Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Krabbameinsfélagið veitti 118 milljón króna styrk til 13 rannsókna

Read Full Article →

Árlega greinast að meðaltali 2.055 einstaklingar með krabbamein og 1 af hverjum 3 Íslendingum fær krabbamein á lífsleiðinni. Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur veitt styrki á ári hverju frá árinu 2017 til að stuðla að framförum í krabbameinsrannsóknum. Á tíu árum hefur sjóðurinn veitt 119 styrki fyrir alls 774 milljónir króna. Í ár var heildarstyrkveiting sjóðsins sú stærsta frá upphafi eða 118 milljónir króna og þrettán styrkir veittir. Þessi hlutu styrki Erna Magnúsdóttir hlýtur 12.000.000 kr. fyrir rannsóknina: Kortlagning víxlverkana frumuvistar og Waldenström Macroglobulinaemia æxla með notkun sjálfskipuleggjandi örlíffæra beinmergs. Siggeir Fannar Brynjólfsson hlýtur 12.000.000 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina: Greining á stakskorti í ónæmisfrumum heilbrigðra arfbera BRCA2-999del5 stökkbreytingarinnar. Sigríður Gunnarsdóttir hlýtur 12.000.000 kr. fyrir rannsóknina: Óuppfylltar þarfir fyrir heilbrigðisþjónustu eftir lok krabbameinsmeðferðar á Íslandi og tengsl þeirra við lífsgæði og heilsulæsi: Lýðgrunduð þversniðsrannsókn. Stefán Sigurðsson hlýtur 12.000.000 kr. fyrir rannsóknina: Líffræðilegar skýringar á lakari lifun í BRCA2-tengdu og snemmkomnu estrógenviðtaka jákvæðu brjóstakrabbameini. Ólöf Kristjana Bjarnadóttir hlýtur 11.700.000 kr. fyrir rannsóknina: Meðferðarheldni innkirtlameðferðar í hormónajákvæðu brjóstakrabbameini á Íslandi 2008-2023: þróun klínísks spálíkans til að spá fyrir um meðferðarheldni. Sigurður Yngvi Kristinsson hlýtur 11.416.000 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina: Einkennavaldandi einstofna mótefnahækkun: Faraldsfræði og þróun greiningaraðferða. Eiríkur Steingrímsson hlýtur 9.940.000 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina: Hvernig veldur breytileiki í mRNA capping-ensíminu CMTR2 sortuæxlum og lungnakrabbameini? Sigríður Klara Böðvarsdóttir hlýtur 9.050.000 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina: Leit að lífmerkjum í brjóstakrabbameinsvef. Kristinn Ragnar Óskarsson hlýtur 9.023.244 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina: Áhrif krabbameinsvaldandi stökkbreytinga á byggingu, virkni og hreyfanleika umritunarþáttarins FOXA1. Guðrún Valdimarsdóttir hlýtur 6.750.000 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina: Áhrif seytinna æðaþelsþátta á framvindu brjóstakrabbameins með notkun æðaríks æxlingaprófs og RNA-raðgreiningar. Heiðdís B. Valdimarsdóttir hlýtur 5.415.840 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina: Áhrif örvandi dægurbundins ljóss á dægursveiflur, bólgumyndun og sjúkdómsbyrði meðal nýgreindra brjóstakrabbameinssjúklinga. Krishna Kumar Damodaran hlýtur 3.800.000 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina: Þróun lífrænna rhodium (III) sambanda sem krabbameinslyf með aukið frumuaðgengi byggt á leysanleika og amínósýruferjum. Gunnhildur Ásta Traustadóttir hlýtur 2.500.000 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina: Virkjun ónæmiskerfisins gegn krabbameini. Sjóðurinn hafi umbreytt krabbameinsrannsóknum Magnús Karl Magnússon, formaður Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins, segir sjóðinn hafa umbreytt krabbameinsrannsóknum á Íslandi síðasta áratug. „Við erum að horfa á allt sviðið. Allt frá því að skilja eðli krabbameina, við erum að reyna að skilja líðan og heilsu einstaklinga sem greinast með krabbamein, við erum að reyna að skilja hvernig við getum stuðlað að forvörnum.“ Breitt rannsóknarsvið Við úthlutunina kynntu þrír styrkþegar rannsóknir sínar sérstaklega. Þær spanna bæði grunnrannsóknir og klínískar rannsóknir á ólíkum tegundum krabbameina. Heiðdís B. Valdimarsdóttir hefur rannsakað hvort dægurbundið ljós geti leiðrétt hormónaflæði og dregið úr bólgumyndun hjá sjúklingum sem hafa farið í skurðaðgerð við brjóstakrabbameini. Kristinn Ragnar Óskarsson vill auka þekkingu til að þróa meðferðir gegn krabbameinum sem bregðast lítið við núverandi meðferðarúrræðum. Ný rannsókn Valtýs Stefánssonar Thors miðar að því að finna rétta og einstaklingsmiðaða skammta af sýklalyfjum fyrir börn með krabbamein sem fá alvarlegar sýkingar.

Share this article