Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hrikaleg vonbrigði með ýsuna

Read Full Article →

200 mílur | mbl | 12.6.2026 | 14:03 Hrikaleg vonbrigði með ýsuna Kjartan Páll Sveinsson segir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar í ýsu valda vonbrigðum en ráðlagt aflamark lækkaði um 20%. Ljósmynd/Sjávarlíf/Karítas Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Hafrannsóknastofnun hefur gefið út ráðgjöf sína fyrir komandi fiskveiðiár. Lagt er til að heildarafli í þorski verði lækkaður um 1%, sem er minna en margir þorðu að vona. Aftur á móti eru töluverð vonbrigði með ýsuráðgjöf þar sem skerðing nemur 20%. „Við erum fegnir að ráðgjöfin dragist bara saman um 1%. Maður var skíthræddur um að það yrði eitthvað meira en það,“ segir Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, inntur eftir viðbrögðum við ráðgjöfinni. Ýsan skiptir sköpum Kjartan segist aftur á móti ekki vera búinn að ná utan um hvað ýsuráðgjöf muni þýða fyrir tölurnar. „Það eru hrikaleg vonbrigði,“ segir hann. „Ég þarf að skoða þær tölur betur en hún fór ansi hratt upp og svo kom hún niður á svipaðan stað og hún var fyrir þá hækkun.“ Kjartan segir ýsuna skipta mjög miklu máli fyrir smábátasjómenn. „Ýsan hefur mjög mikil áhrif á smábátasjómenn og 5,3% kerfið vegna þess að hún er eiginlega það eina sem er almennilega eftir í línuívilnun. Þetta kemur sér því mjög illa fyrir línubátana,“ útskýrir Kjartan. „Þetta er bara 20% samdráttur í úthlutuðum heimildum og 20% minni afli. Þetta verður erfitt fyrir fyrir línubátana.“ Margt sem vekur athygli Þorskurinn og ýsan voru þó ekki einu tegundirnar sem fengu Kjartan til að sperra eyrun á kynningarfundi Hafrannsóknastofnunar. „Það er aukning í löngu þrátt fyrir að við séum búin að vera að veiða langt umfram ráðgjöf,“ segir hann. „Svo var samdráttur í ráðgjöf í ufsa, þrátt fyrir að við séum búin að vera að veiða langt undir ráðgjöf. Er hægt að geyma fiskinn í sjónum og ávaxta hann seinna eða ekki? Það er stóra spurningin í þessu.“ Frétt af mbl.is Skerða um 1% í þorski og 20% í ýsu Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Skerða um 1% í þorski og 20% í ýsu Hrikaleg vonbrigði með ýsuna Strandveiðimenn bíða í óvissu Loðnuráðgjöf hækkar um 81% 66°Norður litu til upprunans Marx nýr yfirvísindamaður Rastar Brim segir upp 20 starfsmönnum Þungt andrúmsloft á Vopnafirði „Mikill auður safnast á fárra hendur“ Hákarlamarkaðurinn smám saman að hverfa 66°Norður litu til upprunans Strandveiðimenn bíða í óvissu Þungt andrúmsloft á Vopnafirði Brim segir upp 20 starfsmönnum Hákarlamarkaðurinn smám saman að hverfa Marx nýr yfirvísindamaður Rastar Hafna hugmyndum um undanþágur Lögfræðingar fara yfir hvalveiðilög „Mikill auður safnast á fárra hendur“ Myndir: Látinna sjómanna minnst Hafna hugmyndum um undanþágur Þungt andrúmsloft á Vopnafirði Hákarlamarkaðurinn smám saman að hverfa Brim segir upp 20 starfsmönnum „Mikill auður safnast á fárra hendur“ Minnisvarði afhjúpaður á sjómannadaginn Vara við tínslu kræklings úr fjörum Sjómenn heiðraðir um allt land Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart „Sjómenn eru ekki alveg sáttir“ Fleira áhugavert Hagræðingarhópur kynntur „Elskuð, virt og dáð af fólki um allt konungsríkið“ Spá 16-22 milljarða halla árið 2027 Skerða um 1% í þorski og 20% í ýsu Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 12.6.26 682,99 kr/kg Þorskur, slægður 12.6.26 831,90 kr/kg Ýsa, óslægð 12.6.26 662,78 kr/kg Ýsa, slægð 12.6.26 532,35 kr/kg Ufsi, óslægður 12.6.26 350,67 kr/kg Ufsi, slægður 12.6.26 417,17 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 12.6.26 457,23 kr/kg Litli karfi 1.6.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 12.6.26 Gullhólmi SH 201 Lína Keila 641 kg Samtals 641 kg 12.6.26 Þrasi VE 20 Handfæri Þorskur 145 kg Ýsa 16 kg Ufsi 15 kg Langa 5 kg Karfi 4 kg Samtals 185 kg 12.6.26 Magnús SH 205 Dragnót Þorskur 399 kg Steinbítur 84 kg Langlúra 72 kg Skrápflúra 63 kg Ufsi 58 kg Karfi 16 kg Skarkoli 2 kg Þykkvalúra 1 kg Samtals 695 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Skerða um 1% í þorski og 20% í ýsu Hrikaleg vonbrigði með ýsuna Strandveiðimenn bíða í óvissu Loðnuráðgjöf hækkar um 81% 66°Norður litu til upprunans Marx nýr yfirvísindamaður Rastar Brim segir upp 20 starfsmönnum Þungt andrúmsloft á Vopnafirði „Mikill auður safnast á fárra hendur“ Hákarlamarkaðurinn smám saman að hverfa 66°Norður litu til upprunans Strandveiðimenn bíða í óvissu Þungt andrúmsloft á Vopnafirði Brim segir upp 20 starfsmönnum Hákarlamarkaðurinn smám saman að hverfa Marx nýr yfirvísindamaður Rastar Hafna hugmyndum um undanþágur Lögfræðingar fara yfir hvalveiðilög „Mikill auður safnast á fárra hendur“ Myndir: Látinna sjómanna minnst Hafna hugmyndum um undanþágur Þungt andrúmsloft á Vopnafirði Hákarlamarkaðurinn smám saman að hverfa Brim segir upp 20 starfsmönnum „Mikill auður safnast á fárra hendur“ Minnisvarði afhjúpaður á sjómannadaginn Vara við tínslu kræklings úr fjörum Sjómenn heiðraðir um allt land Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart „Sjómenn eru ekki alveg sáttir“ Fleira áhugavert „Elskuð, virt og dáð af fólki um allt konungsríkið“ Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Íbúðaverð hækkaði um 103% á tíu árum Þrengdi að hálsi fyrrum sambýliskonu sinnar Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 12.6.26 682,99 kr/kg Þorskur, slægður 12.6.26 831,90 kr/kg Ýsa, óslægð 12.6.26 662,78 kr/kg Ýsa, slægð 12.6.26 532,35 kr/kg Ufsi, óslægður 12.6.26 350,67 kr/kg Ufsi, slægður 12.6.26 417,17 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 12.6.26 457,23 kr/kg Litli karfi 1.6.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 12.6.26 Gullhólmi SH 201 Lína Keila 641 kg Samtals 641 kg 12.6.26 Þrasi VE 20 Handfæri Þorskur 145 kg Ýsa 16 kg Ufsi 15 kg Langa 5 kg Karfi 4 kg Samtals 185 kg 12.6.26 Magnús SH 205 Dragnót Þorskur 399 kg Steinbítur 84 kg Langlúra 72 kg Skrápflúra 63 kg Ufsi 58 kg Karfi 16 kg Skarkoli 2 kg Þykkvalúra 1 kg Samtals 695 kg Skoða allar landanir »

Share this article