Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stefnir í þingfundi í næstu viku

  • What: Ongoing political discussions about the parliament session
  • Impact: Political negotiations and debates continue
Read Full Article →

Samkomulag um þinglok liggur enn ekki fyrir og ber enn nokkuð í milli. Samkvæmt starfsáætlun á að fresta þingi á morgun en nú er útlit fyrir að það starfi fram í næstu viku, hið minnsta. Hlé var gert á þingfundi í hádeginu meðan þingflokksformenn funduðu en þeim fundi lauk án niðurstöðu. Á meðan heldur stjórnarandstaðan uppi umræðu um samgönguáætlun. Helsta bitbeinið í viðræðunum er frumvarp atvinnuvegaráðherra um lagareldi en stjórnarandstaðan vill einnig að gerðar verði breytingar á frumvarpi um innviðafélag. Jafnvel þótt samkomulag tækist í dag þyrfti þingið að gefa sér nokkra daga til að klára þau mál sem eftir standa.

Share this article