Innlent | mbl | 15.6.2026 | 17:09 Seðlabanki gagnrýndi gjaldmiðlaskýrsluna Seðlabanki Íslands. mbl.is/Golli Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Seðlabanki Íslands gerði verulegar athugasemdir við drög að gjaldmiðlaskýrslu erlendra sérfræðinga fyrir Daða Má Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra, sem kynnt var í byrjun júní. Bankinn taldi nefndina hafa byggt um of á aðstæðum fyrir brankahrun en vanmetið umbætur í peningastefnu síðan. Sömuleiðis sé tölfræði hennar ábótavant og gengissveiflur verulega ofætlaðar. Ekki verður séð að nefndin hafi mikið tillit tekið til þeirra athugasemda. Horft hjá umbótum eftir hrun Í athugasemdum Seðlabankans, sem mbl.is hefur undir höndum og eru á ensku eins og skýrslan, kemur fram að bankinn telji skýrsluna að ýmsu leyti gagnlega, en geri jafnframt alvarlegar athugasemdir við greiningu hennar og túlkun. Þær lúta einkum að því að skýrslan horfi um of til reynslu bankahrunsins, aðdragandans og áranna þar á eftir, en gefi of lítinn gaum að þeim grundvallarbreytingum sem orðið hafi á peningastefnu, fjármálaeftirliti og þjóðhagsvarúð hér á landi frá hruni. Seðlabankinn segir að meta þurfi kosti og galla evruaðildar gagnvart því kerfi sem nú sé við lýði: sjálfstæðri peningastefnu, fljótandi gengi og virkri þjóðhagsvarúð. Ekki sé rétt að leggja til grundvallar það fyrirkomulag sem var við lýði fyrir hrun eða á meðan áhrif hrunsins voru enn ráðandi í hagtölum. Bjöguð tölfræði hjá nefndinni Sérstaklega gagnrýnir bankinn þá ályktun skýrslunnar að íslenska krónan sé mjög miklu sveiflukenndari en aðrir sambærilegir gjaldmiðlar. Í ítarlegum athugasemdum bankans segir að sú niðurstaða byggist á röngum tölfræðilegum samanburði, þar sem staðalfrávik gengisvísitalna séu borin saman í stað breytinga á gengi. Þar sem gengisvísitölur séu ekki stöðugar geti niðurstaðan ráðist af því hvaða grunnár sé valið. Ef horft sé til mánaðarlegra breytinga á nafnvirku virku gengi frá árinu 2012 sé staðalfrávik íslensku krónunnar 1,8%, en norsku krónunnar 1,7%, breska pundsins 1,5%, sænsku krónunnar 1,3% og evrunnar 1,2%. Krónan sé því í efri mörkum meðal þróaðra ríkja, en ekki út úr korti. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu. mbl.is/Eyþór Föllnu bankarnir villtu sýn Bankinn gerir einnig athugasemdir við umfjöllun skýrslunnar um fjármagnsflæði. Þar sé of mikið lagt upp úr tímabili, sem litast hafi af uppgjöri föllnu bankanna. Hreyfingar tengdar þrotabúunum hafi að miklu leyti verið bókhaldslegar og endurspegli ekki eðlilegt fjármagnsflæði í undirliggjandi íslensku hagkerfi. Þá hafnar bankinn þeirri skoðun nefndarinnar að krónan hafi að öllu jöfnu lítið nýst til þess að slá á áhrif peningalegrar ágjafar, þó nefndin hafi viðurkennt nytsemd hennar í hruninu. Þvert á móti hafi sveigjanlegt gengi og sjálfstæð peningastefna gegnt mikilvægu hlutverki eftir hrun. Bankinn nefnir sérstaklega gengishækkun krónunnar í ferðamannauppsveiflunnni 2012-18, þegar fjölgun ferðamanna olli miklum ytri eftirspurnarþrýstingi, og gengislækkunina í kjölfar falls WOW Air og heimsfaraldurs covid-19. Þá hafi krónan einmitt komið í góðar þarfir til að laga hagkerfið að stórum ytri áföllum. Seðlabanki Evrópu í Frankfurt mbl.is/Ómar Óskarsson Vinnumarkaðurinn vandamál Seðlabankinn tekur þó undir að veikleikar íslensks vinnumarkaðar séu meðal helstu vandamála efnahagsstjórnar hér á landi, sem tjónka þurfi við óháð því hvaða gjaldmiðil landsmenn nota. Bankinn bendir á að öll hin Norðurlöndin hafi einhvers konar launaviðmið, sem tengist útflutningsgreinum og samkeppnishæfni, óháð því hvort þau nota evru, festa gengi eða reka sjálfstæða peningastefnu. Hér á landi hafi slíkt samningslíkan ekki fest rætur. Miklar umbætur forsenda evrunnar Seðlabankinn heldur því ekki fram að núverandi fyrirkomulag sé gallalaust, en varpar ljósi á að evran sé ekki skjót lausn á aðsteðjandi vanda íslensks hagkerfis. Ísland yrði – kæmi til evruupptöku – ódæmigert á Evrusvæðinu, með hærri landsframleiðslu á mann og hærra launastig en Evrusvæðið að meðaltali. Lægra vaxtastig evrunnar gæti því haft veruleg áhrif á fjármagnsflæði, skuldsetningu og eignaverð á Íslandi, sem ástæða sé til þess að gefa gaum. Að mati Seðlabankans þyrfti djúpstæðar umbætur í ríkisfjármálum og launamyndun á Íslandi áður en evruupptaka gæti talist raunhæf. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Spánn – Grænhöfðaeyjar, staðan er 0:0 Seðlabanki gagnrýndi gjaldmiðlaskýrslu Biðla til fólks að athuga með símtæki sín Næstur á leið til Real Madrid? Lést í teygjustökki því hún var ekki fest Umræðan Fatlað fólk í samgönguáætlun Sum ríki greiða til ESB, önnur þiggja Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Hrinan í Bárðarbungu ódæmigerð Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Fleiri andvígir en fylgjandi Degi sem varaformanni Mest lesið Í gær Í vikunni Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Myndskeið: Svona mun ný Þjóðarhöll líta út Vill fá íbúðir fyrir ofan Dönsku krána Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Strætó illa farinn eftir árekstur Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Óku á göngugötu í miðbænum Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Meirapróf til að aka strumpastrætó Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Spánn – Grænhöfðaeyjar, staðan er 0:0 Seðlabanki gagnrýndi gjaldmiðlaskýrslu Biðla til fólks að athuga með símtæki sín Næstur á leið til Real Madrid? Lést í teygjustökki því hún var ekki fest Umræðan Fatlað fólk í samgönguáætlun Sum ríki greiða til ESB, önnur þiggja Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aðgerðaáætlun vegna heilabilunar Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Kristrún bíður enn fundar með Trump Ráðherra setur reglur um síma Mest lesið Í gær Í vikunni Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Myndskeið: Svona mun ný Þjóðarhöll líta út Vill fá íbúðir fyrir ofan Dönsku krána Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Strætó illa farinn eftir árekstur Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Óku á göngugötu í miðbænum Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Meirapróf til að aka strumpastrætó Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum