Samtök atvinnulífsins efndu til fundar á Grand Hótel í Reykjavík í síðustu viku en fundurinn var hluti af hringferð samtakanna undir yfirskriftinni Rjúfum vítahringinn. Hringferðin var liður í því að byggja upp sameiginlegan skilning á því hvað þurfi til að rjúfa vítahring óstöðugleika og skapa sterkari grunn fyrir íslenskt atvinnulíf. Á opnum fundum og heimsóknum um land allt var áhersla var lögð á opna umræðu um áskoranir og tækifæri á hverjum stað. Fundurinn í Reykjavík, sem markaði upphaf þriðju og síðustu viku hringferðarinnar, var vel sóttur. Í pallborði voru Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu. Fundurinn á Grand Hótel var vel sóttur. © Aðsend mynd (AÐSEND) Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, ávarpaði fundinn. © Aðsend mynd (AÐSEND) Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, var meðal þátttakenda í pallborði. © Aðsend mynd (AÐSEND) Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Finnbjörn Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands. © Aðsend mynd (AÐSEND) Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu. © Aðsend mynd (AÐSEND) Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM, og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA. © Aðsend mynd (AÐSEND) Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Ölgerðarinnar og formaður Viðskiptaráðs, var meðal gesta. © Aðsend mynd (AÐSEND) Helga Árnadóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri sölu, rekstrar og þjónustu hjá Bláa lóninu, Ísak Einar Rúnarsson, forstöðumaður málefnasviðs SA, og Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga. © Aðsend mynd (AÐSEND) Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga, tók til máls. © Aðsend mynd (AÐSEND) Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar og fyrrverandi forstjóri Algalífs, og Andrés Magnússon, blaðamaður og fulltrúi ritstjóra Morgunblaðsins. © Aðsend mynd (AÐSEND) Kristinn Már Reynisson, lögfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu, Íris Hannah Atladóttir, hagfræðingur SVÞ, Rúna Magnúsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri SVÞ, og Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ. © Aðsend mynd (AÐSEND) Kristín Þöll Skagfjörð Sigurðardóttir, verkefnastjóri á miðlunarsviðið Samtaka atvinnulífsins, og Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri og forstöðumaður efnahagssviðs SA. © Aðsend mynd (AÐSEND) Yfirskrift hringferðarinnar var Rjúfum vítahringinn. © Aðsend mynd (AÐSEND)