Á þessum degi fyrir hálfri öld bætti Þórdís Íslandsmet Láru Sveinsdóttur í hástökki um fjóra sentimetra þegar hún stökk 1,73 metra. Metið setti Þórdís á móti í Finnlandi 13. júní árið 1976. Þórdís var aðeins fimmtán ára á þessum tíma og Íslandsmetið hennar var jafnframt lágmark inn á Ólympíuleikana sem haldnir voru sama sumar í Montreal í Kanada. Þórdís átti svo á næstu 14 árum eftir að bæta Íslandsmet sitt átta sinnum í viðbót og alveg upp í 1,88 metra. Þetta síðasta Íslandsmet setti hún árið 1990 og það stendur enn í dag, 36 árum síðar. Þórdís hefur því verið handhafi Íslandsmets kvenna í hástökki í 50 ár. „Það er náttúrulega í fyrsta lagi frekar ótrúlegt en bara náttúrulega bara gaman. En ef ég hefði verið spurð þegar setti metið á sínum tíma hvort við myndum standa hér árið 2026 og enn methafinn, þá hefði ég sagt nei,“ sagði Þórdís brosandi þegar RÚV hitti hana í vikunni á glæsilegum frjálsíþróttavelli ÍR í Breiðholti. Þórdís og eiginmaður hennar, Þráinn Hafsteinsson hafa helgað líf sitt að miklu leyti starfi frjálsíþróttadeildar ÍR. Árið 2009 hlaut Þórdís Kvenleiðtogaverðlaun Frjálsíþróttasambands Evrópu fyrir fjölbreytt störf sín við þjálfun, leiðtoga- og rannsóknarstörf á sviði íþrótta. Aðeins Vilhjálmur Einarsson verið handhafi Íslandsmets lengur Aðeins Vilhjálmur Einarsson skákar Þórdísi þvert á kyn því hann hefur verið handhafi Íslandsmetsins í þrístökki í nærri því 71 ár. Vilhjálmur hefur átt Íslandsmetið frá 22. júli árið 1955 þegar hann bætti Íslandsmet Stefáns Sörenssonar í þrístökki frá árinu 1948. Met Stefáns hafði staðið í 14,71 metra en Vilhjálmur bætti metið í landskeppni við Holland 1955. Vilhjálmur bætti metið strax í fyrsta stökki þegar hann stökk 14,84 metra og bætti svo um betur í öðru stökki sínu sem mældist 15,19 metrar, og þó stökk hann fyrir aftan plankann. Vilhjálmur átti svo eftir að bæta Íslandsmet sitt nokkrum sinnum á næstu árum, síðast á Meistaramóti Íslands árið 1960 þegar hann stökk 16,60 metra. Það Íslandsmet stendur enn og er elsta Íslandsmetið í metaskrá Frjálsíþróttasambands Íslands. Náði ólympíulágmarkinu í metstökkinu og var aðeins 15 ára „Íslandsmetið sem ég setti fyrir 50 árum var 1,73 metrar, í Joensu í Finnlandi í Norðurlandakeppni kvenna. Metið var áður 1,69 og ég gerði mér einhvern veginn ekki grein fyrir því þegar ég stökk að ég væri um leið að ná ólympíulágmarkinu. Þannig það kom einhvern veginn sem bónus á eftir þegar Guðmundur Þórarinsson þjálfarinn minn sagði við mig: „Og þú náðir ólympíulágmarkinu.“ Þá einhvern veginn kveikti ég,“ sagði methafinn Þórdís. Hálf öld er liðin í dag frá fyrsta Íslandsmeti Þórdísar Gísladóttur í hástökki. Hún er enn methafinn, 50 árum síðar með 1,88 metra. Þrír efnilegir hástökkvarar hafa þó að undanförnu nálgast metið. „Ég keppti á Ólympíuleikunum 1976, þá 15 ára gömul og enda svo á því að keppa til ársins 1999. Þannig ég tók þetta sem mikinn lærdóm því ég hugsaði alltaf í öllum verkefnum, og lenti auðvitað í flókinni keppni á mörgum mótum, að þetta gæti ekki verið erfiðara en Ólympíuleikarnir. Þannig að ég lærði bara heil mikið á því,“ sagði Þórdís. Þórdís bætti Íslandsmet sitt í hástökki svo jafnt og þétt á næstu árum og setti síðasta Íslandsmetið utanhúss árið 1990 þegar hún stökk yfir 1,88 metra. Það met hennar stendur enn nú 36 árum síðar, en Íslandsmet Þórdísar innanhúss í hástökki er einnig 1,88 metrar. Fyrst til að fagna því þegar metið verður slegið En hefur Íslandsmeti Þórdísar ekkert verið ógnað? „Fram til ársins 2024 hafði einungis ein önnur kona stokkið yfir 1,80 metra og það er Vala Flosadóttir. En á síðustu þremur árum eru þrjár stúlkur sem hafa stokkið yfir 1,80. Þannig það er vonandi bjart fram undan og uppgangur í þessu,“ sagði Þórdís en þær Birta María Haraldsdóttir (1,87 m), Eva María Baldursdóttir (1,84 m) og Helga Þóra Sigurjónsdóttir (1,83 m) eru þær sem um ræðir. Miðað við þeirra besta árangur gæti í raun verið tímaspursmál hvenær Þórdís missir Íslandsmetið frá sér eftir öll þessi ár. „Auðvitað er það þannig fyrir okkur sem lifum og hrærumst í íþróttunum að við viljum framfarir. Ég yrði fyrst manna til að fagna því þegar metið verður slegið,“ sagði Þórdís Lilja Gísladóttir Íslandsmethafi kvenna í hástökki í hálfa öld.