Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lögreglan rannsakar mögulega íkveikju í ruslageymslu

Read Full Article →

Frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun rötuðu 85 mál á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þrír gistu fangageymslur í morgunsárið.Ruv.is / Anton Brink Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi eða nótt ökumann sem ók á 112 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 50. Hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Þetta kemur fram í morgunpósti lögreglu. Þar segir að annar ökumaður hafi verið stöðvaður fyrir að aka á nagladekkjum. Nagladekkjatímabilinu lauk um miðjan apríl. Tvær tilkynningar um eld í grillum bárust lögreglu. Lítið eða ekkert tjón varð. Þá hefur lögregla eld í ruslageymslu til rannsóknar. Grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða.

Share this article