Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Grindvíkingar mótmæltu fyrir utan Alþingi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 12.6.2026 | 22:26 Grindvíkingar mótmæltu fyrir utan Alþingi Grindvíkingar mótmæltu fyrir utan Alþingishúsið í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Grindvíkingar boða til mótmæla fyrir utan Alþingishúsið Hefur valdið óafturkræfum skaða Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Grindavík auglýsir eftir bæjarstjóra Segja stjórnvöld standa í vegi fyrir Grindvíkingum » Fleiri tengdar fréttir Íbúar í Grindavík hafa fengið nóg af óvissu og skorti á rökstuðningi ríkisins fyrir ákvarðanatöku um húsnæðismál í bænum. Bæjarbúar tóku sig því til og mótmæltu í dag fyrir utan Alþingishúsið til þess að vekja athygli á stöðu sinni, áframhaldandi óvissu um framtíð bæjarins og þeirri ákvörðun ríkisins að takmarka afnot eigenda af húsum sem seld voru Þórkötlu við 12 daga á mánuði frá og með 31. ágúst. „Það er hugur í fólki“ Páll Valur Björnsson er íbúi í Grindavík til 40 ára. Hann segist fara þangað á hverjum degi til þess að vinna en hann er kennari í Fisktækniskólanum sem var nýlega fluttur aftur til Grindavíkur. „Við erum hér samankomin fyrst og fremst til þess að fá svör frá ríkinu hvað varðar húsnæðismál í Grindavík,“ segir Páll. Ekki hafi vantað upp á athygli landsins á Grindavík síðustu ár en nú sé kominn tími til að fá svör frá fasteignafélaginu Þórkötlu. Þórkatla er fasteignafélag í eigu ríkisins sem var stofnað í þeim tilgangi að kaupa húsnæði í Grindavík og styðja Grindvíkinga í kjölfar jarðhræringanna á Reykjanesskaga. „Þetta er flókið mál,“ segir Páll. „En nú er þetta bara spurning um það hvernig er hægt að leysa þessi mál þannig að fólk geti farið aftur heim.“ Bætir hann við að mikil samstaða sé í samfélaginu og hugur sé í Grindvíkingum sem vilja fara að koma þessu í gang. Páll Valur Björnsson á Austurvelli í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ótrúlegur skortur á svörum Dagmar Karlsdóttir er eigandi gistihússins Grindavík, er að opna kaffihús og rekur hjólaleigu meðal annarra verkefna, allt staðsett í Grindavík. Hún er fjögurra barna móðir og hundaeigandi sem flutti til Grindavíkur rúmlega ári fyrir rýmingu. „Við vorum nýbúin að kaupa gistihús og einbýlishús, strákarnir okkar voru orðnir Íslandsmeistarar með Grindavík og allt var í blóma, þar til við þurftum að rýma,“ segir Dagmar. „Við erum ótrúlega ósátt við að fá ekki að vera áfram í húsunum okkar. Okkur var lofað einhvers konar úrlausn, við fengjum að kaupa húsin til baka eða leigja þau. Okkur var bara sagt að þetta væri alveg að fara að koma, en síðan kom aldrei neitt.“ Dagmar Karlsdóttir á mótmælunum í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Hvar er sanngirnin?“ Þá segir Dagmar að í maí hafi Grindvíkingum verið tilkynnt að enn væri talið hættulegt að dvelja í bænum og þeim yrði ekki leyft að fara til baka, síðan hafi umrædd 12 daga lausn verið sett fram. „Af hverju megum við ekki vera meira en 12 daga á heimilum okkar í mánuði á meðan manneskja sem leigir ekki í gegnum Þórkötlu má vera þar eins og hún vill? Hvar er sanngirnin í því?“ spyr Dagmar. Grindvíkingum finnist engan veginn nægileg rök hafa verið gefin fyrir þessu. Ósýnilegi maðurinn Dagmar segir Grindvíkinga tala mikið um ósýnilega manninn. „Við köllum þetta ósýnilega manninn, við vitum ekki hvar hann er, við vitum ekki hvað hann er að hugsa eða hvað hann er að segja. Útskýrið fyrir okkur hver er að koma með þetta,“ segir hún. Hún hafi margoft reynt að hafa samband við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra en engin svör fengið. „Ég var svo að vonast til að þurfa ekki að hafa þessi mótmæli í dag. Ég reyndi að gefa þeim fyrirvara og bað sérstaklega um að hlustað væri á okkur til þess að koma með einhverja úrlausn,“ heldur hún áfram. Hún geti ekki annað en undrað sig á því af hverju ekki sé hlustað á Grindvíkinga og unnið með bæjarstjórninni. „Við erum bara svolítið í lausu lofti.“ Það vantaði ekki upp á stuðning ungu kynslóðarinnar í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Framtíðin full af tækifærum Dagmar sér ekkert nema tækifæri í framtíð bæjarins ef Grindvíkingum verður leyft að halda áfram uppbyggingu, þeir séu lausnamiðað fólk. „Ég veit að það verður allt í blóma ef þeir sleppa takinu af okkur og treysta okkur. Það er aðalmálið.“ Útskýra verði betur fyrir Grindvíkingum hvers vegna ákvarðanir séu teknar. „Við erum öll að hlusta og erum alltaf að bíða en við bara heyrum ekki neitt.“ Hún segir Grindvíkinga ekki lengur hafa áhyggjur af náttúruvánni á Reykjanesskaga en mesta óvissan sé í kringum ríkisvaldið. Hún hefði aldrei trúað því fyrir tveimur árum að hún hefði verið hrædd við hvað ríkisstjórnin myndi gera. Nú eru liðin meira en tvö ár síðan jarðhræringar af einhverju viti hafa verið í Grindavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Treystið okkur bara“ Dagmar gefur lítið fyrir þær kenningar að hættulegt sé að dvelja í Grindavík. „Það eru sérfræðingar sem segja að það sé búið að losa um þessa spennu. Af hverju ætti gosið að koma inn í bæinn þegar það er auðveldast að fara þar sem það hefur áður komið? Og ef það kemur þá erum við með fjórar útgönguleiðir,“ segir hún. „Þannig treystið okkur bara.“ Tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Grindvíkingar boða til mótmæla fyrir utan Alþingishúsið Hefur valdið óafturkræfum skaða Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Grindavík auglýsir eftir bæjarstjóra Segja stjórnvöld standa í vegi fyrir Grindvíkingum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Grindvíkingar mótmæltu fyrir utan Alþingi Víkingar í undanúrslit eftir sigur á Akranesi „Hann mun myrða einhvern“ Nýtt nafn á blaði Arsenal Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Efnahagsleg hnignun ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Skerða um 1% í þorski og 20% í ýsu Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Prinsessan er látin Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Sex flugferðum aflýst í dag Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Grindvíkingar mótmæltu fyrir utan Alþingi Víkingar í undanúrslit eftir sigur á Akranesi „Hann mun myrða einhvern“ Nýtt nafn á blaði Arsenal Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Efnahagsleg hnignun ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Samkomulag á lokametrunum Veðurfyrirbærið El Niño er hafið Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Sex flugferðum aflýst í dag Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna

Share this article