Innlent | mbl | 18.6.2026 | 16:40 Lýsa yfir þungum áhyggjum: „Verulegt ójafnvægi“ Ferjan Baldur við bryggju í Stykkishólmi. mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Tengdar fréttir Landeyjahöfn Málar dökka mynd: „Fólk er pirrað og reitt“ „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Vill að höfnin verði bætt hraðar Vestmannaeyjabær mæti afgangi Vonbrigði með svör ráðherra: „Óboðlegar aðstæður“ » Fleiri tengdar fréttir Ferðamenn á Íslandi Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Hefur ekkert með ESB að gera Myndir: Fjaran hefur breyst til frambúðar Settu met í sætanýtingu í maí Erfiðara að sjá inn í haustið » Fleiri tengdar fréttir Félag atvinnulífs í Stykkishólmi lýsir í erindi sínu yfir þungum áhyggjum vegna ákvörðunar um að stöðva áætlunarsiglingar Baldurs milli Stykkishólms og Brjánslækjar á sama tíma og ferðaþjónusta stendur sem hæst. Fram kemur að þetta sé í annað sinn á stuttum tíma sem vegið sé að atvinnulífi á svæðinu. Síðast hafi það verið gert með tillögu um afnám skelbóta en því máli hefur nú verið frestað. Frétt af mbl.is Málar dökka mynd: „Fólk er pirrað og reitt“ Greint var frá því í byrjun mánaðarins að ferjurnar Baldur og Herjólfur myndu báðar sigla til og frá Vestmannaeyjum frá og með mánudeginum 8. júní þangað til búið væri að gera við eina vél Herjólfs. Ferjan Særún hefur sinnt siglingum til Flateyjar á Breiðafirði í fjarveru Baldurs. Alvarlegar afleiðingar annars staðar „Við gerum okkur grein fyrir því að stundum þarf að bregðast hratt við til að tryggja samgöngur þar sem þörf er. Engu að síður blasir við að með þessari ráðstöfun hefur skapast verulegt ójafnvægi, þar sem lausn fyrir eitt svæði hefur í reynd valdið alvarlegum afleiðingum annars staðar. Á meðan aukin áhersla hefur verið lögð á siglingar til Vestmannaeyja hefur lykiltenging yfir Breiðafjörð verið rofin með litlum fyrirvara,” segir í erindinu, sem var sent á atvinnuvega- og innviðaráðherra, þingmenn Norðvesturkjördæmis, Vegagerðina og bæjaryfirvöld í Stykkishólmi. „Áhrifin eru þegar farin að koma skýrt fram. Fjöldi ferðamanna sem hafði skipulagt ferðalag um Breiðafjörð og Vestfirði kemst einfaldlega ekki leiðar. Þetta eru gestir sem hefðu annars dvalið á svæðinu, nýtt sér fjölbreytta þjónustu og haldið hjólum atvinnulífsins í gangi á svæðinu.” Frétt af mbl.is „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Tapa mikilvægum tekjum Fram kemur að Baldur sé lífæð svæðisins, enda hafi vegasamgöngur verið vanræktar þar lengi. „Þetta hefur bein, mælanleg áhrif á rekstur fyrirtækja í Stykkishólmi sem og svæðinu öllu. Hótel, gistiheimili, veitingastaðir, afþreyingarfyrirtæki og verslanir missa mikilvægar tekjur á þeim tíma árs sem skiptir mestu máli. Það er ljóst að slíkt tap verður hvorki bætt upp síðar né án verulegra áhrifa á afkomu margra fyrirtækja,” segir einnig í erindinu, þar sem einnig er vakin athygli á þeim skaða sem hljótist af minni fyrirsjáanleika í samgöngum og að slíkt veiki trúverðugleika þjónustunnar. Erindið í heild sinni: „Félag atvinnulífs í Stykkishólmi vill með þessu erindi lýsa yfir þungum áhyggjum vegna þeirrar ákvörðunar að stöðva áætlunarsiglingar Baldurs milli Stykkishólms og Brjánslækjar á þeim tíma sem ferðaþjónustan stendur sem hæst. Er þetta í annað sinn á stuttum tíma sem vegið er að atvinnulífinu á svæðinu, síðast með tillögu um afnám skelbóta. Þó því máli hafi verið frestað veldur það vissulega enn óvissu og óöryggi. Við gerum okkur grein fyrir því að stundum þarf að bregðast hratt við til að tryggja samgöngur þar sem þörf er. Engu að síður blasir við að með þessari ráðstöfun hefur skapast verulegt ójafnvægi, þar sem lausn fyrir eitt svæði hefur í reynd valdið alvarlegum afleiðingum annars staðar. Á meðan aukin áhersla hefur verið lögð á siglingar til Vestmannaeyja hefur lykiltenging yfir Breiðafjörð verið rofin með litlum fyrirvara. Áhrifin eru þegar farin að koma skýrt fram. Fjöldi ferðamanna sem hafði skipulagt ferðalag um Breiðafjörð og Félag atvinnulífs í Stykkishólmi lýsir í erindi sínu yfir þungum áhyggjum vegna ákvörðunar um að stöðva áætlunarsiglingar Baldurs milli Stykkishólms og Brjánslækjar á sama tíma og ferðaþjónusta stendur sem hæst. Fram kemur að þetta sé í annað sinn á stuttum tíma sem vegið sé að atvinnulífi á svæðinu. Síðast hafi það verið gert með tillögu um afnám skelbóta en því máli hefur nú verið frestað. Frétt af mbl.is Málar dökka mynd: „Fólk er pirrað og reitt“ Greint var frá því í byrjun mánaðarins að ferjurnar Baldur og Herjólfur myndu báðar sigla til og frá Vestmannaeyjum frá og með mánudeginum 8. júní þangað til búið væri að gera við eina vél Herjólfs. Ferjan Særún hefur sinnt siglingum til Flateyjar á Breiðafirði í fjarveru Baldurs. Alvarlegar afleiðingar annars staðar „Við gerum okkur grein fyrir því að stundum þarf að bregðast hratt við til að tryggja samgöngur þar sem þörf er. Engu að síður blasir við að með þessari ráðstöfun hefur skapast verulegt ójafnvægi, þar sem lausn fyrir eitt svæði hefur í reynd valdið alvarlegum afleiðingum annars staðar. Á meðan aukin áhersla hefur verið lögð á siglingar til Vestmannaeyja hefur lykiltenging yfir Breiðafjörð verið rofin með litlum fyrirvara,” segir í erindinu, sem var sent á atvinnuvega- og innviðaráðherra, þingmenn Norðvesturkjördæmis, Vegagerðina og bæjaryfirvöld í Stykkishólmi. „Áhrifin eru þegar farin að koma skýrt fram. Fjöldi ferðamanna sem hafði skipulagt ferðalag um Breiðafjörð og Vestfirði kemst einfaldlega ekki leiðar. Þetta eru gestir sem hefðu annars dvalið á svæðinu, nýtt sér fjölbreytta þjónustu og haldið hjólum atvinnulífsins í gangi á svæðinu.” Frétt af mbl.is „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Tapa mikilvægum tekjum Fram kemur að Baldur sé lífæð svæðisins, enda vegasamgöngur verið vanræktar þar lengi. „Þetta hefur bein, mælanleg áhrif á rekstur fyrirtækja í Stykkishólmi sem og svæðinu öllu. Hótel, gistiheimili, veitingastaðir, afþreyingarfyrirtæki og verslanir missa mikilvægar tekjur á þeim tíma árs sem skiptir mestu máli. Það er ljóst að slíkt tap verður hvorki bætt upp síðar né án verulegra áhrifa á afkomu margra fyrirtækja,” segir einnig í erindinu, þar sem einnig er vakin athygli á þeim skaða sem hljótist af minni fyrirsjáanleika í samgöngum og að slíkt veiki trúverðugleika þjónustunnar. Erindið í heild sinni: „Félag atvinnulífs í Stykkishólmi vill með þessu erindi lýsa yfir þungum áhyggjum vegna þeirrar ákvörðunar að stöðva áætlunarsiglingar Baldurs milli Stykkishólms og Brjánslækjar á þeim tíma sem ferðaþjónustan stendur sem hæst. Er þetta í annað sinn á stuttum tíma sem vegið er að atvinnulífinu á svæðinu, síðast með tillögu um afnám skelbóta. Þó því máli hafi verið frestað veldur það vissulega enn óvissu og óöryggi. Við gerum okkur grein fyrir því að stundum þarf að bregðast hratt við til að tryggja samgöngur þar sem þörf er. Engu að síður blasir við að með þessari ráðstöfun hefur skapast verulegt ójafnvægi, þar sem lausn fyrir eitt svæði hefur í reynd valdið alvarlegum afleiðingum annars staðar. Á meðan aukin áhersla hefur verið lögð á siglingar til Vestmannaeyja hefur lykiltenging yfir Breiðafjörð verið rofin með litlum fyrirvara. Áhrifin eru þegar farin að koma skýrt fram. Fjöldi ferðamanna sem hafði skipulagt ferðalag um Breiðafjörð og vestfirði kemst einfaldlega ekki leiðar. Þetta eru gestir sem hefðu annars dvalið á svæðinu, nýtt sér fjölbreytta þjónustu og haldið hjólum atvinnulífsins í gangi á svæðinu. Baldur er lífæð svæðisins þar sem vegasamgöngur hafa verið vanræktar lengi ,malarvegir að stærstum hluta, má þá nefna að Skógarstönd er nær ófær frá Narfeyri að Gljúfurá sökum þess. Þetta hefur bein, mælanleg áhrif á rekstur fyrirtækja í Stykkishólmi sem og svæðinu öllu. Hótel, gistiheimili, veitingastaðir, afþreyingarfyrirtæki og verslanir missa mikilvægar tekjur á þeim tíma árs sem skiptir mestu máli. Það er ljóst að slíkt tap verður hvorki bætt upp síðar né án verulegra áhrifa á afkomu margra fyrirtækja. Jafnframt viljum við undirstrika þann skaða sem hlýst af minni fyrirsjáanleika í samgöngum. Þegar þjónusta af þessu tagi er felld niður með skömmum fyrirvara veikist trúverðugleiki hennar. Ferðaskrifstofur, skipuleggjendur og einstakir ferðamenn treysta á stöðugleika og festu við skipulagningu ferða og þegar sú forsenda bregst hefur það neikvæð áhrif langt út fyrir þann tíma sem stöðvun varir. Þetta getur haft varanleg áhrif á eftirspurn og nýtingu ferjunnar í framtíðinni og þar af leiðandi afkomu fyrirtækja á svæðinu einnig. Við vekjum athygli á að sveitarfélög á svæðinu hafa þegar óskað eftir samtali við stjórnvöld til að rýna stöðuna og leita lausna. Félag atvinnulífs í Stykkishólmi styður þá kröfu heilshugar og telur mikilvægt að brugðist verði hratt og markvisst við. Að okkar mati er ekki verjandi að bæta samgöngur á einum stað með þeim hætti að það bitni á öðru svæði. Slík nálgun vinnur gegn jafnvægi, veikir atvinnulíf og getur haft langvarandi áhrif á þróun og ímynd svæðisins í heild. Við hvetjum stjórnvöld til að sýna jafnræði milli landshluta og grípa tafarlaust til aðgerða sem tryggja áframhaldandi, áreiðanlegar siglingar yfir Breiðafjörð eða finna aðrar lausnir sem draga úr þeim skaða sem þegar er orðinn og koma í veg fyrir frekara tjón. Með virðingu, Stjórn félags atvinnulífs í Stykkishólmi.“ Tengdar fréttir Landeyjahöfn Málar dökka mynd: „Fólk er pirrað og reitt“ „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Vill að höfnin verði bætt hraðar Vestmannaeyjabær mæti afgangi Vonbrigði með svör ráðherra: „Óboðlegar aðstæður“ » Fleiri tengdar fréttir Ferðamenn á Íslandi Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Hefur ekkert með ESB að gera Myndir: Fjaran hefur breyst til frambúðar Settu met í sætanýtingu í maí Erfiðara að sjá inn í haustið » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Reyndu að smygla um 100 eggjum villtra fugla Öðrum leikmanni ekki hleypt inn í Kanada Lýsa yfir þungum áhyggjum: „Verulegt ójafnvægi“ Tékkland - Suður-Afríka , staðan er 1:0 25 vildu verða sveitarstjóri Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Minni skort