Suðurkóresk yfirvöld hafa sektað netverslunarfyrirtækið Coupang um meira en 400 milljónir dala vegna umfangsmikils gagnaleka sem leiddi til þess að persónuupplýsingar meira en 30 milljóna viðskiptavina láku út á síðasta ári. Á vef BBC segir að um sé að ræða hæstu sekt sem persónuverndarstofnun Suður-Kóreu (PIPC) hefur lagt á aðila vegna gagnaleka. Stofnunin tilkynnti sektina í gær en Coupang, sem er stærsta netverslun Suður-Kóreu, er oft lýst sem kóreskri útgáfu af Amazon. Sjá einnig Stórfelldur gagnaleki hjá Disney Í lekanum birtust nöfn, samskiptaupplýsingar, afhendingarupplýsingar og pöntunarsaga viðskiptavina en fjöldi þeirra reikninga sem lekinn náði til samsvarar meira en helmingi af 50 milljóna manna íbúafjölda landsins. Stofnunin komst að þeirri niðurstöðu að skortur á öryggisráðstöfunum, þar á meðal léleg umsjón með auðkennislyklum og aðgangsstýringum, hefði leitt til lekans.
The South Korean data protection authority (PIPC) has imposed a record fine on e-commerce giant Coupang following a massive data breach affecting over 30 million customers. The breach, which exposed names, contact details, shipping addresses, and order histories, was attributed to insufficient security measures, including poor management of authentication keys and access controls. No specific vulnerability, CVE, CVSS score, or software version information is provided in the source article.