Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fjallkonan notuð í auglýsingaskyni

Read Full Article →

Leik- og söngkonan Elín Sif Halldórsdóttir kemur fram sem fjallkona Reykjavíkurborgar í myndskeiði á Instagram-reikningi Blue lagoon skin science. Elín Hall er andlit fyrirtækisins. Myndskeið sem hefur nú verið fjarlægt. Í myndskeiðinu er Elín Hall í hlutverki fjallkonu í skautbúningi í Alþingisgarðinum og segir frá fjallkonunni á ensku. „Hún er tákngervingur íslenska andans, sjálfstæðis okkar og náttúrulegrar fegurðar okkar,“ segir Elín í myndskeiðinu. Í öðru myndskeiði sem Elín birti sjálf á TikTok í samstarfi við Blue Lagoon Skin Science sýnir hún frá deginum sínum sem fjallkonan og auglýsir vörur Bláa lónsins. Þá sýnir hún frá því að Bláa lónið hafi farðað hana. Fjallkonan er tákngervingur Íslands. Hvorki embætti forseta Íslands né forseti Alþingis vildu tjá sig um málið. Það vildi Blue lagoon Skin Science ekki heldur. Elín Hall segir Blue lagoon hafa sagt sér að fyrirtækið hefði fengið leyfi fyrir myndskeiðinu. „Skilningur minn, umboðsmanns míns og Bláa lónsins var sá að þetta væri í lagi,“ segir Elín Hall í samtali við fréttastofu. „Um leið og maður kemst að því að einhver sé ósáttur þá er myndbandið auðvitað tekið niður,“ segir hún um myndskeiðið sem Blue Lagoon Skin Science hefur fjarlægt af samfélagsmiðlum. Elín Hall kemur fram í hlutverki fjallkonunnar í myndskeiði á Instagram-reikningi Blue lagoon skin science sem hefur nú verið fjarlægt. Hún auglýsti vörur Bláa lónsins í öðru myndskeiði á TikTok þar sem hún sýnir frá degi sínum sem fjallkonan.Elín Hall kemur fram í hlutverki fjallkonunnar í myndskeiði á Instagram-reikningi Blue lagoon skin science sem hefur nú verið fjarlægt. Hún auglýsti vörur Bláa lónsins í öðru myndskeiði á TikTok þar sem hún sýnir frá degi sínum sem fjallkonan. Árið 2017 vakti athygli þegar Björt Ólafsdóttir, þáverandi umhverfisráðherra, klæddist kjól í þingsal frá fyrirtæki þar sem vinkona hennar er listrænn stjórnandi. Mynd af henni í kjólnum var notuð í auglýsingaskyni.

Share this article