Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Strand við Akurey

Read Full Article →

Farþegabáturinn Skúlaskeið RE strandaði við sunnanverða Akurey í Kollafirði í morgun. Sextán farþegar voru um borð en þeir voru fljótlega fluttir í annan bát. „Þetta eru góðar aðstæður. Eins og alltaf er björgunarskip kallað út og gæslan er með vökul augu á þessu,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að tilkynning um að báturinn hefði siglt upp á grjót hafi borist rétt fyrir klukkan 10 í morgun. Hann segir engar sjáanlegar skemmdir hafa verið á honum. Vonast er til að báturinn komist á flot þegar aftur fellur að seinnipartinn.

Share this article