Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova, seldi hlutabréf í fjarskiptafélaginu fyrir 20,1 milljón króna á mánudaginn. Hann seldi alls 5,9 milljónir hluta á genginu 3,42 krónur á hlut, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. Samkvæmt skráningarlýsingu Nova, sem fór á markað árið 2022 átti félag hans Háihamar ehf. þá 30,2 milljónir hluta í Nova. Gera má ráð fyrir að Þórhallur eigi áfram 24,3 milljónir hluta, eða um 0,7% eignarhlut sem er um 81,6 milljónir króna að markaðsvirði. Þórhallur á einnig kauprétti að 10.662 hlutum á verðinu 4,69 krónur á hlut, líkt og aðrir í framkvæmdastjórn félagsins. Nýtingartímabil kaupréttarsamningsins er frá 2026 til 2029. Þórhallur var ráðinn fjármálastjóri Nova árið 2018 en hann hafði áður starfað á fjármálasviði Eimskips og sem fjármálastjóri CreditInfo Group. Hlutabréfaverð Nova hefur lækkað um 20% í ár og stendur í 3,36 krónum á hlut. Gengi félagsins hefur aldrei verið lægra en þess má geta að útboðsgengið í frumútboði félagsins var 5,11 krónur á hlut.