Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Auka þrýsting á Rússa

Read Full Article →

Leiðtogar G7-ríkjanna hafa náð samkomulagi um að nýjar refsiaðgerðir gegn Rússlandi, sem miða að útflutningi á olíu og gasi. Markmiðið er að draga úr fjármagni sem knýr stríðsrekstur Vladimírs Pútíns. Heimildarmaður Financial Times sagði að samstaða hefði náðst meðal ríkjanna eftir viðræður leiðtoga þeirra í Frakklandi, þar sem Volodymyr Zelenskyj, forseti Úkraínu, var einnig viðstaddur. Bretland og Kanada tilkynntu jafnframt um nýjar refsiaðgerðir. Leiðtogarnir funduðu í Frakklandi í dag. Átökin í Mið-Austurlöndum hafa undanfarið dregið athygli frá stríðinu í Úkraínu. Leiðtogar G7 reyna nú að fá Trump til að auka stuðning við Kænugarð í ljósi þess að búið er að ná saman um helstu atriði samnings um framlengingu vopnahlés við írönsk stjórnvöld. Úkraína hefur kallað eftir auknum þrýstingi á Rússa eftir að Rússar juku langdrægar eldflauga- og drónaárásir. Trump gaf til kynna að hann væri reiðubúinn að beita þrýstingi á rússneskan orkuútflutning, án þess að útskýra nánari útfærslu. Leiðtogar G-7 ríkjanna. © epa (epa) Átökin í Mið-Austurlöndum hafa undanfarið dregið athygli frá stríðinu í Úkraínu. Leiðtogar G7 reyna nú að fá Trump til að auka stuðning við Kænugarð í ljósi þess að búið er að ná saman um helstu atriði samnings um framlengingu vopnahlés við írönsk stjórnvöld. Úkraína hefur kallað eftir auknum þrýstingi á Rússa eftir að Rússar juku langdrægar eldflauga- og drónaárásir. Trump gaf til kynna að hann væri reiðubúinn að beita þrýstingi á rússneskan orkuútflutning, án þess að útskýra nánari útfærslu. Bandaríkin hafa, á meðan stríðinu gegn Íran stendur, veitt undanþágur fyrir rússneska olíu og olíuafurðir sem fluttar eru sjóleiðis, til að draga úr þrýstingi á heimsmarkaðsverð olíu. Þær undanþágur renna brátt út. Zelenskyj segir Pútín ekki vilja binda enda á stríðið og því verði að þvinga hann til þess, fyrst og fremst með refsiaðgerðum. Kanada og Bretland sögðust einnig ætla að herða aðgerðir gegn svonefndum skuggaflota Rússlands, skipum sem flytja olíu og gas til að komast hjá refsiaðgerðum. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sagði samstöðu hafa ríkt á fundinum um að Úkraína væri að ná árangri á vígvellinum og að refsiaðgerðir gegn Rússlandi væru að virka. Bretar hyggjast að auki beina sjónum að neti tengdu rússnesku herleyniþjónustunni GRU, sem sagt er hafa útvegað vestræna tækni fyrir rússneska herinn. G7-ríkin ræða einnig aukinn stuðning við loftvarnir Úkraínu. Zelenskyj hefur óskað eftir leyfi Bandaríkjanna til að framleiða Patriot-flaugar í Úkraínu, enda segja úkraínskir embættismenn bandarískar birgðir berast of hægt og í of litlu magni. Donald Trump og Volodymyr Zelenskyy. © epa (epa)

Share this article