Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hákon krónprins boðar forföll á ríkisráðsfund vegna heilsu Mette-Marit

Read Full Article →

Hákon krónprins tók ekki þátt í ríkisráðsfundi í Noregi í dag vegna veikinda Mette-Marit eiginkonu sinnar. Vika er síðan tilkynnt var að krónprinsessan væri komin á biðlista eftir lungnaígræðslu vegna ólæknandi lungnasjúkdóms sem hún er haldin. Hákon hefur reglulega tekið þátt í ríkisráðsfundum sem ríkisstjórnin og konungurinn sitja. Til stóð að hann sæti fundinn í dag. Aftenposten greindi fyrst frá því hann að yrði ekki á fundinum og fjölmiðlafulltrúi konungshallarinnar staðfesti við NRK að krónprinsinn hefði breytt áformum sínum til að geta verið við hlið konu sinnar í veikindum hennar. Í gær voru hátíðahöld í tilefni af 25 ára afmæli sjóðs sem var stofnaður þegar þau gengu í hjónaband. Hákon var þar einn. „Hana vantar sárlega hér í dag,“ sagði hann við það tækifæri. Krónprinshjónin eiga silfurbrúðkaup í ágúst. Hátíðahöldum sem voru fyrirhuguð þá hefur verið frestað vegna heilsufars Mette-Marit. Athöfnin í gær er því sú eina sem tengist brúkaupsafmæli þeirra.

Share this article