Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Semja við þriðja aðila eftir að listería kom upp á Vitatorgi

  • What: Listeria was detected in the kitchen at Vitatorg in Reykjavík, leading to its closure and a search for a third-party food provider.
  • Impact: The closure affects the provision of approximately 900 daily meals for the elderly, causing service disruptions.
Read Full Article →

Listería greindist í framleiðslu eldhúsinu á Vitatorgi í Reykjavík í byrjun mánaðar, Reykjavíkurborg vinnur nú að því að gera samning við þriðja aðila til þess að elda matinn. Eldhúsið hefur verið lokað frá því í febrúarbyrjun, en um 900 máltíðir voru framleiddar daglega fyrir aldraða í eldhúsinu. Samkvæmt upplýsingum frá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar er stefnt að því að gera samninga við þriðja aðila í vikunni, ekki er búið að ganga frá þeim. Metið óviðunandi fyrir ári Máltíðirnar sem voru matreiddar í eldhúsinu fóru ýmist í heimsendingu eða voru bornar fram í félagsmiðstöðvum og þjónustuíbúðum velferðarsviðs. Þeir sem fá heimsendan mat hafa verið að fá sendan tilbúinn mat allt frá því að smitið greindist. Aftur á móti hefur orðið skerðing á þjónustu í félagsmiðstöðvum borgarinnar, en samkvæmt upplýsingum frá velferðarsviði hafa miðstöðvarnar leyst málin hver fyrir sig. Framleiðslueldhúsið á Vitatorgi var metið óviðunandi af Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur fyrir ári síðan. Áform voru um að færa eldhúsið í annað húsnæði áður en listeríu-smitið kom upp. Til stendur að færa eldhúsið í matsalinn á Vitatorgi og færa þá matsalinn upp um eina hæð, meðan á þeim framkvæmdum stendur verður fenginn þriðji aðili til þess að elda matinn.

Share this article