðslettur á fötum konunnar og á vettvangi. Lögregla hafi verið í næsta húsi þegar tilkynning um innbrotið barst klukkan 12:08 og viðbragð hafi því verið skjótt. Helena Rós Sturludóttir upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra staðfestir að sérsveit Ríkislögreglustjóra hafa veitt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu liðsinni í aðgerðunum. Hann segir bæði konuna og manninn vera Íslendinga. Þau eigi langan brotaferil að baki og séu í óreglu. Fréttin verður uppfærð eftir því sem upplýsingar berast.

Share this article