Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

G7-ríkin ræða friðarumleitanir í Mið-Austurlöndum

Read Full Article →

Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Íran segjast stefna á að undirrita samkomulag um áframhaldandi vopnahlé í Sviss þegar fundi G7-ríkjanna lýkur í vikunni, binda á enda á átök á öllum vígstöðvum, þar á meðal í Líbanon. Í gærkvöld greindu bandarísk og írönsk stjórnvöld frá því að samkomulag hefði náðst milli ríkjanna um áframhaldandi vopnahlé. Til stendur að undirrita það í Genf í Sviss á föstudag, að loknum undirbúningsfundum í Doha í Katar þar sem tæknileg úrlausnaratriði verða rædd. Í samkomulaginu, sem gildir í sextíu daga, felst að Íranar opna fyrir umferð um Hormússund, sem hefur að mestu verið lokað fyrir frá því í byrjun mars þegar Bandaríkjamenn hófu loftárásir á Íran. Þess í stað afléttir Bandaríkjaher herkví á sjó. Joseph Aoun, forseti Líbanons, vonar að samningur Bandaríkjanna og Írans verði til þess að átökum linni endanlega milli Ísraels og Hezbollah-samtakanna. Hann segir öryggi í Líbanon forsendu fyrir stöðugleika í heimshlutanum. Líbanon dróst inn í stríðið í Mið-Austurlöndum í byrjun mars þegar Hezbollah hóf árásir þaðan á Ísrael. Þrátt fyrir fyrirliggjandi samkomulag ætlar Ísraelsher ekki að yfirgefa svokölluð öryggissvæði í Líbanon, Sýrlandi og á Gaza, segir Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraels. Ef Íranar geri árás á Ísrael vegna aðgerða þeirra í Líbanon þá svari Ísraelar fyrir sig af fullum þunga. Átökin í Mið-Austurlöndum eru meðal þess sem rætt verður á fundi G7-ríkjanna í Frakklandi í vikunni. Fundurinn hefst í dag og hann sækja fulltrúar sjö helstu iðnvelda heims.

Share this article