Innlent | mbl | 16.6.2026 | 13:05 Hamarsvirkjun í biðflokk og þrjár í orkunýtingarflokk Á kortinu má sjá hvar Hamarsvirkjun í Hamarsá mun rísa. Kort Setja bókamerki Alþingi hefur samþykkt þingsályktunartillögu um breytingu á rammaáætlun, er snýr að vernd og orkunýtingu landsvæða. Með ákvörðun Alþingis bætast nú þrír nýir virkjunarkostir í orkunýtingarflokk og tveir í biðflokk. Virkjunarkostirnir sem Alþingi staðfesti í orkunýtingarflokk í dag geta samanlagt skilað nærri einni terawattstund af endurnýjanlegri raforku á ári verði þeir fullnýttir, að því er fram kemur í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands . Frétt af mbl.is Fimm virkjanir verði settar í flýtiframkvæmd Hvanneyrardalsvirkjun og Hamarsvirkjun í biðflokk Virkjunarkostirnir sem settir hafa verið í orkunýtingarflokk eru Tröllárvirkjun og Skúfnavatnavirkjun á Vestfjörðum ásamt jarðvarmakostinum Bolaöldu á Hellisheiðarsvæðinu, en með ályktun sinni staðfestir Alþingi að virkjunarkostirnir geti farið áfram í leyfisveitingarferli samkvæmt gildandi lögum, að undangengnum frekari rannsóknum og mati eftir því sem við á. Með þingsályktuninni voru jafnframt Hvanneyrardalsvirkjun á Vestfjörðum og Hamarsvirkjun á Austurlandi settar í biðflokk. Ákveðið var að setja breytingu þess efnis að Hamarsvirkjun yrði flokkuð í biðflokk áætlunarinnar en ekki verndarflokk í samráðsferli vegna mótstöðu sveitarfélaga á svæðinu við því að virkjanakosturinn yrði flokkaður í verndarflokk. Frétt af mbl.is Hamarsvirkjun verði flokkuð í biðflokk Tæpar tvær terawattstundir á ári alls Þessir virkjunarkostir koma til viðbótar þeim sem samþykktir voru í orkunýtingarflokk rammaáætlunar fyrr á árinu, þ.e. Skrokköldu, sem er með orkugetu um 392 GWst/ári, og Holtavirkjun, með orkugetu um 450 GWst/ári. Alls geta orkukostirnir fimm skilað tæpum tveimur terawattstundum af endurnýjanlegri orku á ári. Þingsályktunin byggir á vinnu verkefnisstjórnar 5. áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar sem lagði mat á fimm virkjunarkosti í vatnsafli og jarðvarma, en rammaáætlun er ætlað að skapa fyrirsjáanleika um nýtingu orkuauðlinda landsins með heildstæðu frummati sem tekur bæði til umhverfissjónarmiða og samfélagslegra þátta. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hilmar Smári áfram í Garðabænum Ming mætt í Héraðsdóm Reykjavíkur Sérsveitarmaður lagði hné á háls við handtöku Hamarsvirkjun í biðflokk og þrjár í orkunýtingarflokk Vongóður um að viðræður þokist áfram Umræðan Hjólað inn í framtíðina Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fátíður en sláandi atburður Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Mega bíða eftir launagreiðslum frá Saga Film Fjármálaáætlun samþykkt Mest lesið Í gær Í vikunni Stungu af með kranabíl Þorgerður svarar Diljá Mist Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Kostnaður af evru gæti numið hundruðum milljarða Þrír áfrýja til Hæstaréttar Spilin stokkuð upp á nýtt í Grindavik „Svo réð ég hvort ég hlustaði“ Eiga von á yfir 100 skemmtiferðaskipum í sumar Fátíður en sláandi atburður Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Biðla til fólks að athuga með símtæki sín Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Fátíður en sláandi atburður Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Hilmar Smári áfram í Garðabænum Ming mætt í Héraðsdóm Reykjavíkur Sérsveitarmaður lagði hné á háls við handtöku Hamarsvirkjun í biðflokk og þrjár í orkunýtingarflokk Vongóður um að viðræður þokist áfram Umræðan Hjólað inn í framtíðina Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ríkið áfrýjar dómi í plastbarkamálinu „Lögreglan þarf að vera sýnileg“ Fjármálaáætlun samþykkt Seðlabanki gagnrýndi gjaldmiðlaskýrslu Mest lesið Í gær Í vikunni Stungu af með kranabíl Þorgerður svarar Diljá Mist Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Kostnaður af evru gæti numið hundruðum milljarða Þrír áfrýja til Hæstaréttar Spilin stokkuð upp á nýtt í Grindavik „Svo réð ég hvort ég hlustaði“ Eiga von á yfir 100 skemmtiferðaskipum í sumar Fátíður en sláandi atburður Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Biðla til fólks að athuga með símtæki sín Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Fátíður en sláandi atburður Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum