Innlent | Morgunblaðið | 17.6.2026 | 16:30 Ný lög um íslenska fánann auka söluna Inga Dögg saumar íslenska fánann á Íslensku saumastofunni, þeirri einu sem saumar þjóðfánann. mbl.is/Stefán Einar Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Sala á íslenska fánanum á fánastangir hefur aukist eftir að fánalögum var breytt. Tilfinnanlegur munur er á sölunni í ár og í fyrra, miðað við maí og júní. Þetta kemur fram í samtölum Morgunblaðsins við nokkra seljendur þjóðfánans. Lagabreytingin var samþykkt í lok apríl en í henni felst að nú mega fánaeigendur hafa íslenska fánann uppi allan sólarhringinn á tímabilinu 1. maí til 15. ágúst. Áður var reglan sú að Íslendingar máttu ekki draga fánann að húni fyrr en klukkan sjö að morgni. Þeir urðu einnig að draga hann niður fyrir sólarlag eða í síðasta lagi fyrir miðnætti. Íslenska saumastofan á Hofsósi í Skagafirði er eina fyrirtækið sem saumar íslenska fánann hér á landi en Guðrún Halldóra Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri þess ræddi við Morgunblaðið. „Til góðs fyrir alla“ „Það hefur verið mikil eftirspurn undanfarið. Það er alltaf mikil sala á þessum árstíma þegar það er að koma sumar og allir fara að nota fánann meira. Það er bara mjög gleðilegt að sjá fánann víða, dag og nótt.“ Guðrún segir nýju lögin hvetja fólk til þess að nota fánann, það sé mjög jákvætt, því enginn eigi fallegri fána en Íslendingar. „Mér finnst þetta mjög jákvæð breyting á lögunum. Ég held að það sé bara til góðs fyrir alla. Það verður til þess að fólk notar hann meira,“ bætir hún við. Aðspurð segist Guðrún ekki hafa lagst yfir sölutölurnar á upphafsmánuðum sumarsins miðað við þá í fyrra en óhætt sé að fullyrða að þar sé talsverður munur á. Fleiri söluaðilar sem Morgunblaðið ræddi við nefndu 10-50% söluaukningu. Rétt er að geta þess að þá er um prentaða fána að ræða eða söluaðila sem endurselja saumaða fána Íslensku saumastofunnar. Eina fyrirstaðan í starfsemi saumastofunnar á Hofsósi eru vöruflutningar langar leiðir að sögn Guðrúnar. Það komi þó ekki í veg fyrir að viðskiptin gangi smurt; Íslandspóstur brúi bilið. Guðrún segir það alveg dásamlegt að halda úti rekstri þar í bæ. Spurð hverjir það séu sem kaupi íslenska fánann segir Guðrún að fólk alls staðar af á landinu festi kaup á honum. Þó nokkuð margar pantanir berist einnig að utan og er þá oft um að ræða Íslendinga sem hafa hreiðrað um sig í nýju landi. Einnig er vinsælt að erlendir ferðamenn í Vesturfarasetrinu kaupi íslenska fánann sem minjagrip, þar á meðal afkomendur Vestur-Íslendinga. Saumastofan saumar jafnframt fána Norðurlandanna en Guðrún segir sölu á fána Grænlands einnig hafa tekið kipp, þótt ekki sé um neina holskeflu að ræða. Eins og kunnugt er komst Grænland í hámæli nýlega þegar Bandaríkjaforseti lýsti yfir áhuga sínum á landsvæði þess. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Frumflutningur á lögum Hrólfs verði hápunkturinn Ronaldo mætir til leiks í dag Ný lög um íslenska fánann auka söluna 161 brautskráðir frá MA Naumur sigur Fylkis í Grindavík Umræðan Megi Ísland ráða sínum málum Sjálfstæði er verkefni hverrar kynslóðar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þrír áfrýja til Hæstaréttar Vongóður um að viðræður þokist áfram Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka 2030 Leggja til verulega hert skilyrði fyrir vindorkuver Mest lesið Í gær Í vikunni Valdimar lætur af störfum Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Ráðherra sagður stefna að innleiðingu „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Sérsveitin kölluð til eftir að maður ógnaði með hnífi Óskar Íslandi til hamingju með daginn Krumma bjargað sem sat fastur upp í tré Elín Sif er fjallkonan Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Stungu af með kranabíl Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Þorgerður svarar Diljá Mist Þrír fluttir með þyrlu eftir alvarlegt umferðarslys Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Kastaðist úr golfbíl eftir árekstur Lofaði konunni sinni að taka pásu Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Frumflutningur á lögum Hrólfs verði hápunkturinn Ronaldo mætir til leiks í dag Ný lög um íslenska fánann auka söluna 161 brautskráðir frá MA Naumur sigur Fylkis í Grindavík Umræðan Megi Ísland ráða sínum málum Sjálfstæði er verkefni hverrar kynslóðar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Arnhildur nýr borgarlistamaður Reykjavíkur „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Leggja til verulega hert skilyrði fyrir vindorkuver „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Mest lesið Í gær Í vikunni Valdimar lætur af störfum Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Ráðherra sagður stefna að innleiðingu „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Sérsveitin kölluð til eftir að maður ógnaði með hnífi Óskar Íslandi til hamingju með daginn Krumma bjargað sem sat fastur upp í tré Elín Sif er fjallkonan Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Stungu af með kranabíl Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Þorgerður svarar Diljá Mist Þrír fluttir með þyrlu eftir alvarlegt umferðarslys Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Kastaðist úr golfbíl eftir árekstur Lofaði konunni sinni að taka pásu Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum