Innlent | mbl | 12.6.2026 | 23:18 „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Í meistaranámi í stærðfræði í HÍ 2024. Ihor Stakh er úkraínskur blaðamaður sem varð fyrir ofsóknum í heimalandi sínu vegna spillingarmála sem hann skrifaði um og kom til Íslands árið 2019 þar sem honum var veitt alþjóðleg vernd. Hann er nú með umsókn um íslenskan ríkisborgararétt í afgreiðslu hjá Útlendingastofnun sem krefst frumrits sakavottorðs en það þyrfti hann sjálfur að sækja til Úkraínu þar sem honum er bráð hætta búin. Ljósmynd/Aðsend Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Flóttafólk á Íslandi Vilja herða reglur um ríkisborgararétt Krefjast þess að íslensk stjórnvöld tryggi réttindi flóttafólks Upplýsingagjöf „verulega áfátt“ Vill gera glæpamönnum lífið leitt Nærri 300 umsagnir um breytingar á útlendingalögum » Fleiri tengdar fréttir Úkraína Árás veldur rafmagnsleysi í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu Sakaðir um að ráða ungar konur til að drepa hermenn Pútín býr sig undir styrjöld Frakkar skutu niður dróna í Lettlandi „Einstaklega viðbjóðsleg árás“ » Fleiri tengdar fréttir „Ég fékk svar í síðustu viku við umsókn um íslenskan ríkisborgararétt sem ég lagði inn hjá Útlendingastofnun fyrir einu og hálfu ári,“ segir úkraínski blaðamaðurinn Ihor Stakh í samtali við mbl.is en hann kom til Íslands árið 2919 vegna ofsókna sem tengdust starfi hans og fékk alþjóðlega vernd á Íslandi árið 2020. Ihor rekur uppruna sinn til hinnar 1.300 ára gömlu borgar Chernihiv í Norður-Úkraínu, aðeins spölkorn frá landamærum Rússlands, og fékk ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi eftir fjögurra ára búsetu og átti þá lögum samkvæmt rétt á að sækja um íslenskan ríkisborgararétt sem hann gerði í árslok 2024. Hann lauk BA-prófi í íslensku sem öðru tungumáli frá Háskóla Íslands árið 2024, lagði stund á meistaranám í stærðfræði við skólann í eitt og hálft ár og kenndi um tíma stærðfræði í grunnskóla í Mosfellsbæ en í haust hefur hann nám í íslenskum fræðum við HÍ. Nú starfar Ihor sem íslenskukennari hjá Mími þar sem hann kennir úkraínskum innflytjendum að fóta sig á nýju tungumáli í nýju landi auk þess sem hann starfar hjá Heimaþjónustu Reykjavíkurborgar og hefur gert síðastliðin fjögur ár. Ihor keppir í Oceanman-sundinu á Spáni fyrr á þessu ári. Ljósmynd/Aðsend Neitar að taka við rafrænu sakavottorði Nýverið barst honum beiðni frá Útlendingastofnun um viðbótargögn vegna umsóknar sinnar um ríkisborgararétt, sakavottorð frá úkraínskum yfirvöldum sem hann pantaði netleiðis. „Í Úkraínu gefur lögreglan út rafrænt sakavottorð sem maður pantar á vefsíðu hennar. Það gerði ég og fékk vottorðið,“ segir Ihor frá. Með QR-kóða fær sá sem hann hefur í höndum aðgang að vottorðinu, opinberu rafrænu skjali sem úkraínsk yfirvöld gefa út og er þar tekið fram að svokölluð apostille-vottun, formleg staðfesting skjala sem leggja á fram erlendis, sé ekki nauðsynleg. „Ég fór líka til löggilts skjalaþýðanda sem þýddi vottorðið á íslensku,“ segir hann frá. „Með þingmanni frá Úkraínu sem mögulega stóð á bak við árásina á mig,“ segir Ihor um þessa mynd en hann strauk ýmsum ráðamönnum í Úkraínu andhæris með skrifum sínum þar í landi. Ljósmynd/Aðsend Útlendingastofnun hefur nú krafið Ihor um frumrit skjalsins á pappír. „Það get ég ekki útvegað þar sem úkraínska lögreglan sendir ekki frumrit sakavottorða úr landi, ég þyrfti að fara sjálfur til Úkraínu og ná í vottorðið sem ég get ekki. Það er ástæðan fyrir því að ég fékk alþjóðlega vernd á Íslandi, ég var blaðamaður í Úkraínu, rannsakaði þar spillingu, og Útlendingastofnun veitti mér á sínum tíma alþjóðlega vernd vegna þessa,“ segir Ihor og þykir það því skiljanlega skjóta skökku við að sama stofnun krefjist þá frumrits skjals sem útilokað er að útvega nema leggja á sig ferðalag til Úkraínu. Oft eini keppandinn fyrir Íslands hönd Í slíka för leggur Ihor eðlilega ekki, eigandi háskalega andstæðinga á sinni gömlu fósturjörð þar sem hann ritaði um spillingarmál og eignaðist með því óvildarmenn sem urðu til þess að honum var þar ekki vært lengur. Samkvæmt bréfi Útlendingastofnunar hafði Ihor fimmtán daga frest frá dagsetningu þess til að útvega sakavottorðið sem hann gerði vel innan frestsins. Svar stofnunarinnar var að rafræna sakavottorðið sem hann lagði fram væri ekki fullnægjandi án apostille-vottunarinnar. „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka,“ segir Ihor sem staddur er á Ítalíu þar sem hann keppir í fjórtán kílómetra sundi fyrir Íslands hönd á Oceanman Lago d’Orta-mótinu en hann hefur keppt undir íslenskum fána á fjölda alþjóðlegra móta, í Argentínu, Brasilíu, Malasíu, Ítalíu, Spáni, Frakklandi, Kosta Ríka, Dubai og fleiri löndum. Ihor aflar gagna fyrir grein um lífið í úkraínskum smáþorpum í blaðamennskustarfi sínu í fyrra heimalandi. Ljósmynd/Aðsend „Ég er í mörgum tilfellum eini keppandinn sem syndir fyrir Íslands hönd. Ég hef búið á Íslandi í sjö ár og lít á þátttöku mína undir íslenskum fána sem mína leið til að sýna landinu þakklæti fyrir það sem það hefur gert fyrir mig. Þannig hefur íslenski fáninn birst á alþjóðlegum íþróttaviðburðum víðs vegar um heim þar sem enginn annar keppandi hefur verið frá Íslandi en ég,“ segir Ihor af sundi sínu og á erfitt með að botna í kröfum Útlendingastofnunar. QR-kóðar læsilegir alls staðar „Við erum ekki uppi fyrir hundrað árum, QR-kóðar eru læsilegir alls staðar, við notuðum þá í covid til að ferðast milli landa og leggja fram upplýsingar um bólusetningar. Núna hef ég eina viku til að leggja frumrit sakavottorðsins fram, annars telst umsókn mín um ríkisborgararétt fallin niður,“ segir Ihor sem fékk að vita þetta í gær og er ekki með lögfræðing sér til fulltingis. Í keppni á Oceanman-mótinu í Argentínu fyrr á árinu. Ihor keppir fyrir hönd Íslands í sundi til að sýna þakklæti sitt í garð lands og þjóðar. Ljósmynd/Aðsend „Þeir segja bara að þetta sé ekki hægt, ég sendi Útlendingastofnun skjáskot af reglum úkraínsku lögreglunnar þar sem stendur skýrum stöfum að frumrit séu ekki send til útlanda, þau eru send í pósti innan Úkraínu en til að koma frumriti af sakavottorði út úr landinu þarf sá, sem vottorðið fjallar um, að sækja það sjálfur,“ segir Ihor og bætir því við að Útlendingastofnun segist auk þess engin gögn hafa um að hann hafi verið á Íslandi tímabilið frá júlí 2021 til apríl 2022. „Á þeim tíma var ég í íslenskunámi við HÍ og um það eru öll gögn til. Ég veit ekki hvað ég á að gera ef Útlendingastofnun segir nei,“ segir Úkraínumaðurinn sem virðist kominn í blindgötu með umsókn sína um ríkisborgararétt og veit ekki hvað hann á til bragðs að taka en fjölskylda hans er búsett í litlu þorpi í norðurúkraínskum skógi þar sem árásardrónar fljúga daglega yfir húsþökum íbúanna í stríði Rússa við nágrannaþjóð sína. Vettvangsnám í Réttarholtsskóla í fyrra en Ihor hóf nám í kennslufræði sem hann þó lauk ekki. Ljósmynd/Aðsend Tengdar fréttir Flóttafólk á Íslandi Vilja herða reglur um ríkisborgararétt Krefjast þess að íslensk stjórnvöld tryggi réttindi flóttafólks Upplýsingagjöf „verulega áfátt“ Vill gera glæpamönnum lífið leitt Nærri 300 umsagnir um breytingar á útlendingalögum » Fleiri tengdar fréttir Úkraína Árás veldur rafmagnsleysi í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu Sakaðir um að ráða ungar konur til að drepa hermenn Pútín býr sig undir styrjöld Frakkar skutu niður dróna í Lettlandi „Einstaklega viðbjóðsleg árás“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Daníel deilir færslu um samskiptin við Messi Stórleikur í undanúrslitum bikarsins Grindvíkingar mótmæltu fyrir utan Alþingi Víkingar í undanúrslit eftir sigur á Akranesi Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Lausnin er ekki meiri skattar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íbúðaverð hækkaði um 103% á tíu árum „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom „Elskuð, virt og dáð af fólki um allt konungsríkið“ Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Sex flugferðum aflýst í dag Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Daníel deilir færslu um samskiptin við Messi Stórleikur í undanúrslitum bikarsins Grindvíkingar mótmæltu fyrir utan Alþingi Víkingar í undanúrslit eftir sigur á Akranesi Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Lausnin er ekki meiri skattar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spá 16-22 milljarða halla árið 2027 Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Prinsessan er látin Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Sex flugferðum aflýst í dag Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skri