Innlent | mbl | 16.6.2026 | 14:12 Lögin virki sem myllusteinn um háls fjölmiðla Sigurður Örn Hilmarsson og Jón Pétur Zimsen, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, eru höfundar álitsins. Samsett mynd/mbl.is/Eggert Jóhannesson Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Inga snúin aftur eftir flensu: „Erum ekki róbótar“ Þinglok sennilega á föstudag Þorgerður svarar Diljá Mist Segir fjármálaáætlunina marka tímamót Laun æðstu ráðamanna hækka minna » Fleiri tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Náið fylgst með fjármálum RÚV Vilja að styrkir til fjölmiðla hækki Ný landsbyggðarstefna RÚV samþykkt Óháð úttekt á fréttamennsku RÚV Atli og Sunna nýir fréttastjórar » Fleiri tengdar fréttir Fjölmiðlalög eru óþarflega flókin og íþyngjandi og lögin, sem upphaflega var ætlað að efla tjáningarfrelsi og sjálfstæði fjölbreyttra fjölmiðla verka fremur sem myllusteinn um háls þeirra. Þetta kemur fram í minnihlutaáliti sjálfstæðismanna í allsherjar- og menntamálanefnd um fjölmiðlafrumvarp Loga Einarssonar, menningar-, nýsköpunar- og háskólamálaráðherra. Með frumvarpinu eru ríkisstyrkir til einkarekinna fjölmiðla festir í sessi næstu fimm árin. Frétt af mbl.is Vilja að styrkir til fjölmiðla hækki Vilja frekara frelsi á auglýsingamarkaði Sjálfstæðismennirnir Jón Pétur Zimsen og Sigurður Örn Hilmarsson eru skrifaðir fyrir minnihlutaálitinu en þeir telja frumvarpið ekki til þess fallið að styrkja sjálfstæðan rekstur fjölmiðla. „Óumdeilt er að vandi einkarekinna fjölmiðla felst einkum í því að tekjur þeirra dragast saman en kostnaður við starfsmannahald fer hækkandi. Fyrirferð ríkismiðilsins á auglýsingamarkaði og samkeppni við hann um starfsmenn er síst til þess fallin, svo að ekki sé fastar að orði kveðið, að bæta þá stöðu,“ segir í álitinu. Telja Jón Pétur og Sigurður Örn að best væri að frumvarpinu yrði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar samhliða vinnu við heildarendurskoðun lagaumgjarðar um starfsumhverfi fjölmiðla. „Í þeim efnum mætti taka til skoðunar möguleika á að létta opinberum álögum af fjölmiðlum, innleiða frekara frjálsræði á auglýsingamarkaði, leyfa einstaklingum að velja hvernig útvarpsgjaldi þeirra yrði ráðstafað og draga úr umsvifum Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði, helst með þeim hætti að félagið yrði gert að stofnun í A-hluta í fjárlögum,“ segir í nefndarálitinu. Frétt af mbl.is Breytingar á fjölmiðlafrumvarpi eftir samráð Leggja til breytingar Leggja sjálfstæðismennirnir þó til, í ljósi þess að ekki er líklegt að fallist verði á fyrrnefndar umbætur þeirra, að frumvarpið verði samþykkt, með ákveðnum breytingum þó. Vilja þeir í fyrsta lagi fella út það skilyrði rekstrarstuðnings að fjölmiðill sinni lýðræðishlutverki, enda telja þeir ótækt að úthlutunarnefnd af hálfu ríkisins sé falið það hlutverk að leggja mat á það hvaða fjölmiðlar teljast uppfylla lýðræðishlutverk og hverjir ekki. Þá telja þeir einnig óþarft að gera þá kröfu að endurskoðandi eða viðurkenndur bókari staðfesti efniumsóknir fjölmiðils um rekstrarstuðning enda feli það í sér töluverða vinnu og kostnað fyrir umsækjendur. Eins og áður segir er rekstrarstuðningi til fjölmiðla markaður takmarkaður tími, til næstu fimm ára með frumvarpinu. Jón Pétur og Sigurður Örn leggja til að gildistíminn verði aðeins til næstu tveggja ára. Tengdar fréttir Alþingi Inga snúin aftur eftir flensu: „Erum ekki róbótar“ Þinglok sennilega á föstudag Þorgerður svarar Diljá Mist Segir fjármálaáætlunina marka tímamót Laun æðstu ráðamanna hækka minna » Fleiri tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Náið fylgst með fjármálum RÚV Vilja að styrkir til fjölmiðla hækki Ný landsbyggðarstefna RÚV samþykkt Óháð úttekt á fréttamennsku RÚV Atli og Sunna nýir fréttastjórar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Víkingar fengu erfiðasta dráttinn Lögin virki sem myllusteinn um háls fjölmiðla Þrír Íslendingar tilnefndir í lið tímabilsins HM-treyjurnar seldust upp „Ballerina er besti ferðafélaginn“ Umræðan Hjólað inn í framtíðina Hagsmunagæsla utanríkisráðherra gagnvart Bandaríkjunum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fleiri leiðir inn á húsnæðismarkað Aðgerðaáætlun vegna heilabilunar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Ýmis sóknarfæri til að mæta vaxandi blóðgjafaþörf Mest lesið Í gær Í vikunni Stungu af með kranabíl Þorgerður svarar Diljá Mist Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Lofaði konunni sinni að taka pásu „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Kostnaður af evru gæti numið hundruðum milljarða Spilin stokkuð upp á nýtt í Grindavik „Aðdáunarvert hvað þau hjón standa þétt saman“ Fátíður en sláandi atburður Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Biðla til fólks að athuga með símtæki sín Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Fátíður en sláandi atburður Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Víkingar fengu erfiðasta dráttinn Lögin virki sem myllusteinn um háls fjölmiðla Þrír Íslendingar tilnefndir í lið tímabilsins HM-treyjurnar seldust upp „Ballerina er besti ferðafélaginn“ Umræðan Hjólað inn í framtíðina Hagsmunagæsla utanríkisráðherra gagnvart Bandaríkjunum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ríkið áfrýjar dómi í plastbarkamálinu Fleiri leiðir inn á húsnæðismarkað Mega bíða eftir launagreiðslum frá Saga Film Spilin stokkuð upp á nýtt í Grindavik Mest lesið Í gær Í vikunni Stungu af með kranabíl Þorgerður svarar Diljá Mist Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Lofaði konunni sinni að taka pásu „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Kostnaður af evru gæti numið hundruðum milljarða Spilin stokkuð upp á nýtt í Grindavik „Aðdáunarvert hvað þau hjón standa þétt saman“ Fátíður en sláandi atburður Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Biðla til fólks að athuga með símtæki sín Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Fátíður en sláandi atburður Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum