Heiðar Guðjónsson vill endurvekja olíuleit á Drekasvæðinu og hyggst sækja um leitar- og vinnsluleyfi á árinu. Hann segir það forsendu hagsældar að þjóðir nýti þær auðlindir sem þær eigi en að olían við Íslandsstrendur verði að engu ákveði þjóðin að ganga í Evrópusambandið. Sjálfur segir hann embættismenn ESB hafa ratað í orkulegt öngstræti og að Íslendingar verði að muna að enginn sé að fara að gæta hagsmuna okkar nema við sjálf. Heiðar hefur lengi vel verið einn framsýnasti fjárfestir landsins og hefur honum tekist ótal sinnum á ferli sínum að læsa inn stöðum sem hafa verið í andstöðu við útbreidda eða almenna skoðun, hvort sem það var skortsala hans á hlutabréfum Enron áður en bandaríski orkurisinn féll um aldamótin eða að verjast veikingu krónunnar fyrir hrun með framvirkum samningum, en hann hafði frá árinu 2005 varað opinberlega við yfirvofandi áföllum á gjaldeyris- og lánamörkuðum. Svona mætti lengi telja en í samtölum við Heiðar er þó mjög ljóst að hann horfir alltaf fram á við og stefnir nú að því að endurreisa eitt framsæknasta fjárfestingarverkefni sitt til þessa; að sækja olíuna við Íslandsstrendur Sú vegferð hófst fyrir rúmum tíu árum þegar Heiðar stofnaði félagið Eykon Energy, sem kom að olíuleit á Drekasvæðinu ásamt stórum erlendum aðilum. Á þeim tíma sagði hann að ef allt gengi að óskum væri hægt að hefja vinnslu árið 2025. Síðasta ríkisstjórn Íslands var með það í stjórnarsáttmála sínum að ekki yrðu gefin út leyfi til olíuleitar og því var tómt mál að koma með umsókn á þeim tíma. Drekasvæðið var fyrst boðið út til olíuleitar árið 2009 og voru fyrstu tvö leyfin veitt árið 2013 eftir að íslenskir og erlendir aðilar höfðu sótt um. Norska ríkisolíufyrirtækið Petoro var 25% þátttakandi í báðum þeim hópum sem hlutu leyfi til leitar og vinnslu. Kjell Pedersen, þáverandi framkvæmdastjóri Petoro, sagði við íslenska fjölmiðla á þeim tíma að félagið kæmi ekki að svona verkefni nema það teldi að það væri tækifæri á svæðinu. „Niðurstöðurnar voru svo jákvæðar að samstarfsaðilar okkar í Petoro, ríkisolíufélagi Noregs, sögðu að þeir hefðu aldrei séð svona möguleika áður. Petoro hefur verið inni í öllum leyfum á norska landgrunninu, í Norðursjó, Noregshafi og Barentshafi,“ segir Heiðar í samtali við Frjálsa verslun. Stefnubreytingar í stjórnmálum bæði í Noregi, hérlendis og víðar urðu þó þess valdandi að ekkert varð úr olíuvinnslu hérlendis og drógu erlendir samstarfsaðilar sig úr verkefnunum. Heiðar, sem situr nú einn eftir af fyrri leyfishöfum með nýtt félag, Dreki Kolvetni ehf., og hyggst sækja um leitar- og vinnsluleyfi á árinu. Nýja félagið er enn sem komið er ekki stórt í sniðum en Heiðar hefur þó verið að sækja fundi erlendis, bæði austan- og vestanhafs, í leit að samstarfsaðilum. Hann var meðal annars í MiðAusturlöndum á fundum í tengslum við olíuleitina fyrir áramót, en hann segir að þar hafi verið mikill áhugi á að koma að olíuvinnslu við Íslandsstrendur. Nánar er fjallað um málið í veglegu tímriti Frjálsrar verslunar, sem kemur út á morgun. Hægt er að kaupa ritið hér .