Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni

Read Full Article →

Innlent | mbl | 12.6.2026 | 21:30 Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Einar segir fólk geta gert samninga við tjaldsvæði kjósi það að búa í hjólhýsum. Samsett mynd/mbl.is/Eggert Jóhannesson Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Fjölmargar ástæður liggja að baki því að samningi Reykjavíkurborgar við Samtök hjólabúa um afnot af landsvæði á Gufunesi var rift í morgun að sögn Einars Þorsteinssonar formanns borgarráðs. Hjólhýsabyggðin er nú staðsett á Sævarhöfða. „Við gerðum athugasemd við þennan samning þegar hann var samþykktur á síðasta kjörtímabili af síðasta meirihluta og gagnrýndum ýmsa meinbugi á honum,“ segir Einar í samtali við mbl.is. Frétt af mbl.is Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Keyrt í gegn án fjárheimildar Áformin hafi hvergi verið kynnt fyrir íbúum eða hagaðilum á svæðinu og samningurinn „einfaldlega keyrður í gegn án fjárheimildar“. Kostnaðurinn nemi allt að 100 milljónum króna og hvergi sé gert ráð fyrir honum í fjárhagsáætlun borgarinnar. Í heimsfaraldrinum fengu hjólabúar, eftir samkomulag við Farfugla, að dvelja á tjaldsvæði í Laugardalnum eftir að dregið hafði verulega úr ferðamannastraumi á svæðið. Að faraldrinum loknum hefðu Farfuglar eðli málsins samkvæmt viljað losna við hjólhýsabyggðina til að geta selt ferðamönnum tjaldstæði á eðlilegu verði. „Hjólhýsabúum bauðst þá að leigja stæði á mjög hagstæðu verði með niðurgreiðslu borgarinnar og þau þáðu það ekki, einfaldlega vegna þess að þau vildu ekki borga vægt gjald fyrir að vera með hjólhýsi á þessu svæði,“ segir Einar. 36 milljónir í niðurgreiðslur Einar bað um að tekið yrði saman hve mikið starfsemin hefur verið niðurgreidd frá því í Covid. „Niðurgreiðslan nemur um 36 milljónum króna,“ segir hann og nefnir þar meðal annars niðurgreiðslu á rafmagni. „Þetta hefur bara verið ósýnilegt.“ Hann bendir á að borgin reki langstærsta félagslega húsnæðiskerfi landsins. Þá leggur hann áherslu á að þeir sem séu í fjárhagslegum vanda og þurfi stuðning geti fengið hann frá borginni. „Þetta eru húsnæðisúrræðin sem ég styð en ég styð ekki að borgin setji hundrað milljónir í það að koma upp hjólhýsagarði innan borgarmarkanna.“ Fólk sem kjósi að búa í hjólhýsum af fúsum og frjálsum vilja geti gert samninga við tjaldsvæðin. Nóg sé af þeim á suðvesturhorni landsins. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Nýtt nafn á blaði Arsenal Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Bjuggu til app til að smala vinum saman Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Þróttarar á miklu skriði Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Réttar forsendur, rangar ályktanir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Veðurfyrirbærið El Niño er hafið Spá 16-22 milljarða halla árið 2027 Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Sex flugferðum aflýst í dag Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Nýtt nafn á blaði Arsenal Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Bjuggu til app til að smala vinum saman Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Þróttarar á miklu skriði Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Réttar forsendur, rangar ályktanir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Álverðið hefur rokið upp Veðurfyrirbærið El Niño er hafið Prinsessan er látin Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Sex flugferðum aflýst í dag Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna

Share this article