Bandaríkjaher drap í nótt Hector Guerrero Flores, leiðtoga venesúelsku glæpasamtakanna Tren de Aragua. Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá þessu í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social. Glæpasamtökin rötuðu í heimsfréttirnar eftir að Trump sendi mörg hundruð liðsmenn þeirra úr landi. Þeir voru fluttir í fangelsi í El Salvador. Trump sagði árás hersins hafa verið gerða í náinni samvinnu við „vini okkar í Venesúela“. Þar vísar hann í stjórn Delcy Rodriguez en hún tók við sem forseti Venesúela til bráðabirgða eftir að Bandaríkin steyptu Nicolás Maduro af stóli í janúar. „Fyrir vikið eiga hryðjuverkamenn Tren de Aragua hvergi skjól lengur, hvorki í Venesúelu né annars staðar,“ skrifaði Trump á Truth Social. Hann tiltók ekki hvar árásin var gerð. Færslunni fylgir 10 sekúndna myndskeið . Þar er horft ofan á hús sem síðan er sprengt í loft upp.
The article describes a kinetic military operation, not a software vulnerability or cyber threat; it details the U.S. military's targeted killing of a Venezuelan organized crime leader. Consequently, the standard technical vulnerability disclosure elements such as CVSS score, affected versions, fixed versions, and workarounds are not applicable to this event. The content is purely geopolitical and operational in nature.