Panama þurfti að lúta í lægra haldi fyrir einu marki Gana í leik liðanna sem fram fór í Toronto í Kanada í nótt. Panamamenn gerðu þó fleiri tilraunir til að skora mark en keppinauturinn eða 11 tilraunir á móti átta hjá Gana. Það var leikmaðurinn Caleb Yirenky sem skoraði markið eina fyrir Gana á 95. mínútu eða þegar komið var fram í uppbótartíma í leik liðanna. Gana mætir næst Englendingum á þriðjudaginn kl. 19:50 og verður leikurinn sýndur á RÚV 2. Panama mætir Króötum sama dag kl. 22:50 og sá leikur verður sýndur á RÚV.