Rússland hefur gengið frá sölu á 67% hlut í gullleitarfyrirtækinu Yuzhuralzoloto sem ríkið tók eignarnámi af milljarðamæringnum Kostantin Strukov í fyrra. Söluverðið nemur 93 milljörðum rúblna eða um 160 milljörðum króna. Kaupandinn er félagið BTS-Most Holding, sem tengist tétneska auðkýfingnum Ruslan Baisarov, og tengd félög sem buðu hæst í hollensku útboði samkvæmt frétt ríkisfjölmiðilsins Tass. Í umfjöllun Bloomberg segir að viðskiptin endurspegli hversu erfiðlega rússneskum stjórnvöldum gengur að selja eignir að andvirði milljarðar dala sem gerðar voru upptækar á síðasta ári með vísan í spillingu, ólögmæts eignarhalds eða tvöfalds ríkisfangs. Yuzhuralzoloto, sem er með starfsemi í Tsjeljabínsk rétt austur af Úralfjöllum, framleiddi 385.800 troyesúnsur af gulli í fyrra. Félagið er eitt af fimm stærstu fyrirtækjum Rússlands á sviði gullgraftar. Fjölskylda framangreinds Kostantin Strukov hafði átt námufyrirtækið í áratugi. Ríkissaksóknarar sökuðu hann í fyrra um að hafa með ólögmætum hætti eignast fyrirtækið á sama tíma og hann gegndi opinberu embætti. Ríkið þjóðnýtti í kjölfarið Yuzhuralzoloto. Strukov, sem er 67 ára, er meðlimur í stjórnarflokknum Sameinað Rússland og hefur um langt skeið setið sem þingmaður á héraðsþingi Tsjeljabínsk. Árið 2021 sæmdi Vladímír Pútín forseti hann orðu fyrir þjónustu við föðurlandið sem er viðurkenning sem er aðeins veitt til háttsettra embættismanna og leiðtoga úr atvinnulífinu fyrir framlag til efnahagslífs Rússlands og opinberrar þjónustu.