Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Réttar forsendur, rangar ályktanir

  • What: Discussion about Iceland's security status in relation to NATO membership
  • Impact: Political debate on national security strategy
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 12.6.2026 | 8:00 Aðsend grein: Réttar forsendur, rangar ályktanir Gunnar Pálsson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Á Alþingi hinn 8. júní sl. var spurt að því hvort aflað hefði verið formlegrar afstöðu bandarískra stjórnvalda til þess hvort sérstaða Íslands í öryggis- og varnarmálum myndi haldast óbreytt með aðild Íslands að ESB. Í svari sínu gat viðkomandi ráðherra ekki staðfest að samráð um það efni við Bandaríkin hefði farið fram. Hann gat heldur ekki upplýst á hverju hann byggði þá fullvissu sína að aðildin myndi engin áhrif hafa á varnarsamninginn, nema ef vera skyldi að hagsmunir Íslands og Bandaríkjanna á norðurhöfum væru „samofnir“ og varnir Íslands skilgreindar sem hluti af „heimavarnasvæði“ Bandaríkjanna. Þessi viðbrögð benda til þess að ekki hafi verið falast eftir afstöðu Bandaríkjanna til þessa mikilvæga álitaefnis, en tregðuna til að láta af því verða virðist einkum mega rekja til ótta við að litið yrði á fyrirspurnina sem heimildarbeiðni fyrir Ísland til að fá sækja um aðild að ESB. Vandséð er að slík afstaða hafi verið hugsuð til þrautar. Varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna frá árinu 1951 er tvíhliða samningur um varnarsamstarf. Breytist aðstæður annars aðilans sem áhrif gætu haft á kringumstæður hins mæla diplómatískar samskiptareglur fyrir um að samráð fari fram milli samningsaðila um möguleg áhrif breytinganna á samstarfið. Kysi Ísland að gerast aðili að ESB og verða með tímanum hluti af varnarsvæði þess gæti það haft margvísleg áhrif, bæði hagnýt og pólitísk, á varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna. Að óska eftir tímanlegu samráði um möguleg áhrif aðildarinnar á það samstarf bæri hvorki vott um veikleika né undirlægjuhátt, en væri í anda þess gagnkvæma trausts sem ríkt hefur lengst af í samskiptum ríkjanna á síðustu 75 árum. Ástæða er til að fagna því að stjórnvöld gefi sér sem forsendu að hagsmunir Íslands og Bandaríkjanna á norðurhöfum séu samofnir. En þótt forsendan sé rétt virðist engu að síður mögulegt að draga af henni skakkar ályktanir. Séu hagsmunir ríkjanna samofnir ber væntanlega að líta svo á að svæðisbundnar aðgerðir annars aðilans í varnarmálum kunni að hafa áhrif á hagsmuni hins. Gerist Ísland aðili að ESB og greiði þannig götu sambandsins til vaxandi áhrifa á norðurhöfum getur fáum blandast hugur um að einnig það kunni að snerta hagsmuni Bandaríkjanna. Af þeim sökum getur ekki talist rökrétt að líta svo á að spurningin um aðild Íslands að ESB snúist einvörðungu um rétt Íslands sem fullvalda ríkis til að taka sínar eigin ákvarðanir og sé hún jafnvel Bandaríkjunum óviðkomandi. Í svari sínu á Alþingi taldi viðkomandi ráðherra það renna stoðum undir sín sjónarmið að Ísland væri skilgreint sem hluti af „heimavarnasvæði“ Bandaríkjanna, án þess að sjá annmarka á þeirri óvenjulegu framsetningu sinni að varnir Íslands sem fullvalda ríkis væru hluti af heimavarnasvæði annars ríkis. Meiri áhyggjum veldur þó sú augljósa mótsögn sem í því er fólgin að telja ekki ástæðu til að bera það undir sjálf Bandaríkin gefi Ísland ESB kost á að hlutast til um áðurnefnt heimavarnasvæði Bandaríkjanna með því að gerast aðili að sambandinu. Á þeim stutta tíma sem til stefnu er fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst er enn tækifæri til að draga úr óvissu og reifa á hreinskiptinn hátt hin mögulegu áhrif ESB-aðildar á stöðu landsins í öryggis- og varnarsamstarfi. Hvorki þögn um það efni né óyfirvegaðar yfirlýsingar úr ræðustól Alþingis eru líklegar til að reynast landsmönnum gott veganesti inn í þann ótrygga heim sem margt bendir til að kunni að bíða þeirra á komandi árum. Gunnar Pálsson, fyrrverandi sendiherra Íslands hjá NATO og ESB. Kysi Ísland að gerast aðili að ESB og verða með tímanum hluti af varnarsvæði þess gæti það haft margvísleg áhrif, á varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna Christian Lue/ Unsplash Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sex flugferðum aflýst í dag Ekki hleypt inn í landið fyrir HM Kanada – Bosnía kl. 19, bein lýsing Brennivín hlaut gullverðlaun í alþjóðlegri keppni Þverá gaf 25 laxa í opnunarholli Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Efnahagsleg hnignun ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Þrengdi að hálsi fyrrum sambýliskonu sinnar Sex flugferðum aflýst í dag Hagræðingarhópur kynntur Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Sex flugferðum aflýst í dag Ekki hleypt inn í landið fyrir HM Kanada – Bosnía kl. 19, bein lýsing Brennivín hlaut gullverðlaun í alþjóðlegri keppni Þverá gaf 25 laxa í opnunarholli Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Efnahagsleg hnignun ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sex flugferðum aflýst í dag Kristrún: „Auðvitað mótmælum við óeðlilegum afskiptum“ Skerða um 1% í þorski og 20% í ýsu Íhuguðu að kasta sér fram af brú Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna

Share this article