Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Saga fyrsta Íslendingsins sem spilaði á HM: „Óeðlilegt að öllu leyti“

  • What: Aron Jóhannsson became the first Icelander to play in the World Cup
  • Impact: His decision to play for the US caused controversy in Iceland
Read Full Article →

Aron Jóhannsson er fyrsti Íslendingurinn sem spilaði á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Hann valdi að leika fyrir Bandaríkin og ákvörðun hans olli afar miklu fjaðrafoki. Margur landinn hneykslaði sig á Aroni en aðrir skildu hann ansi vel, enda hafði Ísland aldrei komist á stórmót í fótbolta þegar hann valdi Bandaríkin. Hér segir Aron sögu sína í löngu viðtali við Gunnlaug Jónsson í Góð íþrótt, Gulli betri. Hvernig gerðist þetta? Af hverju gerðist þetta? Hver voru viðbrögðin? Þáttinn í heild sinni má hlusta á hér: Fótboltakappinn Aron Jóhannsson varð yfir nóttu umdeildasti íþróttamaður Íslands þegar hann valdi Bandaríkin fram yfir Ísland. Hér segir hann sína sögu. Af hverju gerði hann þetta? Hvernig var að vera „svikarinn“ Aron Jóhannsson? KSÍ æfir - Aron kemur af fjöllum Ákvörðun Arons olli miklu fjaðrafoki. Knattspyrnusambandið sjálft var eiginlega furðu lostið. Formaðurinn Geir Þorsteinsson var afar harðorður og sagði ákvörðunina óeðlilega að öllu leyti. Aron vissi ekki af umræðunni þá og var að heyra fyrst núna af þessum ummælum. „Ég vissi þetta ekki. Eins og þú heyrir á mér þá var ég ekkert að pæla í þessu,“ segir Aron um umræðuna hér á landi eftir ákvörðun hans. KSÍ-liðar töluðu um að þeir töldu að peningar hefðu ráðið för hjá Aroni. Geir Þorsteinsson þáverandi formaður KSÍ sagði til dæmis: „Ég get ekki virt þessa ákvörðun því ég tel að þetta sé ekki rétt. Þetta gengur þvert á eðli knattspyrnulandsliða, í keppni landsliða. Þetta er óeðlilegt að öllu leyti.“ Hér að neðan má sjá fréttatímann þegar að Aron valdi Bandaríkin. Fótboltakappinn Aron Jóhannsson varð yfir nóttu umdeildasti íþróttamaður Íslands þegar hann valdi Bandaríkin fram yfir Ísland. Hér segir hann sína sögu. Af hverju gerði hann þetta? Hvernig var að vera „svikarinn“ Aron Jóhannsson? Þyrfti ekki að ryksuga sem atvinnumaður Aron fæddist í Mobile, Alabama í Bandaríkjunum árið 1990 þegar foreldrar hans voru þar í námi. Það var mjög umdeilt þegar hann valdi að spila fyrir bandaríska landsliðið sumarið 2013. Í þættinum er rifjað upp hvernig strákur úr Grafarvogi, sem þráði að verða atvinnumaður í knattspyrnu, kemst á samning í Danmörku og slær þar í gegn vorið 2012. Þá byrjaði Jurgen Klinsmann landsliðsþjálfari Bandaríkjanna að heyra reglulega í honum að fá hann til að spila fyrir sitt landslið. „Í rauninni þegar ég flyt til Íslands þá flytjum við í Breiðholtið, þannig að minn fótboltaferill byrjaði í raun þegar ég var í Leikni,“ en Aron flutti í Grafarvoginn um sex ára aldur. Hann ætlaði sér alltaf að verða atvinnumaður. „Ég man ekki eftir þessu en maður hefur heyrt sögur. Mamma var alltaf að biðja mig um að ryksuga heima þegar ég var 10–12 ára. Þá var ég að segja að ég gæti ekki beðið eftir að verða atvinnumaður í fótbolta þannig að ég þyrfti ekki að ryksuga heimilið. Þannig þetta var alltaf innprentað inn í mig.“ Einsdæmi hér heima en þekkt úti Aron segir að bandaríska liðið á þessum tíma hafi verið mjög alþjóðlegt, ef svo má að orði komast. Þýski þjálfarinn Jurgen Klinsmann leitaði mikið út fyrir Bandaríkin í undirbúningi sínum fyrir HM 2014. „Við vorum með fullt af mönnum sem fæðast erlendis sem eiga afa frá Bandaríkjunum eða þeir fæðast í Bandaríkjunum og flytjast til Noregs eða Þýskalands. Það var mikið af mönnum sem áttu pabba eða afa sem voru hermenn í Þýskalandi. Þeir voru þá í raun Þjóðverjar. Þetta var ekkert einsdæmi hjá bandaríska landsliðinu, miðað við að þetta væri einsdæmi hérna heima hjá Íslandi.“ Fyrsta landsliðsferðin til Bosníu var ein sú eftirminnilegasta segir Aron. Að lokum lék hann 19 landsleiki og skoraði fjögur mörk. Allir komu þeir undir stjórn Klinsmanns á árunum 2013-15. Ekki auðveld ákvörðun Aron hafði áður farið í menntaskóla til Bandaríkjanna og lék þar í IMG akademíunni í Flórída. Sú akademía hefur framleitt mikið af bandarískum landsliðsmönnum. „Ég hef alltaf átt auðvelt með að fara eitthvert að kynnast fólki og spjalla. Að fara inn í nýjan hóp og vera ekkert lítill í mér. Meðal annars fór ég til Bandaríkjanna í menntaskóla og bjó þar með þremur öðrum strákum. Það var ekkert mál að fara og kynnast hópnum.“ „Þetta var ekkert auðveld ákvörðun. Ég er bara þannig að þegar maður er búinn að taka ákvörðun þá lítur maður ekkert til baka og er að sjá eftir því. Ég horfi fram á veginn.“ HM 2014 - ekkert allir sem elskuðu Bandaríkin Að lokum er Aron hluti af 23 manna HM hópi Bandaríkjanna. Það er ekkert grín og til að mynda var sóknarmaðurinn Landon Donovan, einn besti leikmaður í sögu Bandaríkjanna, skilinn eftir heima. Aron segir tilfinninguna að vera hluti af bandarísku liði á HM í Brasilíu svakalega. Gæslan var mikil enda margar þjóðir sem hugsa ekki hlýtt til Bandaríkjanna. „Tilfinningin var svakaleg. Þegar við keyrðum frá flugvellinum upp á hótel. Það var bara eins og við værum að fara í stríð. Ég hef aldrei séð svona mikið af hermönnum. Það eru ekkert allar aðrar þjóðir sem elska Bandaríkin. Þannig að gæslan var svakaleg.“ Liðsmenn eltir út í búð Í eitt sinn voru liðsmenn eltir og Aroni stóð ekki á sama. „Ég man eftir einu atriði. Það var passað mikið upp á okkur. Við máttum ekkert mikið fara út og kíkja í búðir. Eitt skiptið ákváðum við 4–5 leikmenn að fara út og fá okkur ís einhvers staðar. Við finnum alltaf fyrir því að það eru tveir karlar að elta okkur.“ „Við erum alltaf að líta um öxl og okkur leið ekkert rosalega vel. Þetta voru svona karlar sem voru að fela sig bak við bíla og voru 50-100 metra fyrir aftan okkur.“ „Þannig að við byrjum að labba hraðar og erum eiginlega að skíta í okkur. Svo komum við á þessa ísbúð og förum að hringja í liðsstjórann hjá okkur. Við sögðum honum að þeir þyrftu að senda einhvern til okkar, því það væru menn á eftir okkur. Hann segir „heyrðu, slakið á. Þetta eru secret service.““ Þarna var leyniþjónusta Bandaríkjanna með vopnaða menn sem fylgdu leikmenn hvert fótskref. Var hálfdofinn í Brasilíu Það var á brattann að sækja þar sem Bandaríkin voru í dauðariðli mótsins. Þýskaland og Portúgal voru meðal sterkustu þjóða Evrópu og Gana var með afar sterkt lið á þessum tíma. Aron var hálf meiddur úti og tók þrjár verkjatöflur fyrir hverja æfingu. „Maður var hálfdofinn og svo reyndi maður sem minnst að segja sjúkraþjálfurum frá því hve alvarleg meiðslin voru. Maður vildi láta það líta út fyrir að maður væri heill en að sama skapi gat maður ekki beitt sér eins og maður gat á æfingum og í æfingaleikjum. En svo kemur kallið að koma inn á og þá finnur maður ekki fyrir neinu. Það er adrenalínið.“ Aron kom inn á gegn Gana og hjálpaði liðinu að komast áfram í 16-liða úrslit. Liðið vann 2-1 sigur. Hér má sjá fréttatímann eftir að Aron lék gegn Gana. Fótboltakappinn Aron Jóhannsson varð yfir nóttu umdeildasti íþróttamaður Íslands þegar hann valdi Bandaríkin fram yfir Ísland. Hér segir hann sína sögu. Af hverju gerði hann þetta? Hvernig var að vera „svikarinn“ Aron Jóhannsson? Aðalvonbrigðin Belgíuleikurinn Hins vegar kom Aron ekki meira við sögu á mótinu. Bandaríkin töpuðu 2-1 gegn Belgíu í 16-liða úrslitum. Sá leikur var helstu vonbrigðin segir Aron. „Aðalvonbrigðin voru í Belgíuleiknum. Þar fannst mér ég eiga að koma inn á en ég náði varla að æfa og var mikið að reyna að taka verkjatöflur til að æfa. Hann hefur fengið skilaboð frá sjúkraþjálfurum um að ég sé ekki 100% heill.“ Félagar Arons skelltu sér út til Brasilíu að fylgjast með. Hér má sjá umfjöllun RÚV eftir leikinn um þá. Fótboltakappinn Aron Jóhannsson varð yfir nóttu umdeildasti íþróttamaður Íslands þegar hann valdi Bandaríkin fram yfir Ísland. Hér segir hann sína sögu. Af hverju gerði hann þetta? Hvernig var að vera „svikarinn“ Aron Jóhannsson? Eina sem hann á, á Alfreð Aron grínast með það að hann sé eini Íslendingurinn sem hefur unnið leik á HM. „Ég og Alfreð Finnboga erum góðir vinir. Þetta er það eina sem ég hef á hann. Ég er sá eini sem hefur unnið leik. Alfreð er alltaf að monta sig af því að hafa skorað. En ég segi við hann að þetta sé liðsíþrótt og að ég sé sá eini sem hafi unnið.“ Sáttur með ákvörðunina og sér ekki eftir neinu Nú þrettán árum síðar er Aron sáttur með ákvörðunina og sér ekki eftir neinu. Þó hefði auðvitað verið gaman að fara á stórmótin með Íslandi 2016 og 2018. „Auðvitað er ég sáttur við þessa ákvörðun. Ég er alveg smá ævintýragjarn. Sérstaklega þegar ég var yngri. Að gera hluti sem maður á ekki að vera að gera. Að taka ákvarðanir og prófa eitthvað.“ „Ég hef aldrei séð eftir þessu. Auðvitað hefði verið gaman að vera með íslenska landsliðinu á EM og HM en ég er auðvitað bara ánægður að þeir hafi líka fengið að upplifa það líka. Og þjóðin. Ég var mikill stuðningsmaður og horfði á leikina með einhverjum þúsundum manna, annaðhvort heima eða á Arnarhóli.“ „Maður var smá stjarna í Bandaríkjunum. Ég get ímyndað mér að þetta sé núna tífalt.“ Hvernig er að vera fyrsti Íslendingurinn til að hafa spilað á HM? En hvað finnst Aroni í dag um að hafa verið fyrstur til að ná þessum áfanga? „Ég pæli rosalega lítið í því. Á þeim tíma var þetta auðvitað gaman. Svo þegar dóttir mín situr við hliðina á mér þá spyr hún mig stundum að þessu, og fólk. Ég pæli voða lítið í þessu. Kannski þegar maður verður eldri og montnari þá verður þetta kannski skemmtilegra. Ég hef einhvern veginn aldrei verið svona. Þú talaðir um þrennuna á móti Horsens. Þá auðvitað tók ég boltann. Svo kom í ljós tíu árum seinna að Bjarki Gunnlaugs væri með boltann uppi á skrifstofu hjá sér. „Hann spurði mig hvort ég vildi ekki eiga hann. Ég sagði að ég hefði ekkert við hann að gera og þyrfti ekkert að eiga hann. Þá tók dóttir mín hann og passaði að hann yrði á heimilinu. Ég hef aldrei verið sentimental yfir svona,“ sagði Aron að lokum. Viðtalið við Aron er hluti af innslögum Gunnlaugs Jónssonar sem birtast í Sportrásinni á Rás 2 á sunnudögum. Þáttur Gunnlaugs ber heitið Góð íþrótt, gulli betri.

Share this article