Flestir þeirra sem nú hafa látið af störfum höfðu setið í forstjórastól árum og jafnvel áratugum saman. Margir höfðu mótað fyrirtæki frá grunni eða leitt þau í gegnum mikinn vöxt og umbreytingar. Nýir leiðtogar taka við keflinu hjá sumum af stærstu og þekktustu fyrirtækjum landsins. Hér má finna lista yfir helstu forstjóra og framkvæmdastjóra sem létu nýverið af störfum en í heildina eru 26 einstaklingar á listanum. Þorsteinn Már Baldvinsson Þorsteinn Már Baldvinsson tilkynnti í maí 2025 að hann væri að láta af störfum sem forstjóri Samherja en hann hafði gegnt því starfi frá stofnun félagsins árið 1983. Saga Samherja byrjaði þegar Þorsteinn ásamt frændum sínum, Kristjáni og Þorsteini Vilhelmssonum, keyptu útgerðarfélagið Samherja hf. í Grindavík og þar með togarann Guðstein GK 140. Ráðist var í miklar breytingar á skipinu, sem fékk þá nafnið Akureyrin EA 10. Fyrsta veiðiferð Akureyrarinnar í desember 1983 markaði upphaf rekstrar Samherja í núverandi mynd og í dag er Samherji eitt stærsta og öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Þorsteinn Már er fæddur 7. október 1952. Sjávarútvegur hefur fylgt Þorsteini Má frá upphafi en faðir hans var skipstjóri og hafnarvörður og móðir hans af sjómannsfólki komin. Sjálfur byrjaði hann að vinna einungis 12 ára gamall hjá Útgerðarfélagi Akureyringa og fór fyrst á sjó fimmtán ára. Þorsteinn Már fór í Menntaskólann á Akureyri og útskrifaðist þaðan árið 1973, en eftir útskrift fór hann í Stýrimannaskólann og fékk skipstjórnarréttindi árið 1974. Eftir það lá leið hans í háskólanám, fyrst í Háskóla Íslands í stærðfræðigreiningu en síðan fékk hann áhuga á skipaverkfræði og fór í Norska tækniháskólann í Þrándheimi, þaðan sem hann útskrifaðist árið 1980. Í kjölfarið hóf hann störf hjá Félagi dráttarbrauta og skipasmiðja, sem var hluti af Landssambandi iðnaðarmanna. Þá var honum boðin vinna hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur og var hann framkvæmdastjóri þar í tvö ár. Seinna flutti hann til Akureyrar og hófst þá saga Samherja. Þótt Þorsteinn Már sé hættur sem forstjóri Samherja er hann ekki sestur í helgan stein, því hann situr í stjórnum nokkurra félaga og má þar nefna Samherja fiskeldi ehf. og Síldarvinnsluna hf. í Neskaupstað, þar sem hann hefur gegnt stjórnarformennsku frá árinu 2003. Baldvin Þorsteinsson, sonur Þorsteins Más, hefur tekið við sem forstjóri Samherja en hann hafði áður verið stjórnarformaður frá árinu 2023. Rannveig Rist Rannveig Rist tilkynnti í október 2025 að hún hygðist láta af störfum sem forstjóri Rio Tinto á Íslandi. Hún hóf upprunalega störf hjá álverinu í Straumsvík í byrjun árs 1990. Til að byrja með stjórnaði hún rannsóknarstofunni í Straumsvík og síðar steypuskálanum og kerskálunum. Árið 1996 var henni boðið starf forstjóra og tók hún formlega við í ársbyrjun 1997. Á sínum tíma var Rannveig fyrsti kvenkyns forstjóri stórfyrirtækis. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Rannveig Rist er fædd 9. maí 1961. Hún lauk 4. stigs prófi frá Vélskóla Íslands en aðeins ein kona hafði lokið slíku prófi á þeim tíma. Hún lauk þá sveinsprófinu 1985 og varð vélfræðingur, fyrst kvenna hér á landi. Auk þess er hún meistari í vélvirkjun. Rannveig er vélaverkfræðingur frá Háskóla Íslands, með MBA-próf í alþjóðaviðskiptum frá University of San Francisco og AMP-próf frá HR og IESE. Rannveig var fyrsta konan til þess að verða yfirmaður á togara, en hún var 1. vélstjóri á Guðbjarti ÍS 16 frá Ísafirði á árunum 1986-1987. Hún var þá stundakennari við Tækniskóla Íslands og Háskóla Íslands 1989-1990. Rannveig var fyrsti formaður Samáls, samtaka álframleiðenda, árið 2010. Frá því að Rannveig var ráðin forstjóri álversins hefur hún hlotið fjölda viðurkenninga. Árið 1996 var hún bæði útnefnd kona ársins hjá tímaritinu Nýtt líf og maður ársins hjá Stöð 2. Árið 1998 hlaut hún heiðursmerki Verkfræðingafélags Íslands og árið 1999 var hún sæmd Riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir stjórnunarstörf í atvinnulífinu. Hún var maður ársins hjá tímaritinu Frjálsri verslun árið 2008 og hlaut viðskiptaverðlaun Viðskiptablaðsins árið 2010. Hún hlaut þá viðurkenningu frá Félagi kvenna í atvinnulífinu árið 2009 fyrir lofsvert framlag til íslensks atvinnulífs. Árið 2018 var hún útnefnd heiðursiðnaðarmaður Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur og árið 2020 hlaut hún síðan Standard & Poor‘s Global Metal verðlaun í flokknum Lifetime achievement. Sunna Björg Helgadóttir hefur tekið við af Rannveigu sem forstjóri Rio Tinto á Íslandi. Nánar er fjallað um málið í veglegu tímriti Frjálsrar verslunar, sem kemur út á morgun. Hægt er að kaupa ritið hér .